Fréttablaðið - 09.05.2017, Qupperneq 14
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
Þorskstofninn hefur aldrei mælst stærri en við síðustu mælingar Hafrannsóknastofnunar. Það verður því að teljast afar líklegt að tillaga um viðbótarkvóta
komi fram fyrir næstu fiskveiðiár enda hefur kvótinn
nærri tvöfaldast síðustu tíu fiskveiðiár þrátt fyrir lakari
mælingar.
Ríkisstjórnin, með sjávarútvegsráðherra Viðreisnar
í fararbroddi málaflokksins, vill ekki breyta lögum um
fiskveiðistjórnun svo hægt sé að bjóða út viðbótarkvót-
ann. Þess vegna verður honum að óbreyttu skipt á milli
núverandi kvótaeigenda. Alþingi er í fullum rétti til að
stöðva þann gjafagjörning. Alþingi ætti að lögleiða rétt-
látari meðferð fiskveiðiauðlindarinnar fyrir hönd eigenda
hennar. Í það minnsta ætti að stöðva áform ríkisstjórnar-
innar um að færa viðbótarkvóta útgerðinni á silfurfati.
Með útboði á viðbótarkvóta fengist verðmæt reynsla af
útboðsleiðinni sem gæti nýst vel í viðræðum sáttanefndar
þeirrar sem sjávarútvegsráðherra hyggst skipa á næstunni
um fiskveiðistjórnunarkerfið. Með reglum um útboð væri
mögulegt að auðvelda aðkomu útgerða frá viðkvæmari
svæðum landsins, stuðla að nýliðun og vinna gegn sam-
þjöppun aflaheimilda.
Ef tækifærið er ekki nýtt verður það útboð sem fyrir
er styrkt enn frekar, þ.e.a.s. útboð á kvóta sem nú er í
höndum útgerðarinnar sjálfrar. Á þeim útboðsmarkaði
fór kílóið af þorski á 211 kr. í haust en gengur nú um
stundir á 180 kr. en 11 kr. renna til ríkissjóðs í formi veiði-
gjalds. Skólar og heilbrigðisstofnanir eru á sama tíma
í rekstrarvanda vegna fjárskorts og vegirnir að molna
undan okkur.
Hvers vegna ætli stjórnvöldum finnist mikilvægara að
færa útgerðinni viðbótarkvóta á spottprís frekar en að fá
fyrir hann markaðsverð og láta tekjurnar renna til vel-
ferðarþjónustu fyrir almenning? Hvort sagðist Viðreisn
fyrir kosningar ætla að gæta betur að sérhagsmunum eða
hag almennings? Þjóðin á þessa auðlind og á rétt á sann-
gjörnu gjaldi fyrir afnotaréttinn af henni.
Á dögunum átti ég samtal við sjávarútvegsráðherra og
þingflokksformann Viðreisnar um þessi mál í þinginu.
Báðar lofuðu þær nefndum en engum efndum og líklega
er það einmitt forsenda stjórnarsamstarfsins.
Fiskur á silfurfati
Hvers vegna
ætli stjórn-
völdum
finnist
mikilvægara
að færa út-
gerðinni við-
bótarkvóta
á spottprís
frekar en að
fá fyrir hann
markaðsverð
og láta tekj-
urnar renna
til velferðar-
þjónustu?
Oddný G.
Harðardóttir
formaður
þingflokks Sam-
fylkingarinnar
H E I L S U R Ú M
(*
Mi
ða
ð v
ið
12
má
na
ða
va
xta
lau
sa
n r
að
gr
eið
slu
sa
mn
ing
m
eð
3,
5%
lá
nt
ök
ug
jal
di
og
40
5 k
r. g
re
iðs
lug
jal
di)
A
R
G
H
!!!
1
90
41
7
VINSÆLU STILLANLEGU RÚMIN FRÁ
ERGOMOTION ERU KOMNIN AFTUR!
ERGOMOTION RÚM
MEÐ AVIANA ÞRÝSTIJÖFNUNAR-DÝNUM.
TVÍSKIPT HJÓNARÚM 160 EÐA 180X200 CM.
VERÐ FRÁ AÐEINS
30.583 kr. Á MÁNUÐI*
STAÐGREITT 349.899 kr.
Óheppileg ummæli
Flest bíðum við spennt eftir því að
Svala okkar Björgvinsdóttir stígi
á svið í Eurovision í kvöld með
lagið sitt Paper. Rætt var við þá
Gísla Martein Baldursson og Felix
Bergsson í Fréttablaðinu í gær, en
þeir eru báðir staddir í Kænugarði
þar sem keppnin fer fram. „Það
er alltaf gamla sagan að stærstu
listamennirnir eru ekki með
stjörnustæla en þeir sem spáð er
litlum frama eru svolítið þurrir og
leiðinlegir,“ sagði Gísli Marteinn.
Kannski pínulítið óheppileg
ummæli hjá sjónvarpsstjörnunni
í ljósi þess að okkar konu er
ekki spáð neitt sérstöku gengi í
keppninni.
