Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2016, Qupperneq 2
2 Fréttir Helgarblað 4.–7. mars 2016
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Hringdu í síma 581 3730
Nánari upplýsingar á jsb.is
E
F
LI
R
a
lm
an
na
te
ng
s l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s k
h
ön
nu
n
Vetrarkortið
Leggðu rækt við þig
og lifðu góðu lífi!
Velkomin í okkar hóp!
Óheppileg
myndbirting
Að gefnu tilefni er vert að taka
fram að mynd, sem birtist í
vikublaði DV á þriðjudag með
frétt, um hópslagsmál á Sel-
fossi tengdist fréttinni ekki.
Forstjórinn hækkaði
um verkamannalaun
n Mánaðarlaun forstjóra HB Granda hækkuðu um hundruð þúsunda milli ára
H
agnaður HB Granda nam
6,5 milljörðum í fyrra og
liggur tillaga fyrir aðalfund
fyrirtækisins um að greiða
hluthöfum rúma þrjá
milljarða króna í arð vegna síð-
asta árs. Forstjóri HB Granda nýtur
góðs af velgengninni en laun hans
hækkuðu um 18,5 prósent milli ára.
Hækkunin nemur hundruð þús-
unda króna á mánuði. Í fyrra urðu
hörð viðbrögð við þeirri ákvörðun
að hækka þóknun stjórnar HB
Granda um 33 prósent á sama
tíma og lagt var að starfsmönnum
fyrir tækisins og öðru verkafólki að
samþykkja hóflega 3,3 prósenta
hækkun.
Árslaun hækka um 18,5%
Samkvæmt nýbirtum ársreikn-
ingi HB Granda, sem gerir upp í
evrum, námu laun Vilhjálms 294
þúsund evrum á síðasta ári. Miðað
við meðal gengi evru í fyrra – sem
miðað er við í uppgjörinu – gerði
það 42,9 milljónir króna eða tæp-
ar 3.570 þúsund krónur á mánuði.
Það er umtalsverð hækkun frá fyrra
ári þegar árslaun forstjórans námu
248 þúsund evrum, sem á meðal-
gengi evru árið 2014 gerðu 38,2
milljónir króna eða 3.180 þúsund
krónur á mánuði. Hækkun heild-
arárslauna nema 18,5 prósentum.
Betri afkoma – hærri laun
Samkvæmt starfskjarastefnu HB
Granda skulu kjör forstjóra ávallt
vera samkeppnishæf á alþjóða-
markaði en þó ávallt taka mið af af-
komu félagsins. Þar segir að grunn-
laun forstjóra séu endurskoðuð
árlega með hliðsjón af mati starfs-
kjaranefndar af frammistöðu for-
stjóra, þróun launakjara almennt í
sambærilegum fyrir tækjum og af-
komu félagsins. Miðað við góða af-
komu HB Granda á undanförnum
árum þarf því ekki að koma á óvart
að árslaun forstjórans hafi hækkað
en árið 2013 námu þau 229 þúsund
evrum. Árið 2014 námu meðallaun
forstjóra þeirra fjórtán fyrirtækja
sem skráð voru í Kauphöll Íslands,
4,7 milljónum á mánuði. Ef haft er í
huga að mjög há mánaðarlaun for-
stjóra Össurar hífðu verulega upp
meðaltalið þá, má ætla að laun Vil-
hjálms séu í meðallagi miðað það
sem gengur og gerist innan fyrir-
tækja Kauphallarinnar.
Hallar á starfsmenn á plani
En þegar hækkun launa Vil-
hjálms milli ára er sett í samhengi
við hækkunina sem launþegar á
hinum almenna vinnumarkaði
fengu samkvæmt kjarasamning-
um í fyrra þá er ljóst að það hall-
ar mikið á fólkið á planinu. Mesta
hækkunin samkvæmt kjarasamn-
ingum í fyrra nam 7,2 prósent-
um fyrir starfsmann með 300 þús-
und krónur eða minna á mánuði.
