Norðurslóð


Norðurslóð - 14.12.1984, Blaðsíða 3

Norðurslóð - 14.12.1984, Blaðsíða 3
Aðventukvöld í Tjamarkirkju 4. des. - börn úr Húsbakkaskóla Væntanleg fermingarbörn T.v. Hlýtt á sr. Þóri Stephensen, sem hélt ræðu kvöldsins. F.v. Kári Gestsson, Gerður Þorsteinsdóttir, Dagbjört Gunnlaugsd., sr. Stefán Snævarr, Valdemar Óskarss. form. og Gunnlaugur V. Snævarr. Stjórnandinn Colin P. Virr og undirleikarar, f.v. Gunnar Sigursteinsson, Arna Hafsteinsdóttir, Einar Arngrímsson. Sr. Þórir Stephensen. Gestir að heiman: Hallgrímur Hreinsson, Herdís Geirsd., Sigmar Pétursson, Sigurhjörtur Þórarins- son, Ríkharður Gestsson og Eiður Steingrímsson (hálfur). Kveðja á jólum Til íbúa Vallaprestakalls Lífslán og hamingja fólks kann á stundum að markast af því hverjir verða fyrir á veginum til að reynast þar samferða- menn. Engin verðmæti, sem okkur kunna að hlotnast á lífs- leiðinni, jafnast á við kynni, félagsskap og vináttu góðra mannai Orð verða fátækleg og duga skammt til að lýsa þakklæti okkar hjónanna fyrir þá gestrisni og hlýju og það manneskju- lega viðmót, sem mætti okkur óverðugum, sólbjörtu sumardagana fyrir norðan. Hugur okkar stóð sannarlega tii þess að fá að eignast samastað í fagurri byggð hjá góðu fólki, i nálægð við Qölskyldu og ástvini, og nýta þar menntun, reynslu og starfs- krafta alla i þágu þess málstaðar, sem dýrasturerájörð. Við þökkum í auðmýkt öllum þeim, sem sýndu okkur það traust að styðja þessi áform, og gáfu okkur auk heldur samfélag og vináttu, sem verður ávinningur þessara daga þegar fram líða stundir. Von mannkynsins er fólgin í friði, sátt og bræðralagi allra manna-Jesús Kristur boðar það blessað ííknarráð. Kirkja hans er vettVangur þeirra lífsins gilda, er ein megna að efla mennsku okkar, trú, von og kærleika. Við biðjum góðan Guð að blessa kirkjulegt starf í öllum sóknum Vallaprestakalls. Megi það ætíð vera blómlegt og gróskumikið og gefa ríkulegan ávöxt, mannlífi öllu til farsældar og Drottni til lofs og dýrðar. Bestu þakkir, góða fólk. Guð gefi ykkur öllum gleðilega jólahátíð og heili og blessun alla ókomna tíma. Jón Þorsteinsson. Sigríður Þórðardóttir. Fréttir í myndum Árshátíð Svarfdæla sunnan fjalla 10. nóv. ’84 Kór og kirkjugestir syngja. Samkór Dalvíkur á æfíngu. Upplýsingar gefur Júlíus Kristjánsson Hólavegi 7. Sími 6-12-18. Mynd 1. Hver er konan? Mynd 2. Mynd 3. Mynd 4. NORÐURSLÓÐ - 3

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.