Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 18
Undanfarið hafa ítrekað birst í opinberri umræðu rangar fullyrðingar um lífeyrissjóði landsmanna. Virðist sem tilgangur­ inn sé að vekja sem mesta tortryggni í garð sjóðanna og lífeyriskerfisins. Fullyrt er að lífeyrissjóðir haldi uppi vöruverði í landinu með hluta­ fjáreign sinni í smásöluverslun. Ekki hefur fylgt sögunni hvernig þetta geti gerst, en fullyrðingin látin duga. Það eina sem rétt er í þessu er að líf­ eyrissjóðir eiga vissulega hluti í versl­ unarfyrirtækjum. Almennt reyna lífeyrissjóðir að hafa jákvæð áhrif á þau félög sem þeir fjárfesta í með áherslum á góða stjórnarhætti, en þeir koma ekki að daglegri stjórnun fyrirtækjanna eða ákvörðunum um verð á vörum eða þjónustu. Allt frá stofnun sjóðanna hafa þeir boðið sjóðfélögum sínum lán til íbúðakaupa. Þau lán hafa jafnan verið hagkvæm í samanburði við aðra lánakosti. Að auki hafa lífeyris­ sjóðirnir líka fjármagnað íbúða­ kaup landsmanna með því að kaupa skuldabréf af Íbúðalánasjóði, áður Húsnæðisstofnun ríkisins, og af bönkum. Þetta eru umsvif sjóðanna á íbúðamarkaði. Einhverjir hafa fundið vott um að lífeyrissjóðir eigi hluti í leigufélögum sem hafa keypt allmargar íbúðir undanfarin misseri til að leigja út. Ekki hefur komið fram hvaða lífeyrissjóðir það séu né hve mikið fé þeir hafi lagt í þau verkefni. Lífeyrissjóður verzlunarmanna er ekki þar á meðal. Bættur hagur sjóðfélaganna Haustið 2015 bauð Lífeyrissjóður verzlunarmanna bætt lánskjör á sjóðfélagalánum. Það varð umsvifa­ laust til þess að útlán til sjóðfélaga jukust mikið. Á árinu 2016 námu þau um 32 milljörðum króna. Stór hluti lánanna hefur verið tekinn til að endurfjármagna eldri og dýrari lán. Þannig hafa þau stórlega bætt hag sjóðfélaganna. Lífeyrissjóðirnir fá enn í dag ákúr­ ur fyrir að halda uppi verðtryggingu. Staðreyndin er að lífeyrissjóðirnir starfa í því efnahagsumhverfi sem hér á landi ríkir, hvort sem þar er verðtrygging eða ekki. Flestir sjóðirnir bjóða bæði verðtryggð og óverðtryggð sjóðfélagalán. Ríkis­ skuldabréf sem sjóðirnir kaupa eru ýmist. Í heildina lætur nærri að um helmingur eigna lífeyrissjóðanna sé í verðtryggðum bréfum. Hins vegar eru allar skuldbindingar lífeyrissjóð­ anna verðtryggðar: Allur lífeyrir sem sjóðirnir greiða og eiga eftir að greiða er bundinn vísitölu neysluverðs. Líf­ eyrir sem greiddur er út breytist því frá mánuði til mánaðar í samræmi við þróun vísitölunnar. Þegar lífeyrissjóðirnir voru stofn­ aðir, flestir um og upp úr miðri 20. öld, var það gert með samningum á vinnumarkaði milli vinnuveitenda og launþega. Síðar, upp úr miðjum sjöunda áratugnum var gert alls­ herjarsamkomulag á vinnumark­ aðnum um lífeyriskerfi það sem nú er við lýði. Þeir samningar tóku gildi árið 1969 og nokkrum árum seinna samþykkti Alþingi lög um lífeyris­ sjóði sem voru byggð á þessum kjara­ samningum. Lögin og samningarnir voru endurskoðuð og aukin 1997 og á þeim byggist það lífeyriskerfi sem við höfum nú. Þegar menn kvarta undan að verkalýðshreyfingin hafi ekki næg ítök í lífeyriskerfinu mættu þeir rifja upp að það var í rauninni verkalýðshreyfingin í samvinnu við vinnuveitendur sem bjó til lífeyris­ kerfið og þá lífeyrissjóði sem nú tryggja okkur ævilangan lífeyri eftir að