Fréttablaðið - 09.05.2017, Side 24
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Við erum skráð sem hópur undir nafninu Bíddu eftir mér enda er hugmyndin að
fara af stað saman og koma saman
í mark,“ segir Guðrún Eyjólfsdóttir
þroskaþjálfi en hún og Einar
Hermann Einarsson leiðbeinandi
ætla að fylgja hópnum sem
samanstendur af fjórum hressum
einstaklingum. Það eru þeir Sigfús
S. Svanbergsson, Ari Viðar Hró-
bjartsson, Atli Már Indriðason og
Helgi Guðjónsson.
Sigfús er langreyndasti hlaupar-
inn af þeim fjórum enda hefur
hann tekið þátt í Reykjavíkur-
maraþoninu síðan 1989 og síðustu
ár hefur hann hlaupið fyrir hönd
Áss styrktarfélags. Hann segist
enda æfa reglulega, ganga og
hlaupa mjög mikið og fara margra
sinna ferða gangandi.
„Þetta er í fyrsta sinn sem sér-
stakur hópur hleypur undir nafni
Áss styrktarfélags,“ segir Guðrún
og Einar bætir við að í raun megi
upphafið að verkefninu rekja til
áhuga Sigfúsar. „Hann hefur verið
að kalla eftir þessu í nokkurn
Koma öll saman í mark
Hópur frá Ási styrktarfélagi ætlar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst undir nafninu
„Bíddu eftir mér“. Hlauparinn Kári Steinn Karlsson hitti hópinn á dögunum og fór yfir það sem
þarf að hafa í huga við þjálfunina. Hann segir reglulega hreyfingu mikilvægasta.
Kári Steinn með hópnum sem tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst
undir merkjum Áss styrktarfélags. Mynd/GVA
tíma. Síðan var ákveðið að taka
þetta inn í val í Vinnu og virkni
hjá styrktarfélaginu.“
Hópurinn ætlar að fara tíu kíló-
metra og því ekki úr vegi að byrja
að æfa. „Þetta er í annað sinn sem
við hittumst en við munum æfa
saman einu sinni í viku sem hópur
fram að hlaupi. Strákarnir æfa auk
þess hver fyrir sig heima,“ segir
Guðrún. Til þess að undirbúning-
urinn gengi sem best var ákveðið
að fá hlaupasérfræðinginn Kára
Stein til að gefa hlaupurunum
nokkur góð ráð.
„Ég fer yfir grunninn í hlaupa-
þjálfun en mitt helsta ráð er
regluleg hreyfing. Hún skiptir
mestu. Það skiptir ekki endilega
mestu hvað maður gerir heldur að
gera það oft og reglulega og helst
eitthvað á hverjum degi, þó ekki
sé nema 20 mínútna ganga,“ segir
Kári Steinn.
Eins og áður sagði hleypur
hópurinn undir merkjum Áss
styrktarfélags og því hægt að heita
á hlauparana á www.hlaupastyrk-
ur.is. En verður ágóðinn notaður í
eitthvað sérstakt? „Líklega verður
hann notaður til að byggja áfram
upp aðstöðu til heilsuræktar í
Bjarkarási og Lækjarási í Stjörnu-
grófinni en við munum nýta
okkur aðstöðuna þar við æfingar.
Til dæmis endum við hverja
æfingu á ferð í heita pottinn,“ segir
Guðrún glaðlega.
Ætlunin er að halda hópinn allt
hlaupið og ganga og hlaupa eftir
því sem þarf. „Þá er fólki auð-
vitað frjálst að slást í hópinn með
okkur allan tímann eða hluta af
leiðinni.“
Ás styrktarfélag
Ás styrktarfélag hefur frá upphafi
frá stonfun þess 1958, verið braut-
ryðjandi í þjónustu við fólk með
þroskahömlun. Ás styrktarfélag
er sjálfseignarstofnun og hefur í
gegnum árin komið á fót umfangs-
miklum rekstri. Í dag veitir Ás
styrktarfélag hátt á þriðja hundrað
manns þjónustu í formi búsetu, dag-
þjónustu, vinnu og virkni. Sjá nánar
um félagið á heimasíðu þess:
www.styrktarfelag.is
Mörgum finnst mexíkóskir réttir verða föstudags-matur. Aðrir segja að
pitsa sé hinn eini sanni föstudags-
matur. Það skiptir hins vegar engu
máli hvaða dagur er til að borða
eitthvað gott. Orðið Tex-Mex varð
fyrst frægt árið 1973 en það voru
Mexíkóar sem bjuggu í Texas sem
eiga heiðurinn af því. Texas var
hluti af Mexíkó í meira en 200 ár,
frá 1600-1836. Mexíkóar búa víða
í Bandaríkjunum og nú eru Kali-
fornía, Arizona og Nýja-Mexíkó
líka hluti af því sem er kallað Tex-
Mex. Margir vinsælir réttir eins og
chili con carne, nachos og taco eru
oft taldir týpískir Mexíkó-réttir
en þeir eru í raun Tex-Mex. Sömu
sögu er að segja um burritos og
fajitas.
