Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Page 4
Á árinu 1995 í tilefni af 60 ára affnæli FLE kom út veglegt affnælisrit og var
því ritstýrt var af sérstakri ritnefnd sem í voru Hallgrímur Þorsteinsson,
Lárus Finnbogason og Sigurður Tómasson. Nefndin leitaði víða fanga og
gerði sögu félagsins svo og fræðilegu efni góð skil. Á ritnefndin þakkir
skildar íyrir gott starf. Affnælisritnefndin fékk sér til aðstoðar sérfróðan
útgáfustjóra Birgi Guðmundsson sem annaðist viðtöl, uppsetningu effiis og
ýmis tæknileg ffamkvæmdaatriði. Að fenginni góðri reynslu af störfum hans
var ákveðið að ráða Birgi til þess að hafa umsjón með útgáfu tímaritsins
Álits. Mun hann starfa í nánum tengslum við ritnefnd FLE varðandi alla
efnisöflun og útgáfumál.
Ritnefnd hefur ákveðið að breyta nokkuð um áherslur í efhisvali og
efnistökum tímaritsins og verða m.a. tekin viðtöl við menn um þau málefhi
sem helst eru á döfinni hverju sinni og snerta endurskoðendur og
starfsvettvang þeirra. I þessu tölublaði er m.a. birt viðtal við prófessor
Andrew Christie sem flutti okkur erindi á ráðstefiiu 26. apríl s.l. uin bætt
samskipti milli skattyfirvalda og skattgreiðenda í Bretlandi.
Bæði fyrrverandi formaður FLE, Þorsteinn Haraldsson og núverandi for-
maður Tryggvi Jónsson hafa lagt á það mikla áherslu að efla þurfi útgáfu og
kynningarmál félagsins. Koma þarf á framfæri upplýsingum um
endurskoðendur, störf þeirra og skyldur og leiðrétta ýmsar ranghugmyndir
um þessi störf. Auka þarf skrif um fagleg efhi og virkja félagsmenn betur til
að láta skoðanir sínar í ljós um efhi sem snerta störf okkar svo og málefhi
sem tengjast starfsgrein okkar. Liður í því er að láta þýða áhugaverðar
erlendar greinar sem eiga erindi við okkar lesendur. Ritnefhdin hefur jafn-
framt í hyggju að breyta nokkuð útliti og broti blaðsins og gera það meira
aðlaðandi fýrir stærri lesendahóp.
Rimefnd þakkar þeim sem nú hafa lagt til efni í blaðið og aðstoðað hafa
við útgáfu þess og vonast til að geta átt gott og árangursríkt samstarf við
félagsmenn á komandi misserum.
Reykjavík, ji'mí 1996