starfsævinni lýkur. Þessir frumkvöðlar, á vinnumark­ aðnum og á Alþingi, höfðu næga framsýni til að búa svo um hnútana að hvorki stjórnmálamenn né aðrir skyldu eiga greiðan aðgang að þess­ um sjóðum almennings, þess vegna er svo afdráttarlaust í kjarasamningum og lögum að hlutverk sjóðanna sé það eitt að taka á móti iðgjöldum, ávaxta þau og greiða út lífeyri. Þess vegna eru sjóðirnir öflugir og mynda saman eitt besta lífeyriskerfi sem þekkist og viðurkennt er m.a. af Efnahags og framfarastofnuninni, OECD. Öflugir og traustir lífeyrissjóðir Fiskeldi er orðin mikilvæg atvinnugrein og ef áætlanir ganga eftir mun hún vaxa enn frekar á komandi árum. Að mörgu er að hyggja og því mikilvægt að byggja upp málefnalega umræðu um fiskeldi þar sem ólík sjónarmið koma fram. Um leið er nauðsynlegt að skynsemi og fyrirhyggja ráði för í áætluðum vexti greinarinnar. Sleppingar laxfiska Helsta deilumálið vegna fiskeldis eru sleppingar laxfiska úr sjókvíum. Til að vernda villta stofna er óheimilt að ala laxfiska í sjókvíum á Vestur­ landi og nánast öllu Norðurlandi. Af öðrum svæðum er raunhæfur möguleiki að stunda eldi á Vest­ fjörðum og Austfjörðum, þar sem sjókvíaeldi er í dag, auk Eyjafjarðar. Til að draga úr líkum á sleppingum er verið að innleiða auknar kröfur um búnað og skal hann standast kröfur staðals sem notast er við í Noregi og hefur dregið þar úr fjölda fiska sem sleppa úr kvíum. Þá skal sýna fram á að búnaðurinn standist kröfur og þarf rekstraraðili skírteini frá faggiltri skoðunarstofu, sem stað­ festir að búnaðurinn sé öruggur og standist m.a. strauma og ölduhæð á eldissvæðinu. Eldri búnaður er á útleið, en í kvíum sem ekki stan­ dast nýjar kröfur er alinn regnboga­ silungur. Sleppingar síðustu mánaða má rekja til slíkra kvía, sem verður skipt út fyrir vottaðan búnað. Slysa­ sleppingar geta þó átt sér stað, en þær þarf að fyrirbyggja eftir bestu getu og bregðast við á viðeigandi hátt ef slys verða. Staða fisksjúkdóma Sjúkdómastaða í fiskeldi á Íslandi er ein sú besta í heiminum og engin sýklalyf eru notuð í sjókvíaeldi hér, andstætt fullyrðingum um annað. Þá er tíðræddur misskilningur um að í fiskeldi á Íslandi ríki lúsafár, sem villtum laxastofnum stafi hætta af. Staðreyndin er sú að laxalús hefur aldrei valdið vandræðum í íslensku sjókvíaeldi. Ástæðan er lágur sjávarhiti yfir vetrartímann, en laxalús berst með villtum fiski í kvíar að vori og þar nær hún að fjölga sér lítillega fram á haust. Með vetri lækkar sjávarhiti og lúsin hverfur úr kvíunum. Þegar laxa­ seiði ganga til sjávar að vori er því lítið eða ekkert um lús í eldiskvíum. Í vetur var sjávarhiti þó heldur hærri en vanalega, sem er laxalús hagstætt. Það sýnir mikilvægi þess að vaka yfir breyttum aðstæðum, en „lúsafár“ hefur verið óþekkt í íslensku eldi. Geldfiskur Lax sem notaður er í sjókvíaeldi er af eldisstofni sem kemur frá Noregi og hefur verið ræktaður hér síðan 1984. Hann er ekki erfðabreyttur en hefur verið kynbættur eins og raunin er með eldisdýr. Rætt hefur verið um geldfisk og hvort hann sé raun­ hæfur kostur í eldi. Fisk má gelda með breytingum á erfðamengi eða með því að setja hrogn undir mikinn þrýsting. Fiskur úr þeim hrognum verður ófrjór og getur ekki blandast við villta laxastofna. Gallinn við