Fréttablaðið - 09.05.2017, Side 22
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is,
s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage,
johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is,
s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Lögin í ár eru mörg grípandi og bæði tilhlökkunarefni og heiður að deila sviði með jafn hæfileika-
ríku fólki. Svala er fagmaður fram í
fingurgóma og það er mikil nánd og
góður andi í hópnum. Þessi keppni er
oft óútreiknanleg en ég hef fulla trú
á íslenska framlaginu. Svala er engri
lík og ég er afar stolt af að vera hluti af
hópnum hennar.“ Mikið annríki og
fögnuður ríkir í Kænugarði en Anna
Sigga segir ekki þörf á að vera partíljón
til að standa vaktina.
„Það væri samt erfiðara að vera
heimakær, kvöldsvæf eða félagsfælin í
þessum aðstæðum. Dagskráin er mjög
þétt en skemmtileg og hver viðburður
tækifæri til að öðlast faglega reynslu,
skemmtilegar minningar og jafnvel
eignast nýja vini,“ segir Anna Sigga
sem upplifir Eurovision sem risastóra
tónlistarhátíð þar sem margir lista-
menn koma fram.
„Fagmennskan er í hverju horni og
gaman að fá innsýn í undirbúninginn,
umfangið og þá miklu vinnu sem fer
fram að tjaldabaki. Hér er mikið álag
á aðalsöngvurunum og margir leggja
ómælda vinnu í að kynna sig og fram-
lag sitt daga, vikur og jafnvel mánuði
fyrir keppni, ásamt því að leggja sig
fram um að vera landi sínu og þjóð til
sóma.“
Hún segir Kænugarð vera hrífandi,
gróna og gullfallega borg, fulla af
skemmtilega sýnilegum andstæðum.
„Hér mætist gamalt og nýtt –
Austur-Evrópa og Vesturlönd. Gest-
gjafarnir í ár láta sig öryggi keppenda
varða og vilja greinilega að fólk upplifi
Kænugarð sem örugga borg. Hún er
verulega stór og dreifð og gaman að
skoða mismunandi hluta og læra um
viðburðaríka sögu hennar. Úkraínu-
menn bjóða upp á frábæran mat og
fyrirtaks þjónustu, og fólkið er vina-
legt og hjálpsamt þótt mörgum reynist
það erfitt þar sem enska er fremur
óalgeng hér.“
Nemendurnir hvetjandi
Anna Sigga var sex ára þegar söng-
ferillinn hófst. Þá tók hún þátt í söng-
leiknum Salti söngbók en sá fágæti
söngleikur hefur verið endurútgefinn
á geisladisk.
„Síðan hef ég sungið víða með
kórum og hópum en einnig sem
einsöngvari í brúðkaupum og jarðar-
förum. Ég tók tvisvar þátt í Söng-
keppni framhaldsskólanna, árin 2001
og 2002, hef verið bakrödd hjá Kaleo
og Glowie og tekið þátt í mörgum
tónleikum, eins og Jólatónleikum
Fíladelfíu og Jólagestum Björgvins,“
segir Anna Sigga en það var einmitt
á Jólagestum Björgvins sem Svala
heillaðist af atriði Reykjavík Gospel
Company, þar sem Anna Sigga söng
undir stjórn Óskars Einarssonar.
„Ég hef alltaf verið Eurovision-
aðdáandi þótt ég geti ekki þulið upp
sigurvegara eða topp 10 ákveðinna
ára. Þetta er stærsta útsending tón-
listarviðburðar í heimi og ég hef mjög
gaman af keppninni. Ég vil endilega
njóta hennar með öðrum í Euro-
vision-partíi, svo lengi sem ég næ að
hlusta á lögin. Íslensku kynnarnir
eru líka alltaf svo þrusufyndnir og
orðheppnir að keppnin verður enn
skemmtilegri fyrir vikið.“
Anna Sigga er kennari í Austur-
bæjarskóla og segir nemendur hafa
sýnt mikinn áhuga og stuðning vegna
ferðar hennar utan.
„Börnin sýndu þessu mikinn skiln-
ing og mörg eru dugleg að senda mér
hvatningu á SnapChat. Þriggja vikna
aðskilnaður er langur tími, svo ég
tali nú ekki um í lok skólaárs, en þau
eru samviskusamir vinnuþjarkar og
í góðum, hæfum höndum. Ég hef því
engar áhyggjur af þessum elskum.“
Á kyrrðarstundir í sána
Eurovision er spennuþrunginn við-
burður sem tekur á tilfinningaskalann
og líkamlegt atgervi en Anna Sigga
segist vel undirbúin.
