Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 39
Aðalfundur FLE 1995
Aðalfundur félags löggiltra endurskoðenda 1995 var
haldinn þann 17. nóvember 1995 á Hótel Ork í
Hveragerði. Formaður félagsins Þorsteinn Haralds-
son setti fundinn og var Arni Tómasson kosinn fund-
arstjóri og Hjördís Asberg fundaritari.
Þorsteinn Haraldsson flutti skýrslu stjórnar. I upp-
hafi nefndi hann að félagsmenn væru nú 212 talsins
eða jafnmargir og fyrir ári síðan. Hann minntist Odds
Péturssonar löggilts endurskoðanda sem lést á árinu
og heiðruðu fundarmenn minningu hans með því að
rísa úr sætum. Þorsteinn vísaði síðan til skýrslu stjórn-
ar til aðalfundar sem lægi frammi og þar væri starfsemi
félagsins rakin í aðalatriðum.
Guðmundur Þ. Frímannsson gerði grein fyrir árs-
reikningi félagsins fyrir árið 1994/1995.
Fundarstjóri bar skýrslu stjórnar og ársreikninginn
undir atkvæði og var reikningurinn samþykktur mót-
atkvæðalaust.
Skýrslur fastanefnda:
Alit.mefiid
Ef tekið er mið af þeim erindum sem borist hafa
álitsnefnd á undanförnum áram má skipta þeim í fjóra
flokka:
• Umsagnir um lagaframvörp að beiðni Alþingis.
• Umsagnir um einstök mál sem varða reiknings-
skilareglur og endurskoðun að beiðni félagsmanna,
stofnana, fyrirtækja eða samtaka þeirra.
• Kvartanir frá viðskiptamönnum endurskoðenda um
þjónustu þeirra og vinnubrögð.
• Urskurðir í klögunarmálum vegna meintra brota á
samskiptareglum félagsins.
Flest hafa erindin kornið frá Alþingi og er þar leitað
eftir umsögnum um einstök lagafrumvörp. Þrátt fyrir
að hér séu taldar upp umsagnir um vinnubrögð ein-
stakra endurskoðenda vegna kvartana frá viðskipta-
mönnum þeirra þá fjallar Alitsnefhd almennt ekki um
slík mál. Alitsnefhd hefur ekki úrskurðarvald að því er
varðar viðskipti einstakra félagsmanna og viðskipta-
manna þeirra. í nær öllum tilvikum hafa slík klögumál
verið lögð fyrir nefhdina með þeim hætti að hún hef-
ur orðið að vísa þeim frá. Formlegar kærar vegna
meintra brota á samskiptareglum FLE heyra til und-
antekninga.
A starfsárinu hefur Alitsnefnd haldið 5 bókaða fundi
og afgreitt 12 erindi.
Endurskoðunamefhd
Meginvinna nefhdarinnar á árinu fólst í að þýða og
staðfæra staðal Alþjóðlegu endurskoðunarnefhdarinn-
ar (IAPC) um: Aritanir endurskoðenda á reikningsskil,
um er að ræða viðamikinn staðal sem felur í sér grand-
vallarbreytingar. Litdð hefur verið til annarra Norður-
landa og tekið mið af breytingum og athugasemdum
sem þar hafa komið ffarn. Nefndin mun leggja fram til
kynningar tillögur sínar um leiðbeinandi reglur í þessu
efni á félagsfundi í nóvember, en stefht er að því að
ljúka afgreiðslu málsins í byrjun komandi árs.
Tveir nefndarmenn sóttu fund Norrænu endur-
skoðunarnefndarinnar (NRK) í Olsó dagana 18. og
19. ágúst.
A aðalfundi félagsins 1994 var Endurskoðunarnefnd
og Reikningsskilanefnd falið sameiginlega að þróa
áfram gæðaeftirlit með vinnu félagsmanna. Nefndirn-
ar skiluðu tillögum sínum um næstu skref til stjórnar
félagsins í sumar. I fyrstu er gerð könnun á vinnu fé-
lagsmanna við endurskoðun. Spurningalistar vora
sendir út í byrjun hausts og verða niðurstöður kynnt-
ar á félagsfundi í nóvember.
Menntunamefnd
Auk þess sem nefndin hefur unnið að skipulagningu
námskeiða í samvinnu við Endurmenntunarstofnun
Háskóla Islands, hefur hún skipulagt faglegt efhi og
annast um framkvæmd á ráðstefhum félagsins í sam-
ráði við stjórn þess. Um námskeiðin og ráðstefhurnar
hefur verið fjallað fyrr í skýrslunni.
Reiknmgsskilanefnd
I lok árs 1994 sendi Reikningsskilaráð nefhdinni til
37