Norðurslóð


Norðurslóð - 14.12.1984, Blaðsíða 25

Norðurslóð - 14.12.1984, Blaðsíða 25
Frh. af bls. 24. Helga, Matthíasar og Ottós á Daivík. Anno 1709. „Gæskuhláka nýársdag. - Vetur upp þaðan góður hvarvetna með hægum frostum og án jarðbanna. Voriö frá sumarmálum allgott alstaðar með snemmgæfum gras- vexti og miklum. Sumarið frá alþingi allgott hvar- vetna. Var heyskapur mikill og góður. Fiskiföng í líkara lagi norðanlands." Vallaannál. „Bólusóttin mikla er nú loks að mestu kulnuð út eftir nær fimm missera mannfall. Hefurekki önnur drepsótt jafn mannskæð herjað landiö, síðan svarti dauði fór yfir fyrir rneira en tvö hundruð árurn. Alls er talið að bólusóttin hal'i lagt átján þúsund manns í gröfina, eða um þriðjung þjóðarinnar." Oldin átjánda. „Haustiö gott hvervetna með lífvænlegum fiskifeng norðanlands. Vetur til jóla góður að mestu, kom snjór mikill nokkru fyrir jólin en batnaði þá. Hláka jólanótt með engri tungls- birtu og misjafnt þaðan af um jólin til nýárs." Vallaannáll. Anno 1710. „Fjúkslepja austan með blota nýársdag. Vetur upp þaðan ágæta góður um allt land, svo trautt mundu menn slíkan. Vorið frá sumarmálum til far- daga allgott, en þaðan af til Jóns- messu kalt og næðingssamt. Kippti því mjög fyrir grasvöxtinn, er þótti verða mundu I meira lagi, svo hann varð víðar í minna lagi, en óvíðar i meðallagi. Sumar frá alþingi gott og þurt mestan hluta með heyskap i minna lagi, en nýtingu góðri. Fiskur fyrir sunnan og norðan land. Haustið í mcðallagi með hretum og frostum undir veturinn, svo vötn og ár lagði. Vetur til jóla skorpusamur með áfreöjum og jarðbönnum. Fjúk- myglingúr með dimmviðri jólanótt og hart upp þaðan til nýársins." Vallaannáll. Anno „Bólan gekk í Ólafsfirði og fyrir norðan Reykjaheiði i Þingeyjar- þingi með sama mannduuða og annarsstaðar áriö fyrr, s\o og á Austljörðum. 29. janúar gerði mikla stórhríð er stóö í viku. Ruk þá hafís að landi. sást hunn 8. febr. en hann rak frá altur og varð aldrei landfastur um veturinn. Frh. af bls. 17. 88. Nói býr á hauöri Hátt hafs - um mýri vota ötull stýra þorir þrátt þóftu - dýrum - gota. 89. Nói Háa Hreysi frá happa gáir vinnu. Birni ráa beitir á bandið Þráins kvinnu. 90. Láp ég nefni. báran blá borðin þótti við kraumi, llóða stefnir lílnum sá fram úr Rauðastraumi. 91. Hjarðartanga heldur enn hann sem ellin þreytir. Marga svanga seður menn Sigurláinn heitir. Vor frá annari viku eltir sumar- mál, liart og kalt. 5. maí rak hafís til lands hvarvetna fyrir Norðurlandi. í vikunni eftir fardaga rak ísinn gerla frá landinu, svo hann sást eigi meir það ár. Skipkvæmt að venju kringum landið. Sumarið frá alþingi gott hvar- vetna með grasvexti bjarglegum, þó seint léti við, og heyskap I betra lagi, víðast með góðri nýtingu. Haustið all gott hvarvetna með hægri og kyrri veðráttu og lífvæn- legum fiskifeng fyrir norðan land. Vetur góður hvarvetna til jóla með hægðarhlákum, smáélum og kyrrfrostum. Hláka góð með tunglsbirtu jóla- nótt og veður æskilegt upp þaðan til nýárs. Vallaannáll. l’áll Kristjánsson. Ættfræði er merkileg vísinda- grein. Sumir segja að henni megi helst líkja við vanabind- andi fíkniefni. Sé maður einu sinni búinn aðsökkvasér niður í hana er hann háður henni það sem eftir er. Einn slíkur vor á meðal er Páll Kristjánsson búsettur í Karlsrauðatorgi 19, áður í Höf'n Dalvík. Móðir hans er Guðlaug dóttir