Fréttablaðið - 17.05.2017, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 17.05.2017, Blaðsíða 14
MERKIÐ MITT Skoðaðu litríkt úrval á bros.is Bros auglýsingavörur, Norðlingabraut 14. Bros auglýsingavörur með þínu merki www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is Yfir 300 vörutegundir fyrir veitingastaði, mötuneyti og fyrir þig ! 1 7 . m a í 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U R14 S p o R t ∙ F R É t t a B L a Ð I Ð sport GoLF Það var gott hljóðið í forsvars- mönnum Golfsambands Íslands á kynningarfundi fyrir Golfsumarið sem fór fram á Korpúlfsstöðum í gær. Ísland hefur líklega aldrei átt betri hóp af afrekskylfingum en auk þess hafa vorið og veturinn líka farið einstaklega vel með golf- vellina. „Þetta byrjar um næstu helgi á Suðurnesjunum með fyrsta mótinu á Eimskipsmótaröðinni. Við hlökk- um gríðarlega til en vellirnir koma vel undan vetri,“ segir Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri GSÍ. Fyrsta mótið í raun mót númer 3 Golftímabilið 2016-17 hófst í raun með tveimur mótum síðasta haust. Fyrsta mót sumarsins er því í raun þriðja mót tímabilsins en með þessu mynda menn mót hinna fjögurra fræknu hvert sumar þar sem aðeins góð spilamennska skilar kylfingum þátttökurétti. Átta mót telja til stiga- meistaratitils hjá körlum og konum en mótin hafa mismunandi vægi. Síðustu mótin á tímabilinu gefa fleiri stig en þau í upphafi. „Þetta kemur mjög vel út. Fólkið er enn að læra á þetta en þetta er komið til að vera og er mjög skemmtilegt fyrirkomulag,“ segir Brynjar en hvað er það besta við nýja formið? Með þá bestu á lokamótunum „Þú þarft að vinna þér inn rétt til að komast inn í þessi síðustu fjögur mót á árinu og þau mót eru fámenn en góðmenn. Þar erum við með okkar allra bestu kylfinga sem hafa lagt eitthvað á sig til að komast þangað. Við erum búin að einangra þá bestu og köllum þetta orðið mótaröð þeirra bestu,“ segir Brynjar. Fjögur síðustu mótin, Íslandsmót í höggleik og holukeppni, og loka- mótin tvö hafa nú fengið heitið hin fjögur fræknu upp á íslensku. Tvö fyrstu mót þessa tímabils fóru fram í Vestmannaeyjum og á Akranesi síðasta haust en þetta golfsumar byrjar á Hólmsvellinum á föstudaginn og veðurspáin er góð. Íslandsmótið í holukeppni fer fram í Vestmannaeyjum 23. til 25. júní og Íslandsmótið í höggleik verður á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði 20. til 23. júlí. Golfið með frábærar fyrirmyndir Það er meðbyr með íslensku golfi þessa dagana og Brynjar er mjög ánægður með þróun mála. „Það gengur ótrúlega vel hjá okkur í golfinu. Það gengur vel með vellina, það er að fjölga í hreyfingunni og við erum að sjá okkar besta afreksfólk blómstra og þá sérstaklega stelpurnar. Svo eru strákarnir að reyna að hlaupa á eftir þeim. Við erum komin með frábærar fyrirmyndir í þeim sem hafa náð að brjóta sig í gegn og eru kyndilberar fyrir okkur. Við eigum mikið af ungum stelpum og strákum í klúbbunum sem eru ótrúleg efni,“ segir Brynjar. Ísland á nú konur á bæði PGA-móta- röðinni (Ólafía Þórunn Kristins- dóttir) og Evrópumótaröðinni (Val- dís Þóra Jónsdóttir) og báðar hafa verið duglegar að skrifa íslenska golfsögu að undanförnu. Það kom fram á fundinum í gær að þær eiga nú möguleika á því að komast inn á Ólympíuleikana í Tókýó haldi þær áfram að standa sig svona vel. Strákarnir verða að taka sig á „Strákarnir verða að fara að taka sig á. Stelpurnar eru búnar að vera frábærar, bæði Valdís og Ólafía Þórunn. Við eigum fleiri stelpur og það er því von á fleirum í fremstu röð. Ég er alveg viss um að við sjáum það á næstu árum. Það er virkilega ánægjulegt hvað stelpurnar eru orðnar góðar og það hjálpar okkur líka að kveikja áhugann hjá konum almennt á íþróttinni,“ segir Brynjar.  ooj@frettabladid.is Fámennt en góðmennt á úrslitastundu í sumar GSÍ hefur sett saman úrvalshóp fjögurra golfmóta og þar munu úrslit Eimskips- mótaraðarinnar ráðast á þessu golfsumri sem hefst um helgina. „Við erum búin að einangra þá bestu,“ segir framkvæmdastjórinn Brynjar Eldon Geirsson. Við erum að sjá okkar besta afreks- fólk blómstra og þá sérstaklega stelpurnar. svo eru strákarnir að reyna að hlaupa á eftir þeim. Brynjar Eldon Geirsson Valsmenn í lykilstöðu Skothöndin munduð Valsmenn eru aðeins einum sigri frá því að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla eftir fimm marka sigur á FH- ingum, 24-29, í þriðja leik liðanna í gærkvöldi. Allir þrír leikirnir í úrslitaeinvíginu hafa unnist á útivelli. Anton Rúnarsson, sem sést hér láta vaða á markið, skoraði sex mörk fyrir Val í gær. Valsmenn fá tækifæri til að tryggja sér titilinn á heimavelli annað kvöld. Fréttablaðið/eyþór FH - Valur 24-29 Markahæstir: Ásbjörn Friðriksson 5/4, Einar Rafn Eiðsson 5, Arnar Freyr Ársælsson 4, Óðinn Þór Ríkharðsson 3, Gísli Þorgeir Krist- jánsson 3 - Anton Rúnarsson 6, Sveinn Aron Sveinsson 5, Heiðar Þór Aðalsteinsson 3/2, Orri Freyr Gíslason 3, Ólafur Ægir Ólafsson 3, Alexander Örn Júlíusson 3. Staðan er 2-1 fyrir Val. Nýjast Olís-deild karla - lokaúrslit Valur - Stjarnan 1-3 0-1 Sigrún Ella Einarsdóttir (4.), 1-1 Elín Metta Jensen (47.), 1-2 Katrín Ásbjörns- dóttir (60.), 1-3 Agla María Albersdóttir (62). Grindavík - ÍbV 0-4 0-1 Katie Kraeutner (2.), 0-2 Kristín Erna Sigurlásdóttir (41.), 0-3 Kristín Erna (56.), 0-4 Cloé Lacasse (64.). efri Þór/KA 12 Stjarnan 10 FH 9 Breiðablik 9 ÍBV 7 Neðri Grindavík 6 Valur 3 Fylkir 3 KR 0 Haukar 0 Pepsi-deild kvenna 18.35 S’oton - Man. United Sport 18.40 S.Wed. - Huddersf. Sport 3 18.50 Celta - real Madrid Sport 4 19.05 Fylkir - breiðablik Sport 2 20.45 Pepsi-mörk kvenna Sport 20.00 Fram - Stjarnan Framhús Í dag 1 7 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C E 0 -5 D 0 0 1 C E 0 -5 B C 4 1 C E 0 -5 A 8 8 1 C E 0 -5 9 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 1 6 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.