geldan lax er að hann þarf sérhæft og dýrt fóður til að bein þroskist eðlilega, afföll aukast og vansköp­ unartíðni getur verið há. Auk þess er hætt við að viðbrögð markaða við vörunni verði neikvæð. Ræktun á geldfiski gaf þó nýlega góða raun í köldum sjó í Noregi, sem gaf tilefni til tilraunar með geldfisk við strend­ ur Íslands. Verður hún framkvæmd af Stofnfiski, Háskólanum á Hólum, Landssambandi fiskeldisstöðva, Hafrannsóknastofnun og Arctic Sea Farm. Tíminn leiðir því í ljós hvort þetta sé raunhæfur möguleiki í fisk­ eldi hér. Leyfisveitingar Ferlið við leyfisveitingar er umfangs­ mikið og getur tekið nokkur ár. Til­ kynna þarf fyrirhugaða eldisstarf­ semi til Skipulagsstofnunar sem leggur mat á hvort framkvæmdin þurfi í umhverfismat. Burðarþols­ mat þarf jafnframt að liggja fyrir, en það er mat á staðbundnum áhrifum eldis og hversu mikið magn er óhætt að ala á viðkomandi svæði. Síðan þarf starfsleyfi frá Umhverfisstofnun og rekstrarleyfi Matvælastofnunar. Starfleyfi snýr að mengandi þáttum en rekstrarleyfi að kröfum um búnað og verklag. Leiðrétta verður fullyrðingar um að Matvælastofnun hafi gefið út fjölda rekstrarleyfa á skömmum tíma. Málaflokkurinn var færður frá Fiskistofu til Matvælastofnunar árið 2015, en frá þeim tíma hefur stofn­ unin aðeins gefið út eitt rekstrarleyfi til sjókvíaeldis. Það var til stækk­ unar á eldi í Arnarfirði, sem þegar var hafið. Einnig hafa komið fram kröfur um að hægt verði á leyfis­ veitingum, en löggjöf setur skilyrði um afgreiðslutíma umsókna. Að gefnu tilefni skal einnig áréttað að dýralæknir fisksjúkdóma hjá Mat­ vælastofnun kemur ekki að veitingu rekstrarleyfa, þar sem störf hans einskorðast við fisksjúkdóma. Umræða um fiskeldi Íhaldið er samt við sig. Einka­væðingunni skal nuddað áfram þrátt fyrir almenna andstöðu við slíkt brölt í ljósi biturrar reynslu Íslendinga. Einkavæðing er í senn trúarbrögð, lím og tilgangur hægri manna í póli­ tík. Brautin er gjarnan rudd með því að tala af vægast sagt takmarkaðri virðingu um það sem er leyst og rekið á félagslegum forsendum. Án þess að þurfa að færa fyrir því nokkur rök er talað eins og allt hjá hinu opinbera sé óhagkvæmara, verr rekið og meiru sóað þar en í starfsemi einkaaðila. Næsta verkefni þeirra sem ganga erinda einkagróðans í stjórnmálum er að þrengja að opinberum rekstri. Rekstrarerfiðleikar eru búnir til, til dæmis í heilbrigðisstofnunum og skólum og þegar þessar stofnanir lenda langsveltar í erfiðleikum með að veita þá þjónustu sem þeim ber er stungið upp á einkavæðingu. Þá losnar um kranana. Þá er ekkert vandamál þótt stóraukið almannafé renni um pípurnar út í einkafram­ kvæmd, einkarekstur og hreina einkavæðingu. Dæmin um þetta eru ótalmörg og einkenna pólitíska vegferð Sjálf­ stæðisflokksins síðustu áratugi, frá því að nýfrjálshyggjan náði þar völdum og rændi flesta forustu­ menn flokksins síðustu leifunum af almennri skynsemi. Gegn um smurðar íhaldspípur Tökum dæmi; Háskólinn á Akur­ eyri og stofnanir sem hann var í samstarfi við höfðu lengi sótt á um að byggt yrði yfir margþætta opin­ bera starfsemi á vegum háskólans og aðila sem voru í samstarfi og hagkvæmu nábýli við hann. Hvorki gekk né rak. Engir peningar voru í boði. En, þegar hugmyndir um einkaframkvæmd komu upp á