Norðurslóð - 16.12.1992, Side 22
22 — NORÐURSLÓÐ
Jólasýning Dalvíkurskóla
- Spjallað við Arnar Símonarson
Næstkomandi föstudag, 18.
desember, munu nemendur í
Dalvíkurskóla bjóða bæjarbú-
um til skemmtunar í Ungó. Þar
mun skólakórinn syngja undir
stjórn Maríu Gunnarsdóttur,
nemendur í tónlistarskólanum
leika á hljóðfæri sín en aðal-
uppistaða samkomunnar verð-
ur í formi leiklistar. Nemendur
8., 9. og 10. bekkjar Dalvík-
urskóla munu þar flytja frum-
samda leikþætti undir stjórn
Arnars Símonarsonar. Tvær
skólasýningar verða kl. 10.00
og 14.00 en kl. 17.00 og 21.00
gefst almenningi kostur á að sjá
hvað krakkarnir hafa fram að
færa og verður aðgangseyrir
kr. 300.
Norðurslóð hafði samband við
Amar á dögunum til að forvitnast
um þessa „Jólasýningu Dalvíkur-
skóla“ og hagi hans sjálfs þessa
dagana.
- Þessi sýning er þannig til
komin að fyrr í haust var haldin
þemavika í Dalvíkurskóla þar sem
þemað var samskipti og vinátta. Þá
var skólastarfið brotið upp og
kennarar unnu með krökkunum
einhver verkefni sem tengdust
samskiptum, vináttu, kurteisi o.s.
frv. Við ákváðum síðan að vinna
einhverskonar leikþætti í fram-
haldi af þessari þemavinnu og
Tilvalin jólagjöf
Höfum til sölu
rúllukragaboli meö rennilás frá Benger.
í kragana er saumað DALVÍK.
Allar stærðir.
Bolirnir verða til sýnis í Versluninni Dröfn.
Fást hjá:
Jóhönnu, Böggvisbraut 17, ® 61663
Höbbu, Bjarkarbraut 21, ® 61816
Þórunni, Hólavegi 5, ® 61059
Skíöafélag Dalvíkur
Óskum landsmönnum
GLEÐILEGRA JÓLA
og farsæls
komandi árs
BLJNAÐARBANKI
ÍSLANDS
ÚTIBÚIÐ Á AKUREYRI
og afgreiðslan
verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð
stefndum semsagt á að enda vinn-
una á sýningu.
Ég hef síðan verið með krakk-
ana í tvo tíma í viku í leiklist. Hjá
mér tengist þetta raunar því námi
sem ég er í úti í Danmörku. Við
byrjuðum á hópefli og treystileikj-
um sem miða að því að efla hópinn
og treysta samskiptin. Síðan varð
textinn smám saman til.
Krakkamir fengu engan texta í
hendumar og hann er hvergi til á
blaði. Hann varð einfaldlega til í
frjálsum spuna á milli krakkanna
og festist smám saman í þeirri
mynd hann er nú. Mér finnst að
með því móti verði samtölin öll
eðlilegri og sýningin verður miklu
meira þeirra. Þessir krakkar eru al-
veg þrælduglegir og við náum
mjög vel saman.
Hvað eru þetta margir leikþœtt-
ir?
- Þetta em 4 hópar. 8. bekkur er
tvískiptur og er með tvö leikrit.
Þau fjalla um tvær fjölskyldur fyr-
ir jólin. Önnur fjölskyldan er fátæk
en hin í góðum efnum. 9. bekkur
vinnur út frá sjónvarpsþættinum
um Dalvík sem sýndur var í haust.
Þar er tekið fyrir bæjarlífið í hnot-
skum í formi fréttaþáttar. Þar heit-
ir bærinn reyndar Smalavík. 10.
bekkur er með leikrit sem er ekki
ósvipað Jólaævintýri Dickens. Það
fjallar um Betu gömlu sem er
skapill kerling en í draumi koma til
hennar 3 andar en um framhaldið
fá þeir að vita sem koma á sýning-
una.
Hefur þessi vinna skilað sér í
bættum samskiptum og aukinni
samkennd?
- Já, það finnst mér tvímæla-
laust. í vissum bekkjardeildum
hefur skapast mikil samkennd í
sambandi við þetta. Krakkamir
hjálpa hvert öðm og passa hvert
upp á annað.
Segðu okkur eitthvað meira um
þetta nám sem þú ert í í Dan-
mörku.
- Já, þessi vinna mín hér er í
rauninni lokaþjálfun í þessu námi
Bæjarstjórn Smalavíkur ræðir málin. 9. bekkingar sýna sjónvarpsþátt um
lífið í kunnuglegu plássi.
