Ráðunautafundur - 13.02.1979, Síða 36
194
1. tafla Tilraun nr. 136 -63 um yfirbreiðslu
búfjáráburðar á tún.
Akureyri Skriðukl. Hvanneyri Reykhólar
Nr. tilraunar 136-63 136-63 136-64 136-65
Txmabil 1963- '72 1963- '72 1966- '71 1965- '68
Eftirverkun mæld '73- '74 '73- '74 '72- '73
Búfj áráburður: Tegund Mykja Grindatað Mykj a Grindatað
Dreifingartími vor^ ) vor vor haust
Magn, tonn/ha 10,20 10,20 10,20 10,20
Meðalefnamagn :2) N 0,51 0,70 0,35 0,59
P 0 ,16 0,20 0 ,095 0 ,23
K 0,32 0,81 0,21 0,52
1) 1970-1972 var borið á að hausti
2) Hundraðshlutar í áburði að meðaltali.
(Aðeins efnagreiningar fyfir þrjú ár á Akureyri og
eitt ár á Reykhólum.)
Um niðurstðður
a) Vaxtarsvörun fyrir búfjáráburð.
Notagildi búfjáráburðar er metið út frá áhrifum á uppskeru
samanborið við tilbúinn áburð. Dregin er uppskerulína fyrir
uppskeru af reitum án áburðar og tilbúinn áburð eingöngu. Síðan
er gert ráð fyrir, að uppskera eftir búfjáráburð fylgi sömu
línu, og hlutfallsleg áburðaráhrif þannig fundin.
Vegna þess, að köfnunarefni hefur mest áhrif á uppskeru,
er í raun gert ráð fyrir, að uppskeruauki eftir búfjáráburð
samanborið við tilbúinn áburð ráðist af hlutfallslegri nýtingu
þessa efnis. Á 1. mynd er sýnd meðaluppskera tilraunaára, sem
fall af ábornu köfnunarefni á reitum með tilbúnum áburði, og
uppskera af reitum með búfjáráburð felld að þeirri línu