Launahækkunin fer síðan stig-
lækkandi hjá þeim sem eru með
hærri laun en 300 þúsund og lækk-
ar jöfnum skrefum niður í 3,2 pró-
sent hjá fólki með 750 þúsund eða
meira í laun. Ein helsta krafan í
kjarabaráttunni í fyrra varðaði 300
þúsund króna lágmarkslaun. Mið-
að við hækkun mánaðarlauna for-
stjóra HB Granda upp á 390 þús-
und krónur milli ára má sjá að
laun hans hækkuðu sem nemur
launum eins verkamanns og rúm-
lega það.
Á við Verkalýðs-Nínu
„Ég er að fá útborgað 250 þúsund
krónur eftir skatt en þessi hækkun
er á við mánaðarlaun starfsmanns
sem er búinn að vinna í nokkur
ár, fyrir skatt,“ segir Jónína Björg
Magnúsdóttir, fiskvinnslukona hjá
HB Granda á Akranesi, sem fékk
viðurnefnið Verkalýðs-Nína vegna
vasklegrar framgöngu í kjarabar-
áttu verkafólks HB Granda í fyrra.
Nína sló í gegn þegar myndband
þar sem hún syngur hárbeittan
texta við lag Baggalúts, Mamma
þarf að djamma, fór í dreifingu
undir heitinu Sveiattan. Kveikjan
að laginu kom þegar Nína og sam-
starfsmenn hennar fengu íspinna
að launum fyrir vel unnin störf.
Lagið og athyglin sem það vakti
voru mikilvæg í kjarabaráttu Nínu
og félaga.
„Ég held að fólk sé þokka-
lega sátt við launin sín núna.
Eftir íspinnlagið hækkaði bón-
usinn eins og skot, en það er súrt
að segja frá því að það var búið að
berjast fyrir því í þrjú ár og þurfti
svona lag til að reka endahnútinn
á. Síðan kemur önnur leiðrétting
núna sem hækkar bónusinn enn
meira þannig að ég held að fólk
sé ekkert óánægt lengur. En þessi
hækkun er skondin,“ segir Nína
um launahækkun forstjóra HB
Granda í milli ára. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Góð afkoma HB Grandi hagnaðist um 6,5 milljarða króna í fyrra og stendur til að greiða hluthöfum rúma þrjá milljarða í arð. Vilhjálmur
Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, hefur notið góðs af góðu gengi. MyNd SiGtryGGur Ari
Baráttukona
Jónína Björg Magnúsdóttir
varð óvænt verkalýðshetja í
kjarabaráttu verkafólks í fyrra.
Hún bendir á að mánaðarleg
launahækkun forstjóra HB
Granda sé á við heildarmánaðar-
laun starfsmanns í fiskvinnslu.
MyNd SiGtryGGur Ari
„Þessi
hækkun
er skondin
Lést í vinnuslysi
Karl maður , sem slasaðist al var-
lega í vinnu slysi í síðustu viku, er
lát inn. Maðurinn var að störfum í
Gufunesi í Reykjavík um klukkan
tíu að morgni 25. febrúar, þegar
fiskikör féllu á hann við gömlu
Áburðar verk smiðjuna í Gufu nesi.
Hann var fluttur á slysadeild og
var á gjörgæsludeild Landspítal-
ans þegar hann lést.
Vara við
kattafló
Kattafló hefur nú greinst á fleiri
köttum á höfuðborgarsvæðinu.
Hætt er við að flóin sé útbreiddari
en talið hefur verið. Matvæla-
stofnun telur þó mögulegt að
uppræta flóna en til þess þarf
samstillt átak hunda- og katta-
eigenda. Sérstaka smitgát skal
viðhafa á dýrasýningum að mati
MAST. Það var miðborgarköttur
sem greindist með flóna á dögun-
um, en eigandi hans hafði ítrekað
farið með hann til dýralæknis til
að komast að því hvað amaði að
kettinum. Í ljósi greiningarinnar
nú er talið að líklegt að hann hafi
verið með flær um töluverðan
tíma. Erfitt getur reynst að finna
flærnar og losna við þær, en upp-
lýsingar til kattaeigenda má finna
á vef MAST.