Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Qupperneq 10
10 Fréttir Helgarblað 1.–4. apríl 2016
Fiskur er okkar fag
- Staður með alvöru útsýni
Opið allt árið, virka daga,
um helgar og á hátíðisdögum
Kaffi Duus v/ Smábátahöfnina í Keflavík - Aðeins 5 mínútur frá Leifstöð, lítið við í leiðinni • Sími: 421 7080 • duus@duus.is • Opið frá kl. 10:30 - 23:00 alla daga
Allt það besta í íslenskri og indverskri matargerð
T
ökulið frá CBS sjónvarps
stöðinni í Bandaríkjunum
hefur verið hér á landi frá
því á mánudag. Unnið var
að efni fyrir hinn vinsæla
fréttaskýringaþátt Sunday Morn
ing sem CBS sendir út á hverjum
sunnudegi. Reglulega horfa um sex
milljón manns á þáttinn og hef
ur mesta áhorf mælst 6,7 milljón
ir. Þátturinn er sá næstvinsælasti á
sínu sviði í Bandaríkjunum og að
eins 60 mínútur hafa meira áhorf.
Martha Teichner fréttamaður,
Mark Hutspeth umsjónarmaður
og Henry Bautista kvikmyndatöku
maður komu til Íslands og leitast
var við að svara spurningunni: Af
hverju var Ísland eina landið sem
ákvað að höfða mál gegn banka
mönnum, eftir hrunið?
Þetta er stór spurning og ræddu
þau meðal annars við Ólaf Hauks
son héraðssaksóknara, Katrínu
Jakobsdóttur, formann VG, Mar
inó G. Njálsson, fyrrverandi stjórn
armann í Hagsmunasamtökum
heimilanna, og Sigurð G. Guðjóns
son, lögmann og verjanda Sig
urjóns Árnasonar, fyrrverandi
bankastjóra Landsbankans.
Hvernig hefur Ísland breyst?
Þetta er í annað skipti sem Martha
Teichner kemur hingað til lands.
Fyrri heimsóknin var vorið 2004.
Þá kom hún á vegum Sunday
Morning til að gera almenna frétt
um Ísland. Fréttin var liður í um
fjöllun þáttarins um eyjar víðs
vegar um heim. Martha var mjög
hrifin af landi og þjóð. „Mín upplif
un á þeim tíma var að Íslendingar
væru millistéttarfólk upp til hópa.
Ég sá ekki margt sem benti til þess
að hér væri að finna auðmenn eða
mikla fátækt,“ sagði Martha í sam
tali við DV.
Hvað hefur breyst á þessum
tólf árum sem liðin eru frá því
að þú komst síðast? Hún þarf að
hugsa sig um. „Þetta er dálítið erf
ið spurning. Síðast var ég að gera
allt öðruvísi frétt um þetta land. Nú
sýnist mér mun meira af „hipp og
kúl“ byggingum og ég hef á tilfinn
ingunni að þið séu orðin fágaðri en
þegar ég kom í fyrra skiptið. En ég
var afskaplega þakklát fyrir að fá
tækifæri til að koma hingað aftur.“
En fyrir hvað stendur Ísland
í þínum huga? „Villt og hrífandi
landslag. Land sem er að vakna
betur til vitundar um eigin styrk
leika og ágæti á 21. öldinni. Sú
vakning hefur þó kostað mikil átök
og lærdómsríkar lexíur.“
Upplifði endalok Apartheit
Martha Teichner er gamalreynd í
hettunni og hefur starfað hjá CBS
í 39 ár. Þar af við Sunday Morn
ing í 22 ár. Hún hefur horft upp á
heiminn taka miklum breytingum.
Minnisstæðasta efni sem hún hef
ur fjallað um á löngum ferli er, án
efa í hennar huga, þegar Apartheit
eða aðskilnaðarstefnan var að
syngja sitt síðasta í SuðurAfríku.
„Ég var þar og þetta voru gríðar
legir umbrotatímar. Fólk sem við
ræddum við í fréttum á hverjum
degi var sjálfkrafa í lífshættu. Ég
og samstarfsfólk mitt var sammála
um að það væri áhættunnar virði
til að geta upplýst heiminn um
ástandið.“
Eitt viðtal = fjórar klukkustundir
Henry Bautista, kvikmyndatöku
maður hefur líka séð sitthvað
og farið um heiminn áratugum
saman og myndað stríð og stóra
viðburði. Hann var í Afganistan
og Persaflóastríðunum og Suður
Afríku, svo einhverjir staðir séu
nefndir.
Gríðarlegar kröfur eru gerðar af
hálfu CBS til fréttamanna og gæða
við upptökur. Þannig tók um eina
og hálfa klukkustund að koma
græjum fyrir áður en hægt var að
hefja sjálft viðtal. Viðtölin voru
löng. Tóku oft um einn og hálfan
klukkutíma og svo var að taka gír
inn niður. Þar fór aftur hálf önnur
klukkustund.
Martha vildi kaupa einhvers
konar lundaminjagrip áður en
haldið var heim. Við fórum í nokkr
ar lundabúðir á Laugaveginum en
þar var að hennar mati allt frekar
óspennandi. Að lokum keypti hún
lundaservíettur og hraunsalt til að
taka með heim. Hún var sátt. Ís
lenska lambið var á óskalistanum
frá því að hún kom síðast og ekki
var við annað komandi en að fá sér
huggulega lambasteik. Að lokum
heimtaði hún „fish and chips“. Allt
þetta var uppfyllt og allir fóru sátt
ir frá Íslandi.
Fréttin um Ísland og banka
mennina sem fóru í fangelsi og
spurningin; Af hverju fóru Ís
lendingar þessa leið, ein þjóða?,
verður að öllum líkindum á dag
skrá þann 10. apríl í þættinum
Sunday Morning. Þá munu sex og
hálf milljón Bandaríkjamanna fá
svarið við þeirri spurningu. Það er
að segja ef hægt er að svara henni
á einfaldan hátt? n
Af hverju fóru bankamenn í fangelsi?
n Fréttaskýringaþátturinn Sunday Morning veltir fyrir sér eftirmálum bankahrunsins á Íslandi n CBS í Bandaríkjunum ræddi m.a. við Ólaf Hauksson héraðssaksóknara
Eggert Skúlason
eggert@dv.is
Hugsað um útlitið Héraðssaksóknari fær smá púður áður en viðtalið hefst. Ólafur Hauksson er tilbúinn í viðtal. Martha Teichner er spyrill
og Henry Bautista kvikmyndatökumaður. Mynd EggErt SkúlASon„Fólk sem við ræddum
við í fréttum á hverjum
degi var sjálfkrafa í lífshættu