Fréttablaðið - 17.05.2017, Síða 18

Fréttablaðið - 17.05.2017, Síða 18
Svanhildur Nanna Vig-fúsdóttir, fjárfestir og stjórnar formaður trygg-ingafélagsins VÍS, segir að átta prósenta hlutur sem hún og eiginmaður henn- ar, Guðmundur Örn Þórðarson, eiga í Kviku banka sé langtímafjárfesting og að þau hafi ekki uppi nein áform um að selja þá eign. Markaðurinn hefur heimildir fyrir því að sumir stórir einkafjár- festar í hluthafahópi VÍS hafi hvatt Svanhildi til að selja hlutinn í Kviku til að friður skapist um störf stjórnar VÍS en hæfi hennar sem stjórnarfor- manns hefur verið dregið í efa vegna hagsmunatengsla við bæði VÍS og Kviku. Tryggingafélagið er stærsti eigandi bankans með 25 prósenta hlut. „Það sem er mikilvægast í þessum efnum er að hvorki stjórnarmenn, hluthafar eða aðrir séu með afskipti af eignum VÍS, og enn síður að þeir séu að skipta sér af mínum eigin fjárfestingum,“ segir Svanhildur í viðtali við Markaðinn þar sem hún ræðir þær deilur sem staðið hafa yfir innan stjórnar og hluthafahóps VÍS. Hún hafnar ásökunum fyrrverandi stjórnarformanns VÍS og fram- kvæmdastjóra Gildis um óeðlilega stjórnarhætti og segir þær fremur hljóma eins og „tylliástæða“ og ekki byggjast á neinum haldbærum rökum. Hjónin Svanhildur og Guðmund- ur hafa verið áberandi í íslensku viðskiptalífi á undanförnum árum og voru aðaleigendur olíufélagsins Skeljungs þegar það var selt með milljarðahagnaði í árslok 2013. Í kjölfarið fóru þau að beina sjónum sínum að VÍS og í dag eru þau á meðal stærstu hluthafa trygginga- félagsins með um átta prósenta eignarhlut. Fjárfestingafélag ykkar kemur fyrst inn í hluthafahóp VÍS haustið 2014 og í framhaldi af því farið þið að sækjast eftir áhrifum innan stjórnar félagsins. Af hverju ákváðuð þið að veðja á VÍS? „VÍS hafði verið kynnt fyrir okkur af fyrirtækjaráðgjöfum nokkurra fjármálafyrirtækja sem áhugaverð- ur fjárfestingakostur þegar hlutur eignaumsýslufélagsins Klakka var settur í sölu. Einn þessara ráðgjafa var með hóp áhugasamra kaupanda sem óskaði eftir því að í honum yrðu fjárfestar sem hefðu reynslu og þekkingu til að taka sæti í stjórn og vinna þar að hagsmunum félags- ins. Flestir á fjármálamarkaði voru sammála um að það væru augljós tækifæri sem lægju í rekstri VÍS en það vantaði kannski á þeim tíma- punkti kjölfestuhóp eigenda sem kæmu inn í félagið með sterka fram- tíðarsýn um hvað þyrfti að gera til að ná árangri. Við, eins og fleiri fjárfestar, sáum því fljótt að í VÍS leyndist óslíp- aður demantur. Það er mikið virði í sögu og starfsemi félagsins, öflugur hópur starfsmanna og verðmætur viðskiptamannagrunnur. Við slóg- um því til og keyptum í VÍS ásamt hópi fjárfesta. Í kjölfarið fórum við og hittum tvo af stærri hluthöfum félagsins á þeim tíma þar sem við kynntum þeim þá hugmynd að við myndum gefa kost á okkur í stjórn. Þar birtist okkur í fyrsta skipti mis- munur í viðhorfum til stjórnarstarfs fyrir félagið. Við vorum að bjóða fram krafta okkar til að starfa fyrir VÍS og í einfeldni okkar töldum við að víðtæk reynsla af umbreytingu fyrirtækja og stjórnunarstörf í fjár- málageiranum væri eftirsótt og gæti nýst félaginu. Þessum hluthöfum fannst við hins vegar vera að hrifsa til okkar völd, á meðan við vildum einfaldlega tryggja góðan rekstur.