Fréttablaðið - 15.05.2017, Blaðsíða 2
Kr. 51.000,-
Verð aðeins
Greinakurlarar
Öflugir greinakurlarar - taka allt að 45 mm stofna
Model SDL 2800 EVO
Einfasa rafmótor 2800 W
Sjálfbrýnandi kurlaravals
Koma með safnkassa
Meðfærilegir
Auðveldir í allri notkun
Hljóðlátir
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Veður
Austlæg átt, víða 5-13 og úrkomu-
lítið. Vaxandi norðaustanátt og
fer að rigna um kvöldið, fyrst suð-
vestanlands. Sums staðar stormur
á Suðausturlandi og allra syðst.
sjá síðu 18
Viðskipti „Þetta er ekki eins og
gámaeiningar sem vinnuskúrar
eru gerðir úr, þetta eru raunveru-
lega einingar sem byggðar eru
úr sömu grind og gámar, það er
stálburðarvirki, svo er þetta klætt
að utan og klætt að innan – bara
nákvæmlega eins og hvert annað
herbergi,“ segir Ari Guðmunds-
son, sviðsstjóri hjá Verkís, en bæði
erlendir og innlendir aðilar skoða
nú að byggja hótel hér á landi úr
gámaeiningum. Ari segir jafnframt
að skoðað sé nú hvort slíkt bygg-
ingarefni myndi uppfylla íslenskar
byggingarreglugerðir.
Hann segir því töluverðan mun
á þessu og hefðbundnum hug-
myndum fólks þegar það heyrir
orðið gámur. „Þetta eru gámar sem
eru keyptir erlendis og eru full-
frágengnir að innan, jafnvel með
húsbúnaði líka. Þetta eru í raun og
veru fullfrágengnar húseiningar úr
stáli.“
Fara þarf í gegnum vottunarferli
á Íslandi. „Það er það sem fólk er að
vinna í núna, að afla frekari upp-
lýsinga um byggingarefnið sem er
í þessu og fara í gegnum það hvort
það stenst byggingarreglugerðir,“
segir hann.
Ari segir að þetta sé hugsað sem
bæði hagkvæmari og hraðari bygg-
ingaraðferð. „Lykillinn í þessu er að
við erum að skoða, af því að þetta
eru mismunandi einingar erlendis,
hvort þetta sé allt eitthvað sem
uppfyllir þau gæði sem við viljum
hafa hér á Íslandi og hvort þetta
uppfylli skilyrði byggingarreglu-
gerðar.“
Ari segir að hægt sé að byggja
töluvert stór hótel með þessu bygg-
ingarformi. „Menn eru að skoða
það að herbergisálmur á hótelum
séu gerðar úr þessu en móttökur og
annað byggt á hefðbundnari hátt,“
segir Ari.
Hann segir að búið sé að byggja
hótel úr svona einingum í Bret-
landi, Noregi og Svíþjóð. Hann
getur ekki sagt á þessari stundu
hvort þetta sé umhverfisvænna en
aðrar byggingar.
saeunn@frettabladid.is
Vilja byggja hótel úr
gámum hér á landi
Bæði innlendir og erlendir aðilar hafa uppi hugmyndir um að byggja hótel úr
svokölluðum gámaeiningum hér á landi. Sviðsstjóri hjá Verkís segir nú unnið
að því að skoða hvort byggingarefnið í gámunum standist íslenskar reglugerðir.
Marriott Courtyard í Ástralíu verður fyrsta gámahótelið á 25 hæðum.
Mynd/CIMC Modular BuIldIng SySteMS
Menn eru að skoða
það að herbergis-
álmur á hótelum séu gerðar
úr þessu en móttökur og
annað byggt á
hefðbundinn
hátt.
Ari Guðmundsson,
sviðsstjóri hjá
Verkís
samgöngur Nýtt skráningarkerfi
til að bæta afgreiðsluhraða í for-
skráningum bíla átti að vera komið
í gagnið á vormánuðum 2017. Það
hefur frestast og stefnt er að því að
það verði tekið í notkun í haust.
Fréttablaðið hefur undanfarna
daga greint frá ósætti bílasala og
annarra aðila við að biðtími eftir for-
skráningu nýrra bíla sé orðinn allt að
mánuður.
Í svari innanríkisráðuneytisins
við fyrirspurn Samtaka verslunar
og þjónustu (SVÞ) vegna tafa á for-
skráningu kom fram að Samgöngu-
stofa væri að leita leiða til að stytta
afgreiðslutímann til framtíðar með
því að gera skráningar rafrænar.
Kerfið átti að vera komið í gagnið á
vormánuðum, segir í svarinu.
„Þetta er þvert ofan í það sem okkur
var lofað, við höfðum staðfestingu
fyrir því úr ráðuneytinu að sett yrði
fjármagn í þetta til að tryggja að þetta
væri komið í gegn í vor, það hefur
ekki gengið í gegn og þess vegna er
ástandið eins og það er,“ segir Andrés
Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ.
Þórólfur Árnason, forstjóri Sam-
göngustofu, segir að aukinn mannafli
verði settur í að sinna forskráningum.
„Ég tók ákvörðun í vikunni um að
stofna til útgjalda þó ég hafi ekki
fjárheimildir fyrir því, því að þetta
er ástand sem er ekki ásættanlegt. Ég
er líka að setja í hugbúnaðarvinnu
umfram fjárheimildir, við vonum
að nýja kerfið verði þá komið með
haustinu,“ segir Þórólfur. – sg
Mikil töf hefur verið á afhendingu
innfluttra bíla. FréttaBlaðIð/gVa
Nýtt kerfi átti
að vera komið
Bandaríkin Leiðtogi demókrata
í öldungadeild Bandaríkjaþings,
Chuck Schumer, segir að Demókratar
íhugi að neita því að kjósa nýjan yfir-
mann FBI, alríkislögreglu Bandaríkj-
anna, fyrr en sérstakur saksóknari er
skipaður til að skoða tengsl Trumps
forseta við Rússland.
Samkvæmt frásögn Reuters liggur
ekki fyrir ákvörðun um hvað Demó-
kratar gera, en verið er að skoða
þetta ráð til að knýja á um rannsókn
á áhrifum Rússa á bandarísku forseta-
kosningarnar í haust.
Það vakti hörð viðbrögð í síðustu
viku þegar Trump rak James Comey,
yfirmann FBI. Stofnunin hefur verið
að rannsaka meint afskipti Rússa af
forsetakosningunum og mögulega
tengingu milli stjórnvalda í Moskvu
og framboðs Trump. – sg
Gætu hindrað
ráðningu
yfirmanns FBI
Tómar vinnuvélar við fjölfarinn veg
„Þetta er stórskrýtið. Ég keyrði þarna líka á föstudaginn og það var ekki einn maður sjáanlegur,“ segir Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins. Ekkert var unnið við framkvæmdir á Miklubraut í gær og stóðu vinnuvélar mannlausar. Einni akrein hefur verið lokað og er gert
ráð fyrir að loka fleiri akreinum í sumar. Áslaug bendir á að framkvæmdir í borginni kunni að valda miklum vandræðum. FréttaBlaðIð/anton BrInk
1 5 . m a í 2 0 1 7 m á n u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
1
5
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
A
-0
D
3
4
1
C
D
A
-0
B
F
8
1
C
D
A
-0
A
B
C
1
C
D
A
-0
9
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K