Eurovision-dagur er auðvitað
kjörinn til að útbúa eitthvað sem
allri fjölskyldunni líkar. Best er að
gera matinn að mestu frá grunni,
þá er hann hollur og góður.
nachos
Það tekur ekki svo langan tíma að
útbúa nachos en flestum finnst
þessi réttur mjög góður. Það má
nota hvort sem er nautahakk eða
kjúklingastrimla í réttinn. Einnig
má sleppa kjöti og hafa meira
grænmeti í staðinn. Uppskriftin
er miðuð við tvo en auðvelt er að
stækka hana.
300 g nautahakk
½ laukur
½ chili-pipar, rauður
1 pk. taco-krydd
1 poki tortilla-nasl, 200 g
½ dós niðursoðnar, brúnar baunir
1 krukka salsa
½ blaðlaukur, smátt skorinn
1 dl rifinn ostur
Sýrður rjómi
Guacamole (lárperumauk)
Steikið hakk, smátt skorinn lauk og
chili-pipar á heitri pönnu. Bætið
við taco-kryddinu og smá vatni
eins og getið er um á umbúðum.
Síðan eru baunirnar settar út í.
Látið sjóða smá stund.
Setjið tortilla-naslið í eldfast mót
og setjið kjötblönduna yfir. Loks
er salsasósa sett yfir, blaðlaukur og
rifinn ostur. Setjið í 225°C heitan
ofn og bakið þar til osturinn er
bráðnaður.
Með þessu er gott að hafa auka
salsasósu, lárperumauk og sýrðan
rjóma.
Heimagert guacamole
Það er miklu betra að gera guaca-
mole frá grunni en að kaupa það
tilbúið. Notið vel þroskaðar lár-
perur. Þetta mauk passar líka vel
með grillréttum eða laxi.
2 lárperur
Límónusafi
1½ tómatur
1 hvítlauksrif, pressað
½ rauður chili-pipar, fræhreins-
aður og mjög smátt skorinn
2 msk. ferskt kóríander, smátt
skorið
Salt og pipar
Kljúfið lárperuna í tvennt. Takið
steininn varlega úr með því að
setja hnífinn í hann og snúa
smávegis. Þá ætti hann að losna.
Maukið lárperuna með gaffli og
kreistið límónusafa yfir. Skerið
tómatana mjög smátt og fræ-
hreinsið þá. Setjið bitana saman
við lárperumaukið ásamt pressuð-
um hvítlauk og chili. Bragðbætið
með salti og pipar. Geymið í ísskáp
þar til maturinn er tilbúinn.
Heimagert salsa
Þetta er mjög gott meðlæti með
nachos.
2 tómatar
½ agúrka
½ gul paprika
¼ ferskur ananas
4 msk. ferskt basil
Safi úr hálfri límónu
2 msk. ólífuolía
Salt og pipar
Skerið tómatana smátt og fræ-
hreinsið þá. Skrælið agúrkuna,
kljúfið hana í tvennt og takið kjarn-
ann úr með teskeið. Skerið gúrkuna
og paprikuna smátt og sömuleiðis
ananasinn. Límónusafa og olíu er
blandað saman við og loks basil.
Bragðbætið með salti og pipar.
Tex-Mex með Eurovision
nachos er alltaf vinsæll réttur hjá flestum aldurshópum.
MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
Hafðu samband
info@husavidgerdir.is
Sími 565-7070
Finndu okkur á
ALHLIÐA MÚRVERK
ÞAKVIÐGERÐIR
GLUGGASKIPTI
Fyrirtæki
& húsfélög
sláttur, garðhreinsun, sópun ofl.
554 1989
gardlist.is
Tunguhálsi 7, 110 Reykjavík
gardlist@gardlist.is
Þegar kemur að garðþjónustu erum við hjá Garðlist ávallt til þjónustu
reiðubúin hvort sem það er fyrir fyrirtæki, húsfélög, einkaaðila eða
sveitarfélög. Sláttur, garðhreinsun, klipping, sópun á plönum,
stéttahreinsun ofl.
4 KynnInGARBLAÐ FÓLK 9 . m a Í 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U dAG U R
0
9
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
1
-0
2
C
0
1
C
D
1
-0
1
8
4
1
C
D
1
-0
0
4
8
1
C
D
0
-F
F
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K