Fréttablaðið - 17.05.2017, Page 49
TónlisT
HHHH Eldborg í Hörpu
fimmtudaginn 11. maí
Sinfóníuhljómsveit íslands flutti
verk eftir Fanny Mendelssohn,
Hafliða Hallgrímsson og Jean
Sibelius.
Stjórnandi: John Storgård, ein-
söngvari: Helena Juntunen.
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands á fimmtudagskvöldið hljóm-
aði fyrst verk eftir Fanny Mendels-
sohn, Forleikur í C-dúr. Hann var
sérlega fallegur. Heillandi heiðríkja,
yfirvegun og andakt var í tónmálinu,
en líka ákafur innileiki. Hljómsveitin
spilaði afar vel undir stjórn Johns
Storgård, heildarsvipurinn var vand-
virknislegur og þéttur, fágaður og hlýr.
Aðalatriðið á efnisskránni var næst,
nýtt verk eftir Hafliða Hallgrímsson,
Fimm söngvar fyrir sópran og hljóm-
sveit. Eins og nafnið ber með sér eru
ljóðin fimm og eru eftir William
Blake, Samuel Taylor Coleridge og
Christinu Rosetti. Í þeim er að finna
heimspekilegar, en tilfinninga-
þrungnar vangaveltur um lífið og
hvernig er best að lifa því.
Líkingamálið er margslungið,
þarna blæs vindur á aldinn sjóara,
sungið er um veru okkar í djúpinu
og hversu langt er til stjarnanna,
lítill drengur ákallar föður sinn í
örvæntingu, lífi mannsins er líkt
við brothætta tilveru flugu og horft
er inn í gleymsku fortíðarinnar þar
sem eilífðin skaut upp kollinum eitt
andartak.
Margræð og áhrifarík tónlist
Hafliði Hallgrímsson átti einkar
fallegt verk á tónleikum SÍ í síðustu
viku. Fréttablaðið/VilHelM
GRAND
HÓTEL
REYKJAVÍK
24.
maí
Ávarp ráðherra, umhverfis- og
auðlindamála
Björt Ólafsdóttir
Fundarstjóri:
Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís
-Stóra myndin-
Lífhagkerfið, tækifæri á tímum
efnahagslegra umbreytinga,
Sigríður Þormóðsdóttir, Innovation
Norway
Græðum við ekki nógu mikið
Róbert Guðfinnsson, athafnamaður
Lífauðlindir norðurlandanna
Dr. Daði Már Kristófersson, Háskóli Íslands
-ÁSkoranir-
aukaafurðir dýra – reglugerðir á
mannamáli
Guðrún Lind Rúnarsdóttir, Matvælastofnun
Skordýr og rófur
Búi Bjarmar Aðalsteinsson
Játningar skordýrabónda
Gylfi Ólafsson, Víur – Ræktunarfélag
um fóðurskordýr
- HÁdeGiSmatur í boði -
innblástur og vörukynningar frá
nýsköpunaraðilum á sviði sjávarút-
vegs, landbúnaðar, sláturiðnaðar
og matvælaframleiðslu!
-LauSnir oG nýSköpun-
auðlindatorgið – gagnvirk lausn til
að skapa verðmæti
Hildur Harðardóttir, Umhverfisstofnun
bestun á nýtni lífrænna
aukaafurða
ReSource International
Úr úrgangi í úrvalsvöru
Ágúst Torfi Hauksson, Norðlenska
Seyra í sókn
Magnús Jóhannsson, Landgræðsla
ríkisins
Fiskeldi, Getum við minnkað
umhverfisáhrifin?
Ragnheiður Þórarinsdóttir, Samrækt
er geitin illa nýtt og verðmæt
aukaafurð? Framtíð íslensku
geitarinnar: Listaháskóli Íslands
Dagskrá er frá kl. 9:00 – 14:00
Úrgangur í dag
auðlind á morgun
Ráðstefna um nýsköpun og lífrænar aukaafurðir
Skráning er hafin á
audlindatorg.is/radstefna
aðgangur
ókeypis
Í samstarfi við Bændasamtökin,
Fenúr, Landgræðslu ríkisins, Matís,
Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök
fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök
iðnaðarins og Sjávarklasann.