Þorvaldar á Tungufelli sonar Baldvins á Böggvisstöð- um sonarSnjólaugará Krossum (dóttur sr. Baldvins á Upsum.) Krossaætt. í ofanskráðum þáttum leikur Páll sér að því að taka upp gleísur úr Vallaannál bæði tíðarfarslýsingar og mannalát og spinnur síðan ættartölur frá sumu því fólki yfir 280 ára tímabil allt til nútímafólks, scm enn gengur hér mitt á meðal vor. Vallaannáll er skrifaður af Eyjólfi Jónssyni „lærða", er prestur var á Völlum 1705-1745, og þykir merk heimild um síðari hluta 17. aldar og fyrri hluta þeirra 18. Það kom í Ijós í fyrra, að margir höfðu ánægju af ættar- tölupistlum Aðalbjargar Jóhannsdóttur í jólablaðinu 1983. Því dettur okkur í hug að þetta, sem frændi hennar hefur hér tekið saman, muni líka falla í góðan jarðveg hjá mörgurn lesendum okkar. Blaðið þakkar Páli framlagið. Ritstj. 92. Býlið hans við bæinn er breiðu kennt á fróni. Bóndinn góðar gál’ur ber græðis stýrir ljóni. I 93. Nói snriðavinnu vann vel með prýði stunda. Bæinn fríða heldur hann Hallinskíða kunda. 94. Lykta þannin Ijóðmælin. lítt á reisu heppinn. Kjalars hefur kuggur rninn kannað allan hreppinn. Liríkur I’álsson Gert eftir handriti, sem skrifað var í Heiðarhúsum (á Flateyjar- dalsheiði 26. júní 1853. Auglýsing um innheimtu þinggjalda á Akureyri, Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu. Síðasti gjalddagi þinggjalda 1984 varhinn 1. desember sl. Er því hér með skorað á alla gjaldendur þinggjalda á Akureyri, Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu er enn hafa ekki gert full skil, að greiða gjöldin nú þegar til embættisins, svo komist verði hjá óþægindum, kostnaði og frekari dráttarvöxtum er af vanskilum leiðir. Dráttarvextir eru nú 2,75% fyrir hvern vanskila- mánuð. Sömuleiðis eru kaupgreiðendur hér með minntir á að skila þegar til embættisins sköttum starfsmanna. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík. Sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu, 7. desember 1984. Dalvíkingar - Nágrannar Tilboð á vetrarskoðun bifreiða til áramóta. 1. Mótorstillingí38atriðum. 2. Vél þjöppumæld. 3. Rafgeymarog rafgeymasambönd ath. 4. Loftsíaathuguð. 5. Bensínsíaathuguð. 6. Smurolíamældogath. 7. Sjálfskiptiolíamældogath. 8. Vökvastýrisolíaath.ogmæld. 9. Viftureimath.ogstillt. 10. Ástandkælikerfisath. 11. Frostvari setturá rúðusprautu (frostvari innif.). 12. Rúðuþurkurath. 13. Vökviath.ákúplinguoghemlum. 14. Kúplingstilit. 15. Hemlarreyndir. ★ ★ ★ VERÐ 1.383. Einnig bjóðum við 20% afslátt af Ijósastillingu og jafnvægisstillingu hjólbarða. Bílaverkstæði Dalvíkur S.-61200. Frá Kjörmarkaði KEA Hrísalundi JÓLAINNKAUPIN ERU HAGSTÆÐARI I HRÍSALUNDI. JÓLAKERTIN A KJÖRMARKAÐSVERÐI. JÓLAKONFEKTIÐ A KJÖRMARKAÐSVERÐl. TILBOÐ I GANGI á ýmsum vörum ALLA DAGA TIL JÓLA. VERIÐ VELKOMIN í HRÍSAL UND. KJÖRMARKAÐUR KEA. Verslunin Sogn auglýsir Dalvíkingar - Svarfdælingar athugið að aðeins hjá okkur fáið þið fallegu jólakortin frá Dalvík og Svarfaðardal. Tilvalin vinarkveðja. Einnig vekjum við athygli ykkar á fjölbreyttu úrvali gjafavöru. Vorum m.a. að fá nýja tegund af Jittala glervörum og lömpum. Fatnaður á alla fjölskylduna og svo auðvitað nýjustu bæk- urnar og plöturnar. Leitið ekki langt yfir skammt. Verslunin Sogn. < i < i < i «. «. «i «. «. «. «. 1. «i <. «. «. «. «. «. «. s <• «i «. «. «. NORÐURSLOÐ - 25

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.