Norðurslóð - 14.12.1984, Blaðsíða 1
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ ★★★★★★★★★★★★★★
bær
Svarfdælsk byggð
8. árgangur
Föstudagur 14. desember 1984
9. tölublað
Jólablað
1984
„Sjá himins opnast hlið“
Sjá, himins opnast hlið,
heílagt englalið,
fylking sú hin fríða
úr fagnaðarins sal,
fer með boðun blíða
og blessun lýsa skal
yfir eymdadal.
Já, þakka, sál mín, þú,
þakka’ og lofsyng nú
fœddum friðargjafa,
þvífrelsari er hann þinn,
seg þú: ,,Hann skal hafa
œ hjá mér bústað sinn,
vinur velkominn'.
I heimi er dimmt og hljótt,
hjarðmenn sáu um nótt
Ijós í lofti glœðast,
það Ijós guðs dýrðar er,
hjörtu þeirra hrœðast,
en herrans engill tér:
,,Ottist ekki þér.
Með fegins fregn ég kem:
Fœðst I Betlehem
blessað barn það hefur,
er birtir guð á jörð,
frið og frelsi gefur
og fallna reisir hjörð.
Þökk sé guði gjörð“.
Ó, guðs hinn sanni son,
sigur, líf og von
rís með þér og rœtist,
þú réttlœtisins sól,
allt mitt angur bœtist,
þú ert mitt Ijós og skjól.
Eg held glaður jól.
A hœstri hátíð nú
hjartafólgin trú
honum fagni og hneigi,
af himni er kominn er,
sál og tunga segi
með sælum englaher:
,,Dýrð sé, drottinn, þér“.
Björn Halldórsson prestur í Laufási 1823-1882
Kirkjan í Laufási - sér til Upsastrandar. “ Ljósm. Jón Karl Snorrason.
★★★★★★★★
Jóladagbóh 1984
Messur um hátíðarnar í Dalvíkurprestakalli:
Á aðfangadag kl. 18.00 - aftansöngur á Dalvík.
Á jóladag kl. 13.30 - messað á Tjörn.
Á jóladag kl. 15.30 - messað á Urðum.
Annan jóladag kl. 11.00 - barnamessa á Dalvík.
Annan jóladag kl. 14.00 - messað á Völlum.
Annan jóladag kl. 16.00 - messað í Dalbæ.
Nýársdag kl. 17.00 - messað á Dalvík.
Jólatrésskemmtanir barnanna verða sem hér segir:
Á Þinghúsinu á Grund 28. des. kl. 13.30
Á Dalvík, Víkurröst 29.des. kl. 14.00 fyriryngri en 12
ára og kl. 21.00 fyrir 12 ára og eldri. Foreldrar eru
hvattir til að mæta með yngri börnunum.
Samkór Dalvíkur heldur jólatónleika í Víkurröst
fimmtud. 27. des. kl. 21.00. 30 barna kór frá
Tónlistarskóla Dalvíkur ásamt með hljóðfæra-
leikurum taka þátt í konsertinum.
Sunnudaginn 30. des. kl. 14.00 syngur kórinn í
Dalbæ. Á miðvikud. 19. og laugard. 22. syngur
kórinn á götum úti og við verslanir bæjarins.
Leikfélag Dalvíkur heldur kabarett í Samkomu-
húsinu á 2. dag jóla, 26. des. kl. 21.00.
Afgreiðslutími verslana á Dalvík um jólin:
Laugardag 15. des. verður opið frá kl. 10-18.
Fimmtudag 20 des. verður opið frá kl. 9-22.
Laugardag 22. des. verður opið frá kl. 10-23.
Aðfangadag 24. des. verður opið frá kl. 9-12.
Gamlársdag 31. des verður opið frá kl. 9-12.
Söluop verða lokuð á annan jóladag, sunnudag
30. desember, gamlársdag og nýársdag.
Jólasveinn:
Frést hefur af jólasveinum fram á Gljúfurárjökli á
leið til byggða. Reiknað er með að a.m.k. einn þeirra
„troði upp“ á svölum Kaupfélagsins sunnudaginn
16. des. kl. 15.00.
fiemmuM ái
^■★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★^ ★★★★★★★★★★★★★