Ráðstefna um bætta nýtingu
lífrænna aukaafurða á Íslandi.
Ráðstefnan er lokaliður í for-
mennskuáætlun Íslands í Norrænu
ráðherranefndinni um Norræna
lífhagkerfið (NordBio). Markmið
NordBio er að gera Norðurlöndin
leiðandi í sjálfbærri framleiðslu
og nýtingu lífauðlinda í því skyni
að draga úr sóun og efla nýsköpun,
grænt atvinnulíf og byggðaþróun.
Í takt við þennan fjölbreytileika
var tónlistin margræð, hljómsveitin
fylgdi eftir merkingu hverrar ljóð-
línu og undirstrikaði hana á einkar
áhrifaríkan máta. Alls konar litir voru
í hljómsveitarröddinni, og þar var raf-
magnspíanó sérstaklega eftirtektar-
vert, en það var stundum í orgelstill-
ingu. Maður heyrir orgel sjaldan á
sinfóníutónleikum og notkun þess hér
var spennandi og skapaði sérkennilega
stemningu. Í heild var hljómsveitar-
röddin fremur ómstríð, en þó ekki
óþægilega, hún var fyrst og fremst
annarleg og hæfði þannig heimspeki-
legu inntaki ljóðanna prýðilega.
Helena Juntunen söng einsönginn
og gerði það af ótrúlegri fimi og glæsi-
leik. Röddin var í senn tær og kröftug,
auk þess sem öll túlkunin var gríðar-
lega lífleg og full af snerpu. Það var
dásamlegt að hlusta á hana syngja.
Fimm söngvar er án efa eitt besta
verk Hafliða. Honum lætur vel að
semja tónlist fyrir söngvara og kann
þá list betur en flestir að láta hljóm-
sveitin magna upp merkingu ljóðanna.
Það gerði hann á eftirminnilegan hátt í
Passíunni sinni sem undirritaður hélt
ekki vatni yfir á sínum tíma, og það
gerir hann líka hér.
Að lokum var flutt sjötta sinfónía
Sibeliusar. Um hana þarf ekki að hafa
mörg orð. Hún er átakalaus og ekki líkt
því eins safarík og margar aðrar sin-
fóníur tónskáldsins. Hljómsveitin lék
hana þó ágætlega en það dugði ekki til
að lyfta henni upp úr meðalmennsk-
unni. Nei, það var Hafliði sem átti
kvöldið og er honum hér með óskað
til hamingju með magnaða tónsmíð.
Jónas Sen
niðursTaða: Framúrskarandi
verk eftir Hafliða Hallgrímsson var
dulúðugt og himneskt.
Við erum að fagna orðlistinni alla daga
Það er því óhætt að segja að bók-
menntalífið í Reykjavík sé bæði
marglaga og margmála og með þess-
um viðburði erum að við að vekja
athygli á því,“ segir Lára og bætir við
að upplestrarnir fari fram á ensku
og tungumáli höfunda en áhersla
verði á ensku í spjallinu. „Þannig að
það má alveg segja að þetta sé svona
míní fjöltungumálahátíð. Við erum
svona að fagna orðlistinni eins og
alltaf en að þessu sinni með því að
tefla þessum tungumálum saman.
Við tökum þetta svo á næsta plan
með því að vera með panel á Borgar-
bókasafninu á fimmtudaginn. Þar
ætla þessir höfundar og fleiri að
ræða það hvernig það er að skrifa á
öðru tungumáli en talað er í landinu
sem þú býrð í. Ræða baráttuna fyrir
því að vera sýnilegur og fá rödd við
þær aðstæður.“
magnus@frettabladid.is
Fréttablaðið/VilHelM
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ðE r a l a 21m i ð V i K u D a g u r 1 7 . m a í 2 0 1 7
1
7
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
0
-8
9
7
0
1
C
E
0
-8
8
3
4
1
C
E
0
-8
6
F
8
1
C
E
0
-8
5
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K