„Það er oft heilmikið álag í
söngnum, að ég tali nú ekki um að
fara í Eurovision sem einn af full-
trúum lands og þjóðar. Ég reyni alltaf
að vera vopnuð þakklæti og gleði fyrir
hvern þátt í ferlinu, sérstaklega þegar
togstreita á milli söngs, atvinnu og
fjölskyldu veldur of miklu álagi. Það
heldur huganum skýrum, fótunum á
jörðinni og hjartanu á réttum stað.“
Til að undirbúa líkama og sál tók
Anna Sigga mataræðið í gegn með
hjálp vinkonu sinnar og söngs-
ystur, Hrannar Sveinsdóttur í Crossfit
Reykjavík.
„Orkan, léttleikinn, sjálfsaginn og
líðanin sem ég uppskar af því er stór-
kostleg og gerði mig klára fyrir þessa
mjög svo skemmtilegu törn. Þá kíki
ég reglulega til Jóns Arnars á Kíró-
praktorstofu Íslands. Ég hugsa mikið
um heilsuna og les mér mikið til en er
ekki alltaf jafn dugleg að framkvæma.
Ég tek lýsi, omega 3, vítamín og AB-
gerla og reyni að koma inn hreyfingu
og teygjum þótt dagskráin sé
stundum fáránlega þétt. Ég er ferlegur
vökustaur og gleymi oft að drekka
nóg vatn en það eru bara sóknarfæri í
minni vegferð. Ég nota síðan teygjur,
nuddrúllu og nuddbolta mikið fyrir
þreytta vöðva.“
Til að hvíla sig á áreitinu í Eurovis-
ion hefur bakraddahópurinn verið
duglegur að taka söngæfingar inni
á hótelherbergi og daglegar WOD-
æfingar.
„Mér finnst gott að fá næði og vera
ein með sjálfri mér en það gefst lítill
tími til þess hér. Ég hef þó skellt mér
nokkrum sinnum í sána og átt þar
kyrrðarstund,“ segir Anna Sigga.
Snappar frá Kænugarði
Anna Sigga kveðst ekki verða tapsár ef
Ísland fer ekki áfram í kvöld.
„Alls ekki. Öll þessi reynsla er
ávinningur fyrir mig, hvernig sem
fer. Mér finnst Svala þó eiga fullt
erindi í úrslitin og þætti að sjálfsögðu
svekkjandi ef Evrópa væri ekki sam-
mála mér.“
En verður hún fegin því að koma
heim eða reiknar hún með fráhvarfs-
einkennum eftir keppnina í Kænu-
garði?
„Ég lifi mjög innihaldsríku lífi með
eiginmanni og börnum svo það verður
alltaf gott að komast í raunheima. Ég
mun þó án efa lifa svolítið á minning-
unum um þetta svakalega skemmti-
lega ferðalag sem Söngvakeppnin
heima og Eurovision hafa verið. Það
verður ef til vill skrýtnast að minnka
viðveruna á SnapChat en ég hef verið
þar undir songvannasigga og snappað
frá ferðinni. Það eru allir velkomnir að
kíkja með mér í ferðalagið þar inn á og
njóta þess sem eftir er af því.“
Framhald af forsíðu ➛
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Íslenski Eurovision-hópurinn sem fór utan til Úkraínu. Anna Sigga er lengst til
vinstri. MYND/DAVÍð LÚTHER
Kletthálsi 3 |110 Reykjavík | sími 540 4900
www.yamaha.is
UPPLIFÐU FRELSIÐ!
UPPLIFÐU FRELSIÐ Á YAMAHA MÓTORHJÓLI
Yamaha mótorhjólin eru þekkt fyrir gæði og einstaka
hönnun. Við eigum örugglega rétta hjólið fyrir þig!
TRACER 700 TRACER 900
WR450R XSR700XT1200Z SUPER TÉNÉRÉ YZF-R1M
2 KYNNINGARBLAð FÓLK 9 . m a Í 2 0 1 7 Þ R I ðJ U DAG U R
0
9
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
1
-1
6
8
0
1
C
D
1
-1
5
4
4
1
C
D
1
-1
4
0
8
1
C
D
1
-1
2
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K