Arnar Símonarson í hópi 9. bekkinga sem voru að æfingum í Ungó þegar
ljósmyndara bar að garði. Mynd: -þh
mínu úti í Óðinsvéum. Danimir
kalla þetta að „dygtiggöre sig“ og
ég er sem sagt að „dygtiggöre
mig“ í leiklist með krökkunum. Ég
er að læra til þess sem heitir „fri-
tidspædagog" á dönsku og heitir
nú víst „samfélagsþjálfi" suður í
menntamálaráðuneyti. Þetta er í
rauninni hliðstætt nám og fóstm-
nám nema hvað við emm með ald-
ursstigið fyrir ofan fóstmmar,
krakka sem em 7 ára og eldri. Það
em eitthvað um 350 nemendur í
þessum skóla, bæði í fóstmnámi
og þessu samfélagsþjálfanámi.
Hvað tekur svo við hjá þér þeg-
ar þessu lýkur?
- Ég fer aftur út eftir áramót og
þá fer ég að skrifa lokaritgerð.
Þegar henni er lokið taka við próf
og þá er ég búinn. Núna hafa orðið
breytingar í skólakerfinu danska
og þetta nám er orðið þriggja og
hálfs til fjögurra ára nám svo ég
rétt slapp fyrir hom með að taka
það á 3 ámm. Síðan reikna ég með
því að koma heim og byrja að
vinna. Ekki fær maður vinnu í
Danmörku.
Kemur þú þá alla leið heim til
Dalvíkur?
- Ja, mig langar mest til þess.
Það er ekki ólíklegt ef ég fæ vinnu.
hjhj
Skíðasvæðið í Böggvis-
staðafjallið opnað
- Skíðafélagsmenn kætast yfir fannferginu.
eftir tvo snjóleysisvetur
Síðastliðinn fímmtudag, 10.
desember var skíðalyftan í
Böggvisstaðafjalli ræst og hef-
ur skíðasvæðið verið opið alla
daga eftir það. Dalvískir skíða-
unnendur eru að vonum hinir
kátustu eftir tvo snjóleysisvet-
ur í röð að fá nú allan þennan
snjó strax í desember.
Jóhann Bjamason formaður
Skíðafélagsins sagðist í fljótu
bragði ekki muna eftir því að lyft-
ur hefðu verið settar í gang svo
snemma áður. „Snjórinn er mjög
góður og skíðafærið eins og best
verður á kosið. Maður var orðinn
býsna svartsýnn í haust þegar
veðráttan virtist ætla að hegða sér
alveg eins og í fyrra. Fyrst komu
þessar ægilegu rigningar og loks
þegar fór að frysta var eins og hann
væri búinn með alla úrkomuna. En
að undanfömu hefur verðrið verið
eins og eftir pöntun. Frekar blaut
snjókoma féll á frosna jörð þannig
að snjórinn var þéttur í sér og síðan
hefur gert stutta hlýindakafla með
snjókomu á milli þannig að snjór-
inn er orðinn vel harður og myndar
fullkomið undirlag undir skíða-
snjóinn og fer ekki svo auðveld-
lega aftur. Þessa fyrstu daga hefur
aðsóknin verið mjög góð og skíða-
tímabilið leggst mjög vel í mig,“
sagði Jóhann.
Þessi góða byrjun kemur sér að
sjálfsögðu ákaflega vel fyrir
Skíðafélagið sem eins og allir vita
stendur fjárhagslega höllum fæti
eftir miklar fjárfestingar samfara
algeru snjóleysi í fyrra og hitteð-
fyrra. Stefnt er að því að hafa lyft-
umar opnar alla daga fram að jól-
um ef aðsóknin gefur tilefni til. Þá
er einnig meiningin að hafa opið
milli jóla og nýárs, dagana 26.-30.
des. frá kl. 13.00-17.00. Göngu-
brautir verða sömuleiðis troðnar á
svæðinu fyrir þá sem það kjósa.
Skíðaskálinn Brekkusel verður
sömuleiðis alltaf opinn þegar lyft-
ur em í gangi.
Skíðafélagið hyggst nú taka til
við að auglýsa svæðið, m.a. með
því að bjóða skólum að kaupa ein-
hvers konar skíðapakka þar sem
boðið verður upp á dvöl í Brekku-
seli með morgunverði og e.t.v. mat
ásamt með korti í lyftumar. Aætlað
er að senda slíkt tilboð til skóla hér
við Eyjafjörð og sjálfsagt víðar.
Það hljómar óneitanlega nokk-
uð kátbroslega en einmitt núna
þessa dagana þegar allt er komið á
kaf í snjó er snjóbyssan hans Jóns
Halldórssonar að koma til Dalvík-
ur. Hún verður væntanlega komin í
samband við brunahana uppi við
Kirkjubrekkuna og farin að fram-
leiða þar snjó þegar þetta blað
berst lesendum. Mest verður það
til að sýna bæjarbúum hvemig vél-
in virkar en ekki af því að þörfin sé
brýn akkúrat núna. En Jón fullyrð-
ir að byssan eigi eftir að sanna
ágæti sitt og gott verði að geta
gripið til hennar þegar þannig
standi á. hjhj