Norðurslóð


Norðurslóð - 16.12.1992, Qupperneq 10

Norðurslóð - 16.12.1992, Qupperneq 10
10 — NORÐURSLÓÐ víða að koma eftir að orð fór að fara af helgi hans og bænamætti. Höfðingjar kepptust við að bjóða honum heim og áriðl203 var hann gerður að biskupi á Hólum, þó sjálfur færðist hann heldur undan þeim vegsauka. I biskupstíð Guð- mundar var Sturlungaöldin í há- marki og var hann langt frá því að vera hlutlaus áhorfandi að þeim átökum. Saga Guðmundar góða er einhver dramatískasta örlagasaga íslandssögunnar, en verður ekki rakin hér. Höldum okkur við Upsir á Upsaströnd. Bjarni Pálsson í bókinni „Svarfdælingar" eru rak- in nöfn allra presta sem setið hafa Upsir frá siðaskiptum fram til 1851 þegar prestakallið var lagt niður. Er þar margt merkra presta. Um Pétur nokkum Jónsson sem prestur var á Upsum 1675-94 er til þessi undarlegi húsgangur: Séra Pétur sem var á Upsum kom seint í kífið, hárlaus og gamall, svo var hann sterkur í sönglistinni að alla stofuna œtlaði að rjúfa. 1712-31 var séra Páll Bjamason prestur á Upsum. Hann var merkisklerkur í alla staði en eink- um er hann þó frægur af syni sín- um Bjama Pálssyni fyrsta land- lækni íslands. Bjami fæddist að Upsum 12. maí 1719 einn af 16 systkinum. Þar af komust 12 á legg. Bjami var 12 ára þegar faðir hans lést frá eiginkonu, Sigríði Ás- mundsdóttur og stómm ungbama- hópi. Flutti Siríður þá að Karlsá og kom það í hlut Bjama að gerast fyrirvinna móður sinnar. „Þókti henni mikið vænt um son sinn, er hann var mjög eftir hennar geði, ráðgjörða-, framkvæmda- og út- réttingasamur, samt frískur og ör- uggur til lands og sjóar, var hann á summm formaður fyrir hákarla- og fiskibáti hennar..“ Svo segir í æfiágripi Bjama rituðu af Sveini Pálssyni tengdasyni hans og arf- taka í embætti landlæknis. Bjami hefur efalaust verið dugnaðarfork- ur og sjóhundur enda stutt að sækja fyrirmyndir á borð við Duggu-Eyvind sem smíðaði dugg- una sína í Karlsámausti nokkmm ámm áður en Bjami fæddist. Sá hefur vafalaust verið orðinn goð- sögn í lifanda lífi þegar Bami var að komast til manns enda stórbrot- inn ævintýra- og hugsjónamaður. En það er af Bjama af segja að eitt- hvað tafðist hann við læknanámið við að aðstoða móður sína að framfleyta fjölskyldunni. Um síðir lauk hann þó námi og varð síðar einn fremsti lærdómsmaður þjóð- arinnar, ferðaðist um landið ásamt með Eggerti Ólafssyni og lagði gmnninn að ferðabókinni frægu, ómetanlegri heimild um 18. öldina á íslandi. Síðar var hann gerður að fyrsta landlækni íslands eins og áður segir og bjó þá á Nesi við Sel- tjöm þar sem nú heitir Nesstofa. Upsa-Gunna Séra Baldvin Þorsteinsson var síð- asti prestur á Upsum frá 1813 til 1851 en þá var prestakallið lagt niður og Upsasókn bætt við Tjam- arprestakall. Baldvin var sonur séra Þorsteins í Stærra- Árskógi sem sömuleiðis var faðir þriggja annara presta; séra Stefáns á Völl- um, séra Kristjáns sem kom víða við en endaði einnig sem prestur á Völlum eftir bróður sinn, og séra Hallgríms á Hrauni (föður Jónasar skálds). 17. júlí 1834 varð sá válegi at- burður að Upsum að vinnustúlka, Guðrún Bjamadóttir að nafni, varð fyrir voðaskoti og lést. Gmnur féll á Hans Baldvinsson, son prests sem þá var 15 ára, að hann hefði af einhverjum stráksskap beint að henni hlaðinni byssunni og skotið hlaupið af. Guðrún var jörðuð þrem dögum eftir slysið en kvik- sagan var komin á kreik í Svarfað- Þannig litu Upsir út um síOustu aldamót. Myndin er af málverki Brimars Sigurjónssonar. Nú fyrir skömmu fluttu ábú- endur á Upsum, Páll Guð- mundsson og Baldvina Guð- mundsdóttir, í bæinn. Gamli Upsabærinn stendur eftir mannlaus og bíður örlaga sinna. í sjálfu sér er það ekki mikil frétt og engum kemur hún á óvart. En í Ijósi