borðið opnuðust kranarnir. Þá var ekkert vandamál að fallast á bygg­ ingu Borga, enda myndu menn greiða einkaaðilunum leigu sem tryggðu þeim ríkulega ávöxtun sinna fjármuna. Hitt var aukaatriði þó himinhá leiga myndi íþyngja rekstri viðkomandi um ókomin ár, sem hún hefur svo sannarlega gert. Það er í lagi að fleyta skatt­ tekjum ríkisins, almannafé, gegn um smurðar íhaldspípurnar ef það endar í höndum réttra aðila að þeirra mati. Þannig eru landamærin smátt og smátt færð innar, nær kjarna vel­ ferðarkerfisins, sem byggt var upp á Norðurlöndunum á síðustu öld á félagslegum grunni. Fjármagnið brýtur undir sig fleiri og fleiri geira í þjóðfélaginu og vill nú um stundir helst af öllu komast á beit þar sem hið opinbera er skuldbundið, laga­ lega og siðferðilega, til að borga reikninginn. Og, pilsfaldakapítal­ isminn er ær og kýr hins hugmynda­ snauða, íslenska íhalds. Hvergi er notalegra að vinna að trúboðinu um hinn vonda ríkisrekstur, yfirburði einkaframtaksins og kosti einka­ væðingar, eins stórkostlega og sumt af því hefur nú reynst okkur Íslend­ ingum – eða hitt þó heldur – en í öruggu skjóli sem opinber starfs­ maður, t.d. inntroðsluprófessor í Háskóla Íslands eða kjörinn fulltrúi í meintri almannaþjónustu. Það er aðeins eitt smávægilegt vandamál sem þvælist fyrir fót­ gönguliðum einkagróðasjónarmið­ anna á Íslandi um þessar mundir. Þjóðin er búin að fá sig fullsadda af hátterni þeirra, hefur lært af reynsl­ unni og sér ekkert grand í áfram­ haldandi einkavæðingu. En, þá eru samt til ráð. Bara að þegja algerlega um slíkt fyrir kosningar, jafnvel tala fjálglega um nauðsyn þess að fjár­ festa í innviðum samfélagsins og aukinni velferð fyrir kosningar, en sæta svo lagi í skjóli valdanna eftir kosningar. Jafnvel þó taka verði ákvarðanirnar að næturlagi og bak luktum dyrum, er alltaf hægt að vera í útlöndum þegar þar um fréttist. Einkavæðing að næturþeli Guðrún Hafsteinsdóttir stjórnarformað- ur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna Lífeyrissjóðirnir fá enn í dag ákúrur fyrir að halda uppi verðtryggingu. Staðreyndin er að lífeyrissjóðirnir starfa í því efnahagsumhverfi sem hér á landi ríkir, hvort sem þar er verðtrygging eða ekki. Soffía Karen Magnúsdóttir fagsviðsstjóri fiskeldis hjá Matvælastofnun Málaflokkurinn var færður frá Fiskistofu til Matvæla- stofnunar árið 2015, en frá þeim tíma hefur stofnunin aðeins gefið út eitt rekstrar- leyfi til sjókvíaeldis. Steingrímur J. Sigfússon þingmaður VG Þjóðin er búin að fá sig full- sadda af hátterni þeirra, hefur lært af reynslunni og sér ekkert grand í áfram- haldandi einkavæðingu. En, þá eru samt til ráð. Bara að þegja algerlega um slíkt fyrir kosningar, jafnvel tala fjálglega um nauðsyn þess að fjárfesta í innviðum sam- félagsins og aukinni velferð fyrir kosningar, en sæta svo lagi í skjóli valdanna eftir kosningar. AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR SKODA • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is 9 . m a í 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D a G U R18 s k o Ð U n ∙ F R É T T a B L a Ð I Ð 0 9 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C D 1 -2 F 3 0 1 C D 1 -2 D F 4 1 C D 1 -2 C B 8 1 C D 1 -2 B 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.