“ Skýrir það að einhverju leyti þann mikla óróa sem hefur einkennt stjórn og hluthafahóp VÍS síðustu misseri? Að sumir hluthafar líti svo á að þið séuð að „hrifsa til ykkar völd“ í krafti hlutfallslega lítils eignarhlutar? „Margir einkafjárfestar hafa komið auga á tækifærin sem leynast í VÍS og þeim hefur fjölgað mjög á síðustu árum. Eignarhlutur þeirra er orðinn óvenju hár miðað við mörg önnur félög og því er fullkomlega eðlilegt að kröfur til félagsins og stjórnarinnar hafi breyst. Við viljum einfaldlega að félagið nái góðum árangri og héldum við að það hlyti að vera markmið allra hluthafa, hvort sem þeir væru lífeyrissjóðir, fag- eða einkafjárfestar, að VÍS væri framsækið tryggingafélag sem starfsmenn, hluthafar og viðskipta- vinir gætu verið stoltir af. Um það eru langflestir sammála, hvaðan sem þeir koma, en í aðdraganda breytinga á stjórninni vanmátum við öll gamla varðhundinn sem gætir valdahagsmuna á kostnað arðsemissjónarmiða.“ Dýr viðskiptavinahópur Við sjáum að gengi bréfa VÍS hefur hækkað mun minna síðustu misseri í samanburði við hin tryggingafélögin á markaði. Hefur þessi ósamheldni í stjórn og hluthafahóp félagsins skaðað félagið? „Núverandi stjórn félagsins er mjög samstíga og samstarfið er gott. Eftir að fyrrverandi stjórnar- formaður, Herdís Dröfn Fjeldsted, gekk frá borði kom varamaður inn í stjórnina og það er mikill sam- hugur í þessum fimm manna hópi, enda hvílir sú ábyrgð á stjórnar- mönnum að sinna þeim skyldum sem þeir voru kosnir til. Hitt er rétt, að VÍS hefur verið eftirbátur sinna keppinauta á markaði undanfarin ár en ástæðan er fyrst og fremst sú að afkoman hefur verið undir vænt- ingum. Við viljum skila árangri og trúum því að markaðurinn muni meta hann með tíð og tíma. Í því samhengi trúi ég á mikilvægi þess að einkafjárfestir taki þátt í að móta stefnu félagsins en láti ekki óháðum stjórnarmönnum það eftir.“ Afkoma VÍS af bæði vátrygginga- og fjárfestingastarfseminni hefur verið lakari en hjá TM og Sjóvá. Hvernig hyggst ný stjórn bæta afkom- una? Tryggingarekstur einkennist almennt ekki af miklum breyt- ingum en í dag erum við sjá fram á miklar tækniframfarir sem munu umbylta því hvernig tryggingafélög starfa gagnvart neytendum á næstu árum. Meiri sjálfvirknivæðing, verðlagning og samskipti í gegnum snjallsímatæki og eins upplýsinga- söfnun um viðskiptavini í gegnum þessi sömu tæki er eitthvað sem þarf að eiga sér stað og þar er VÍS, ásamt kannski hinum íslensku trygginga- félögunum, ekki komið nægjanlega langt. Slík sjálfvirknivæðing á allri þjón- ustu, ef vel að henni er staðið, ætti þá að draga úr kostnaði en afkoma tryggingafélaganna af vátrygginga- starfseminni hefur verið talsvert daprari en við sjáum til dæmis á hinum Norðurlöndunum þar sem samsett hlutfall fyrirtækjanna er um 90 prósent. Hér hafa félögin verið nokkuð ánægð ef það er undir 100% og ekki er tap af trygginga- rekstrinum en oft hefur hlutfallið verið mun hærra. Þetta virðist vera eitthvað sem hefur með áhættu- mat á verðlagningu að gera sem við erum ekki að meta rétt gagn- vart viðskiptavininum. Við erum enn í dag að meta alla eins en með þeim upplýsingum sem við getum fengið í gegnum snjalltækin er hægt að fara raða viðskiptavinum í ólíka áhættuflokka. Þetta eru atriði sem eru gríðarlega mikilvæg í framtíð tryggingaþjónustu. Það sem er einnig áhyggjuefni í rekstri VÍS er hátt tjónahlutfall. Við verðum að greina nánar af hverju það er mun hærra hjá VÍS en hinum tryggingafélögunum á markaði, meðal annars hvort við séum með dýrari viðskiptavinahóp. Þá er það rétt að fjárfestingastarfsemin hefur ekki staðið undir væntingum og við þurfum að finna leiðir til að auka arðsemi af fjárfestingum félagsins.