sögunnar má þó segja að um mikil tíma- mót sé að ræða því að á Upsum hefur verið búið óslitið frá landnámsöld að því best er vit- að en nú má telja harla ólíklegt að byggð festist aftur. Sögu Upsa sem bújarðar er allténd lokið. Frá fyrstu tíð voru Upsir eitt af höfuðbólum Svarfaðardals. Þar eru töluverðir landkostir, ágæt slægjulönd, mikið beitarland uppi á Upsadal og síðast en ekki síst út- ræði frá ströndinni og bjargræðið úr sjónum. Jafnan voru í Upsalandi nokkur hjáleigukot, oftast fjögur, og hétu þau ýmsum nöfnum í gegn um tíðina. Einu nafni voru þau kölluð Upsakotin. Miðkot var ein þessara hjáleiga (og má segja að nú hafi höfuðbólið og hjáleigan skipt um hlutverk þar sem búskap- urinn verður æ blómlegri hjá Haf- steini bónda). Þegar leið fram á þessa öld byggjast mörg smábýli á smáskikum út úr landi Upsa og Upsakotanna og saxaðist á Upsa- túnið gamla. Frá því Svarfaðar- dalshreppur keypti jörðina 1922 og eftir að hreppnum var skipt hef- ur jörðin varð eign Dalvíkur og leigð ábúendum. Nú hefur fram- leiðslurétturinn verið seldur og þar með er lokið hefðbundnum búskap á Upsum. I tilefni þessara tímamóta skul- um við sem snöggvast líta um öxl og rifjaupp nöfn og atburði sem tengjast sögu þessa höfuðbóls Upsastrandar. Upphaf byggðar Fyrsti bóndi á Upsum sem sögur fara af var Karl rauði sonur Þor- stein Svarfaðar landnámsmanns á Grund. Þangað flutti hann frá Grund að ráði deyjandi föður síns. Vildi gamli maðurinn með því móti forða frekari illindum milli hins uppivöðslusama sonar síns og Ljótólfs goða á Hofi. En það dugði þó skammt því aftur hófust illindin og Karl var að lokum veginn af mönnum Ljótólfs aðeins norðan Landnámsj ör ðin Upsir komin í eyði - Jörðin hefur verið setin í rúmt árþúsund - Hvað gerir Dalvíkurbær við hana? Svona litu Upsir út í sumar leiö. Mynd: Hafsteinn Pálsson við Karlsrauðatorgið á Dalvík. Þar lá hann grafinn ásamt skipi sínu þar til Daníel Bruun og Finnur Jónsson grófu hann upp í byrjun aldarinnar. Reyndar segir Svarf- dæla að hann hafi verið fluttur upp til Karlsár og grafinn þar en við skulum ekki láta einhverja smá- muni skemma fyrir okkur söguna. Nú liggur Karl suður á Þjóðminja- safni í glerskáp ásamt hundi sínum og ættu Dalvíkingar að fara reglu- lega þangað suður í pflagrímsferð- ir að skoða kappann. Sonur Karls; Karl inn ómáli bjó einnig á Upsum. Hann hafði þá köllun í lífinu að hefna föður síns. Mest lagði hann upp úr því að pína og kvelja Yngveldi fagurkinn sem á sínum tíma kom í veg fyrir að sættir tækjust með þeim Karli rauða og Ljótólfi. Drap Karl ungi frá henni synina einn af öðrum að henni ásjáandi, seldi hana síðan mansali í tvígang einhverjum bölvuðum föntum í útlöndum en var svo þess á milli hinn ástúðleg- asti við hana „ok gerði hana svá sæla sem þá, er hon var sælst“ seg- ir í Svarfdælu. Sumir segja að hún hafi að lokum „tortímt sér af óyndi“ og þykja það víst engum merkilegar fréttir. Guðmundur góði Kirkja hefur sjálfsagt verið reist að Upsum á fyrstu árum kristni í land- inu. Þær spruttu upp eins og gor- kúlur á öllum höfuðbólum þessa tíma enda gátu kirkjubændur grætt vel á kirkjum sínum. Fyrsti prestur á Upsum sem sögur fara af er ekki ómerkari maður en Guðmundur Arason síðar Hólabiskup - Guð- mundur hinn góði - heilagur mað- ur sem alltaf var að gera krafta- verk, lækna sjúka og hjálpa fátæk- um. í þann tíma héldust útsker eins og ísland á floti eingöngu fyrir bænir heilagra manna og munaði þar mestu um bænhita Guðmundar og lyftikraft andríkis hans. Um það vitnar Guðmundar saga Arasonar. Guðmundur kom að Upsum 1196 en hafði áður verið prestur á Völl- um. Á hvorugum staðnum stóð hann þó lengi við, því hann þurfti

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.