Norðurslóð - 16.12.1992, Page 19
NORÐURSLÓÐ —19
ÍSLENSKAR BARNABÆKUR
NÝ BÓK EFTIR GUÐRÚNU HELGADÓTTUR
Velkominn heim, Hannibal
Hansson er heillandi barnasaga
eftir hinn ástsæla rithöfimd Guðrúnu
Helgadóttur, sem nýverið hlaut
Norrænu barnabókaverðlaunin.
Sagan er fallega myndskreytt af Brian
Pilkington.
Hannibal litli Hansson er á
leiðinni heim til íslands eftir
dvöl í útlöndum. Þá lendir hann í
félagsskap skýjabarnanna kátu, sem
svífa um himininn, gusa rigningu
niður á jörðina og grípa málblómin
sem svífa upp til þeirra. Og
skýjabörnin hafa ýmislegt skrýtið að
segja honum um mannabörnin ...
1.280 krónur
1.280 krónur
SÍGILD BARNABÓK LOKSINS
FÁANLEG AFTUR
Sagan Helgi skoðar heiminn eftir Njörð P. Njarðvík,
með frábærum myndum Halldórs Péturssonar, hefur
lengi átt ómældum vinsældum að fagna meðal íslenskra
barna. Hún hefur verið ófáanleg um árabil, en nú er komin
ný útgáfa þessarar sígildu barnabókar, þar sem sögð er
skemmtilega sagan af fyrsta ferðalagi Helga litla út í hinn
stóra heim, ævintýrunum sem hann lenti í og öllum
dýrunum sem hann hitti. Helgi skoðar heiminn er
rammíslensk saga sem öll börn kunna að meta.
Falleg SAGA UM LÍTINN BANGSA
Litli skógarbjörninn var ekki lengur ein-
mana daginn sem hann hóf að smíða
sér hús. Oll dýrin þyrptust að til að hjálpa
honum; kýrnar, flóðhestarnir, hænurnar,
gíraffarnir ... Brátt var risið stórt og fallegt
hús og litli skógarbjörninn var afar glaður.
En fyrr en varði rann upp fyrir honum að
ekki er allt fengið með fínu húsi og fjölda
vina.
Litli skógarbjörninn eftir Illuga Jökulsson er
falleg saga, skemmtilega myndskreytt af
Gunnari Karlssyni myndlistarmanni.
IUUNN