Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 6
L-Mesitran Náttúruleg sáragræðsla með hunangi - Fæst í apótekum - Hunangsplástur og sárakrem með hunangi. Hentar á allar tegundir sára. Plásturinn hentar vel á lítil yfirborðssár. Nauðsynlegur á sára hæla eftir göngur. www.wh.is Skemmtanir Árshátíðir Grímuböll Dimmisjón ofl. & ofl. Ykkar skemmtun.... ....okkar fókus www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is Yfir 300 vörutegundir fyrir veitingastaði, mötuneyti og fyrir þig ! Láttu okkur ráða Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is Þarftu að ráða? Iðnaðarmann Bílstjóra Bifvélavirkja Þjónustufólk Öryggisvörð Lagerstarfsmann Matreiðslumann Stigu þjóðlegan dans á Ingólfstorgi Í Verzlunarskólanum hafa skapast hefðir sem hefur verið haldið við árum saman. Ein þessara hefða er hinn árlegi peysufatadagur. Þá koma annars árs nemendur uppáklæddir í peysuföt, kjólföt og íslenska búninga. Hér sjáum við unga nemendur stíga þjóðlegan dans á Ingólfstorgi við harmóníkuspil. Fréttablaðið/antonbrink umhverfismál Hefja þarf uppbygg- ingu við Jökulsárlón frá grunni, en deilur undanfarinna ára hafa þýtt að þar hefur uppbygging setið á hakanum. Fyrstu skrefin eru að fjölga bílastæðum og byggja upp viðunandi salernisaðstöðu. Nauð- synlegar framkvæmdir strax í byrjun losa að öllum líkindum milljarðinn. Eins og kunnugt er liggur fyrir Alþingi frumvarp um breytingu á lögum um þjóðgarðinn á Þingvöll- um og lögum um Vatnajökulsþjóð- garð. Vatnajökulsþjóðgarði hefur verið falin umsjá jarðarinnar Fells (Jökulsárlón). Þess er vænst að jörð- in verði færð formlega undir þjóð- garðinn innan tíðar. Þar er fjallað um gjaldtöku innan þjóðgarðsins, nokkuð sem Landvernd hefur lagst gegn eins og kemur fram í umsögn við frumvarpið. Þórður H. Ólafsson, framkvæmda- stjóri Vatnajökulsþjóðgarðs, segir að leggja þurfi í miklar framkvæmdir, lítið sem ekkert hafi verið gert þar sem engin samstaða var um hvernig svæðið yrði þróað áfram. „Þarna þarf að byrja frá grunni. Við munum byrja á endurskoðun á deiliskipulaginu sem er í gildi, og sú vinna er þegar hafin. Svo munum við leggja fram hugmyndir um upp- byggingu. Fyrir eru litlir sem engir innviðir,“ segir Þórður. Þörfin á uppbyggingu er aðkall- andi, enda fjöldi ferðamanna við Jökulsárlón að stefna hraðbyri á milljónina. Því verður uppbygg- ingin kostnaðarsöm – Þórður nefnir milljarð króna sem útgangsstærð en bílastæði og salerni til bráðabirgða verða byggð strax á þessu ári. Þá þarf að reisa við lónið gestastofu sem ræður við fjöldann. „Þá eru ótaldir göngustígar og slíkt. Það er hluti af deiliskipulags- vinnunni og þeir geta þess vegna náð alla leið upp að jökli að austan- verðu. En salernismálin vega þungt, enda allt of bágborin aðstaða.“ Spurður hvort gjaldtaka sé ekki nauðsynleg í ljósi þess hversu mikið verk er fyrir höndum svarar Þórður því til að hann telji svo vera. „Þetta mun byggjast upp hraðar ef gjaldtaka kemur til, í stað þess að bíða eftir sérstökum framlögum á fjárlögum á hverju ári. Að mínu mati þarf þetta að gerast hratt, en engu að síður að vera vandað – enda er þessi staður svo sérstakur að þetta upp- byggingarstarf krefst þess að vandað sé til verka.“ svavar@frettabladid.is Byggja þarf upp frá grunni við Jökulsárlón Vegna deilna undanfarin ár hefur uppbygging við Jökulsárlón setið á hakanum. Ríkið á nú landið allt og ljóst að byggja þarf bílastæði, salerni, gestastofu og göngustíga. Milljarður er nefndur í kostnað – gjaldtaka sögð nauðsynleg. Ríkið keypti fyrir 1,5 milljarða í janúar l Kaup ríkisins á Felli í Suður- sveit gengu í gegn í janúar þegar ákveðið var að nýta for- kaupsrétt ríkisins á jörðinni. Landareignin verður hluti Vatnajökulsþjóðgarðs. l Var í því skyni tryggð fjár- heimild fyrir þeim í fjárauka- lögum ársins 2016. Kaupverð eignarinnar er 1.520 milljónir króna. l Til þessa hefur flókið eignar- hald á jörðinni Felli staðið þróun svæðisins fyrir þrifum en með kaupum ríkisins á landareigninni skapast mögu- leikar á að hefja nauðsynlega uppbyggingu svæðisins. l Nýverið samþykkti ríkis- stjórnin að unnið verði að tilnefningu Vatnajökulsþjóð- garðs sem náttúruminja á heimsminjaskrá UNESCO og má gera ráð fyrir að það styrki tilnefninguna til muna að Jökulsárlón verði hluti þjóð- garðsins. 9 . m a í 2 0 1 7 Þ r i Ð J u D a G u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð 0 9 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C D 1 -2 5 5 0 1 C D 1 -2 4 1 4 1 C D 1 -2 2 D 8 1 C D 1 -2 1 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.