Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 09.05.2017, Blaðsíða 40
Full búð af nýjum vörum! Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34 Síðan 1918 ALLIR ÚT AÐ HJÓLA MEÐ TUDOR TUDOR TUDOR Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Veldu öruggt start me ð TUDOR Eitt mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja Kool and the Gang þykir afburðagóð t ó n l e i ka sve i t o g mun 14 manna band halda uppi stuðinu í Eldborgarsal. En þeir sem vilja meira eftir tónleikana geta fjárfest í sérstökum partímiðum sem gilda í eftirpartí þar sem plötu- snúðurinn Daddi Disco mun þeyta skífum. Daddi er mikill aðdáandi Kool and the Gang og er hrikalega spenntur. „Þegar maður starfar svona mikið í tónlist er sjaldan sem maður verður heltekinn af einhverjum listamanni eða hljómsveit. En það eru örfáar sveitir sem hafa heltekið mig og Kool and the Gang er alveg klárlega ein af þeim sveitum.“ Spurður út í uppáhaldslög með sveitinni nefnir hann þrjú lög; Too Hot, Get Down on It og Stepping Out. Ótrúleg upplifun að sjá sveitina á sviði „Kool and the Gang hefur allt- af verið þekkt fyrir gríðarlega skemmtilega sviðsframkomu og þetta eru listamenn alveg fram í fingurgóma. Þeir leggja sig alla fram við að búa til alveg frábæra stemningu. Ég hef séð þá spila „live“ og það er ótrúleg upplifun að sjá hvernig þeir fara höndum um þessa tónlist. Þeir eru með fjórtán manna hljómsveit þegar þeir koma hingað sem þýðir að tónleikarnir verða settir fram á ótrúlega skemmtilegan hátt. Í þeirra risastóra lagabanka eru lög sem koma fólki alltaf í svaða- legan gír, þannig að maður sér fyrir sér að það getur enginn verið kyrr á tónleikunum. Það er alveg gríðar- lega skemmtilegt að fá að taka á móti stórum hóp fólks í eftirpartí sem er búinn að fá svona upp- hitun. Ég hætti ekkert fyrr en allar konurnar eru komnar úr skónum og allir karlarnir eru komnir með svitarönd í skyrtuna, bæði að aftan og framan.” Að lokum segir Daddi: „Sumar, þessi tónlist, Harpa. Þetta er blanda sem bara getur ekki klikkað!“ Sannkölluð Kool & the Gang var stofnuð árið 1969 og hefur síðan þá slegið í gegn með hverjum slagaranum á fætur öðrum. NORDICPHOTOS/GETTY Hér má sjá bassaleikarann Robert Bell, gítarleikarann Amir Bayyan og söngvarann og saxófónleikarann Ronald Bell á tónleikum í fyrra. NORDICPHOTOS/GETTY Ég hætti ekkert fyrr en allar konurnar eru komnar úr Skónum og allir karlarnir eru komnir með Svitarönd í Skyrtuna. diskóveisla í boði kool and the gang Í gær var tilkynnt að hljómsveitin goðsagna- kennda Kool and the Gang muni halda stór- tónleika fyrir landsmenn í Eldborgarsal í Hörpu í sumar. Hljómsveitin á sér ansi langa sögu og aðdáendur hennar eru orðnir ófáir enda hafa meðlimir sveitarinnar stundum verið kallaðir „konungar diskótónlistar“. Hljómsveitin Kool and the Gang var stofnuð á 7. áratug seinustu aldar og hefur starfað óslitið síðan og því er um sannkallaða reynslubolta að ræða. Sveitin á aragrúa af þekktum stuðlögum og þetta eru þau sem ber helst að nefna: Celebration Þetta lag kom út árið 1980 á sam- nefndri plötu. Boðskapur lagsins er einfaldlega að njóta og fagna góðum tímum. Fresh Þetta lag kemur út 1985 og byggir á slangri sem var vinsælt í vinahóp hjá J.T. Taylor, fyrrverandi aðal- söngvara sveitarinnar, en þá var gjarnan talað um að það sem væri flott væri „fresh“. Jungle Boogie Þetta lag var samið á einum degi, ásamt lögunum Hollywood Singing og Funky Stuff og kom út árið 1973. Lagið varð geysivinsælt á skemmtistöðum enda afar dans- vænt. Þess má geta að lagið kemur við sögu í kvikmyndinni Pulp Fiction frá árinu 1994. Ladies Night Lagið var gefið út árið 1979 og náði hratt og örugglega miklum vinsældum. Það komst í áttunda sæti á Billboard Hot 100 listann árið 1980. Get Down on It Kom út árið 1981 á platínum- plötunni Something Special. Lagið sló í gegn og komst til að mynda á vinsældarlista víða, meðal annars í Bretlandi og hékk þar inni í heilar tólf vikur. Cherish Kom út árið 1985 og skaust upp á vinsældarlista víða um heim. Lagið þykir virkilega rómantískt og hefur hljómað í ansi mörgum brúðkaupsveislum síðan það leit dagsins ljós. Nokkur vinsæl lög Kool and the Gang Guðný Hrönn gudnyhronn@365.is 9 . m a í 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D a G U R32 l í f I Ð ∙ f R É T T a B l a Ð I Ð Lífið 0 9 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C D 1 -1 1 9 0 1 C D 1 -1 0 5 4 1 C D 1 -0 F 1 8 1 C D 1 -0 D D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.