Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Page 15
Þorsteinn Haraldsson, endurskoðandi og Magnús Pétursson ráðstefnustjóri og ráðuneytisstjóri hlýða á A.j. Christie
símann og taka skilaboð. Eða þá hvernig þeir eru farn-
ir að orða bréfin sem þeir senda frá sér. Núna eru
yfirvöld öll af vilja gerð til að greiða úr málum manns,
sem er mikil breyting frá því sem var fyrir tíu árum eða
svo. Eflaust hefur einhverjum starfsmönnum skatt-
stofanna fundist þessi breyting til þess fallin að gera
þeim starfið erfiðara. I heildina hefur þó ekki borið
mikið á slíku og útkoman því sú, að í stað vinnubragða
sem voru hálfgert pukur eru öll samskipti miklu opn-
ari nú en áður. Vissulega eru ákveðin atriði í innan-
hússreglum skattrannsóknarmanna ekki opinber þó
flestar vinnureglur þeirra séu það. En engu að síður
hefur starf endurskoðandans sem skattráðgjafa, ein-
faldast mikið. A móti kemur auðvitað, að nú getur
þessi ráðgjafi ekki skákað í því skjóli að hann hafi ekki
vitað nákvæmlega eftir hvaða reglum er farið.“
Túlkun framtalsskyldunnar
Eitt af því sem fram kom í fyrirlestri Christie og
hann flokkaði sem vandamálasvæði í samskiptum
skattyfirvalda og endurskoðenda, var spurningin um
túlkun og skilgreiningu á framtalsskyldunni - hvað
ætti að telja fram og hversu ítarlegar upplýsingar þyrf-
tu að vera í framtalinu. Prófessor Christie bendir ein-
mitt á að fyrir skattráðgjafa geti það stundum valdið
óvissu við framtal að þeir hafa handbækur skattstof-
anna undir höndum. Þetta má rekja til þess að óhjá-
kvæmilega koma alltaf upp álitamál um hvers eðlis
ákveðin atriði eru í framtali. Framteljandinn kann að
hafa aðra túlkun á hlutunum en skattstofan. I slíkum
álitamálum hafa skattrannsóknarmenn jafhan bent á
að opinberlega liggi fyrir hvernig yfirvöld líti á málin
og því beri framteljendum að draga athygli sérstaklega
að þeim liðum sem túlkaðir eru á annan hátt en líklegt
er að skatturinn geri. Endurskoðandinn þarf því að
gera upp við sig hvort hann ætlar að fylgja sinni túlk-
un eða túlkun skattayfirvalda. I fyrirlestrinum á End-
urskoðendadegi tók prófessor Christie einmitt dæmi
af þeirri tilraun sem yfirvöld gerðu í hitteðfyrra til að
festa í lög, að ef framteljandi notfærði sér vafaatriði í
reglum eða lögum eða ef um túlkunaratriði var að
13