“ Kvika aðeins fjárfestingaeign VÍS hefur eignast um 25 prósenta hlut í Kviku fjárfestingabanka. Mörgum finnst ósennilegt að félag- ið ætli sér að vera með jafn stóra eign í banka sem einungis hluta af áhættudreifingu í fjárfestingabók VÍS. Stendur til að kaupa stærri hlut í bankanum og að það verði samstarf milli þessara félaga? „Kaup VÍS í Kviku gerast í tíð fyrri stjórnar og það var undir forystu fyrrverandi stjórnarformanns og forstjóra sem tekin var ákvörðun um að fjárfesta í Kviku. Núverandi stjórn vill leggja áherslu á kjarna- starfsemi félagsins og hlúa að inn- viðunum sem endurspeglast meðal annars í ráðningu á nýjum forstjóra, Helga Bjarnasyni, sem hefur gríðar- lega mikla þekkingu og reynslu á tryggingarekstri. Að vissu leyti er það áherslubreyt- ing þar sem fyrri stjórn og sumir af stærstu hluthöfum félagsins vildu horfa til þess að útvíkka starfsem- ina. Kvika er í dag skilgreind sem fjárfestingaeign og hún verður það áfram. Það eru vitaskuld tækifæri fólgin í samstarfi Kviku og VÍS á sviði fjármála- og tryggingaþjónustu en á þessum tímapunkti er að mínu viti mikilvægast að koma félaginu sjálfu upp úr gömlum hjólförum, bæta reksturinn og vinna skipulega fyrir hluthafa félagsins.“ En það er ekki aðeins VÍS sem á hlut í Kviku. Þú og eiginmaður þinn, sem situr í stjórn bankans, eigið átta prósent í Kviku. Er ekki augljós hætta á hagsmunaárekstri vegna þessara eignatengsla sem hefur áhrif á hæfi þitt sem stjórnarformaður? „Það gilda skýr lög og reglur um hagsmunatengsl í hlutafélögum sem ég hef fylgt í einu og öllu – og jafnvel gengið lengra en þörf krefur. Við höfum í gegnum tíðina verið að vinna í tveimur aðskildum eftirlits- skyldum félögum. Ég sé um fjárfest- ingu okkar í VÍS og hann um fjár- festingu okkar í Kviku. Við höfum skilið þarna á milli og kaup okkar í Kviku koma til áður en VÍS tekur ákvörðun um að fjárfesta í bankan- um. Þegar það koma upp mál á borð stjórnar sem tengjast félögum sem ég hef fjárfest í, eins og í Kviku, þá vík ég af fundi. Það hefur einu sinni gerst eftir að ný stjórn tók til starfa og þá fól ég varaformanni stjórnar, Helgu Hlín Hákonardóttur, stjórn á þeim fundi.“ Fyrrverandi stjórnarformaður VÍS hefur sakað þig um óeðlilega stjórnar hætti og að þú hafir viljað að stjórn félagsins myndi hafa aukna aðkomu að einstökum fjárfestingum félagsins. „Þær ávirðingar eru rakalausar. Ég vil að félagið einbeiti sér að sinni kjarnastarfsemi og það er hlutverk stjórnarinnar að styðja við félagið og leggja stóru línurnar. Stjórn VÍS mun ekki skipta sér af einstökum fjárfestingum félagsins. Svo ein- falt er það. Það kann að hafa verið raunin í tíð fyrri stjórnar, til dæmis með aðkomu fyrrverandi stjórnar- formanns að kaupunum í Kviku.“ En framkvæmdastjóri Gildis líf- eyrissjóðs, sem var þangað til fyrir skemmstu einn af stærstu hlut- höfum VÍS, hefur tekið í sama streng varðandi stjórnarhætti félagsins og sagt það ástæðu þess að sjóðurinn hefur minnkað verulega hlut sinn að undanförnu. „Forsvarsmenn þeirra sem hafa Óháðir stjórnarmenn móti ekki stefnu VÍS Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, nýr formaður VÍS, segir að hún hafi í aðdrag- anda breytinga á stjórninni vanmetið „gamla varðhundinn sem gæti valdahags- muna á kostnað arðsemissjónarmiða“. Hún ætlar ekki bregðast við gagnrýni um hæfi og selja í Kviku. Áhersla nýrrar stjórnar verður á tryggingastarfsemina. „Það er mikilvægt að stjórnarmenn, hluthafar eða aðrir séu ekki með afskipti af eignum VÍS, og enn síður að þeir skipti sér af mínum fjárfestingum.“ Fréttablaðið/anton brinK Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is  Í aðdraganda breytinga á stjórn- inni vanmátum við öll gamla varðhundinn sem gætir valdahagsmuna á kostnað arðsemissjónarmiða. 8% nemur hlutur félags hjónanna í Kviku en Guð- mundur tók nýlega sæti í stjórn bankans. 1 7 . m a í 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U R4 marKaðurinn 1 7 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C E 0 -6 B D 0 1 C E 0 -6 A 9 4 1 C E 0 -6 9 5 8 1 C E 0 -6 8 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 1 6 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.