Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 34
Sýningin byggist upp á hlutum úr eigin neyslu sem venjulega er hent, því sem gengur af,“ segir A ð a l st e i n n Þ ó r ss o n , myndlistar maður á Akur- eyri, um sýninguna Einkasafnið sem hann opnaði í Ketilhúsinu síðasta laugardag. Síðan lýsir hann því stuttlega sem þar ber fyrir augu. „Mesta áherslan er á klæðnað en þar eru líka sýnishorn af hinu og þessu, notaðir kaffipokar, umbúðir – staflar af umbúðum. Ég reyni að hafa þetta snyrtilegt og merki hve- nær verkið er innsiglað.“ Sýningin Einkasafnið er stöðu- taka í maí 2017 en um langtíma- verkefni er að ræða sem staðið hefur yfir frá 2002, að sögn Aðal- steins. Hann kveðst líka vera með ljósmyndir af ýmsu sem hann hefur búið til í sama anda og nefnir kaffipokafjall úti í náttúrunni. „Ég safnaði pokum og bjó til það sem ég kallaði píramída en var náttúr- lega haugur. Það tengist allt hug- myndinni um að kíkja á hvað gerist þegar eitthvað verður afgangs. Þetta safn stækkar jafnt og þétt en frekar rólega. En lífræni hlutinn er fyrst og fremst á ljósmyndum. Ég hef ekki farið út í að safna matarleifum í kringum mig hér í Ketilhúsinu. Þeim gæti fylgt lykt og líf !“ Aðalsteinn er þekktur fyrir fjöl- breytni í efnisnotkun og vinnu- brögðum. Hann lærði við Mynd- listaskólann á Akureyri og síðar í Hollandi þar sem hann útskrifaðist með Master of Arts gráðu frá Dutch Art Institute 1998. Hann hefur starf- að sem myndlistarmaður í Hollandi í nítján ár, lengst af í Rotterdam og þar urðu flest listaverkin til.  En í fyrravor flutti hann heim í Eyjafjörðinn, hvað kom til? „Það er bara skemmtilegra á Íslandi en úti. Stundum er gaman að kunna málið og hafa sama sans fyrir tilverunni og aðrir í sama umhverfi,“ svarar hann glaðlega. Þegar haft er orð á að hann hafi varðveitt vel norðlenska fram- burðinn og ætti að geta fallið inn í bæjarbraginn þess vegna segir hann: „Já, maður gerir það nú alltaf að ein- hverju leyti en sem listamaður líka svolítið á skjön.“ Sýningin Einkasafnið stendur til sunnudagsins 28. maí og verður opin þriðjudaga til sunnudaga frá klukkan 12 til 17. Aðgangur er ókeypis. gun@frettabladid.is Það er bara skemmtilegra á Íslandi en úti Umbúðir, notuð föt og fleira sem fallið hefur til í daglegu lífi listamannsins Aðalsteins Þórssonar um árin verður honum að yrkisefni eins og sýningin Einkasafnið í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, vitnar um. Aðalsteinn fluttur aftur í Eyjafjörðinn. Kaffipokar gegna þýðingarmiklu hlutverki á sýningu Aðalsteins. Spilda, eitt verkanna á sýningunni. Munir er meðal verka á Einka- safni Aðalsteins. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Ég hEf EKKi fArið út í Að sAfnA mAtAr- LEifUm í KringUm mig hÉr í KEtiLhúsinU. ÞEim gæti fyLgt LyKt og Líf! PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 71 89 1 Ertu í framkvæmdahug? Skoðaðu landsins mesta úrval af hellum og garðeiningum. GLEÐILEGT SUMAR á góðri innkeyrslu og fallegri verönd bmvalla.is Tvinnar saman stílhreinar útlínur og ölbreytta litamöguleika þar sem hver hella er tilbrigði við sama stef. Veranda 9 . m a í 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D a G U R26 m e n n I n G ∙ F R É T T a B L a Ð I Ð menning 0 9 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C D 1 -1 6 8 0 1 C D 1 -1 5 4 4 1 C D 1 -1 4 0 8 1 C D 1 -1 2 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.