Jafnlaunavottunin
Allt frá því að núverandi ríkis-
stjórn var mynduð hefur verið
vitað að Þorsteinn Víglundsson
velferðarráðherra myndi mæta
andbyr við að fá frumvarp um
jafnlaunavottun afgreitt á Alþingi,
jafnvel þótt um málið sé skrifað í
stjórnarsáttmála. Hver þingmaður
Sjálfstæðisflokksins á fætur öðrum
hefur lýst efasemdum um frum-
varpið. Hvort umsögn Staðlaráðs,
sem hannaði jafnlaunastaðalinn,
verði til þess að slá málið algjör-
lega út af borðinu skal ósagt látið.
En ætli sé ekki ekki hægt að taka
undir með Nichole Leigh Mosty,
varaformanni allsherjar- og
menntamálanefndar, sem segir í
Fréttablaðinu í dag að hugsanlega
sé rétt að fresta málinu.
jonhakon@frettabladid.is
Macron er af
sama sauða-
húsi og Justin
Trudeau og
Barack
Obama.
Hann er með
réttan kokteil
af mælsku og
sjarma.
IKEA-pólitík
Sigur Emmanuels Macron í forsetakosningunum í Frakklandi þýðir að Frexit er nær óhugsandi. Og þótt þjóðernispopúlisminn í Evrópu hafi ekki steytt á skeri hefur dregið úr slagkrafti hans alls staðar í álfunni.Ef til vill eru einfaldar skýringar á sigri
Macrons. Árangur hans er staðfesting þess að þrátt fyrir
stéttaólgu og ágreining um hugmyndastefnur er alltaf eftir-
spurn eftir hæfileikaríkum einstaklingum. Macron er af
sama sauðahúsi og Justin Trudeau og Barack Obama. Hann
er með réttan kokteil af mælsku og sjarma. Stefnan er nógu
mild og óljós þannig að flestir geta sætt sig við hana.
Macron hefði ekki unnið slíkan yfirburðasigur ef hann
hefði haft einhvern annan frambjóðanda en Marine Le
Pen á móti sér enda er hann ákaflega reynslulítill. Macron
er fínpússaður og sléttur. Settur á markað til að höfða til
sem flestra eins og pólitískt vörumerki. Hann er hvorki til
hægri né vinstri. Macron er IKEA stjórnmálanna, boðar
lausnir fyrir alla. Þetta gerir hann undir formerkjum
miðjusækinnar framfarahyggju eða sanngirnisstefnu,
hvað sem það nú þýðir. Stærsti kostur hans er samt sá að
hann er ekki Marine Le Pen og þess vegna bar hann sigur
úr býtum.
Ef Macron ætti sér hliðstæðu í íslenskum stjórnmálum
væri viðkomandi í Bjartri framtíð, Viðreisn og kannski
Samfylkingu Ingibjargar Sólrúnar eða Árna Páls Árna-
sonar á góðum degi. Í Bjarna Benediktssyni býr líka
lausnamiðuð taug sem er laus við hugmyndafræði.
Fólk eins og Macron er að finna í öllum flokkum í öllum
vestrænum ríkjum. Lausnamiðað fólk sem lætur ekki
stjórnast af hugmyndafræðilegu ofstæki heldur miklu
fremur stefnumálum sem þjóna hagsmunum heildarinn-
ar. Pólitík þessa fólks er alls ekki skýr og hún er ógegnsæ á
köflum. Loddarar þrífast vel undir merkjum slíkrar stefnu
en sé hún rekin heiðarlega er hún af hinu góða því hún
grundvallast á hagsmunum heildarinnar. Í fjölmenn-
ingarsamfélaginu er góð pólitík jafnvægislist ólíkra efna-
hagslegra, félagslegra og menningarlegra hagsmuna.
Breski 19. aldar heimspekingurinn Jeremy Bentham
sagði að stefna ríkisins, markaðarins og vísindasam-
félagsins ætti að grundvallast á því að hámarka hamingju
fjöldans. Stjórnmálamenn ættu að semja um frið, kaup-
sýslumenn ættu að stuðla að velmegun og fræðimenn
að stunda vísindarannsóknir. Ekki fyrir konunginn,
ættjörðina eða Guð heldur til að hámarka hamingju
almennings. IKEA-pólitíkin sem Macron boðar snýst um
praktískar lausnir án öfga. Því hægri- og vinstristefnur
geta báðar skaðað samfélagið sé þeim fylgt út fyrir ramma
meðalhófsins. Sósíalisminn var 20. aldar tilraun sem
misheppnaðist. Og hömlulaus frjálshyggja grefur undan
tilvist samfélagsins sjálfs.
Kjör Emmanuels Macron er gott fyrir Evrópu og gott
fyrir frið og stöðugleika. Kjósendur í Hollandi og Frakk-
landi stóðust lýðræðisprófið og jarðvegur haturs er ekki
jafn frjór og hann var áður. Útlendingaandúðin sem var
svo áberandi í álfunni í nokkur ár eftir alþjóðlegu fjár-
málakreppuna er vonandi að koðna niður. Eitt skref í
einu.
9 . m a í 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D a G U R14 s k o Ð U n ∙ F R É T T a B L a Ð I Ð
SKOÐUN
0
9
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
1
-0
7
B
0
1
C
D
1
-0
6
7
4
1
C
D
1
-0
5
3
8
1
C
D
1
-0
3
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K