Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Blaðsíða 44
36 Lífsstíll Helgarblað 1.–4. apríl 2016
É
g var 16 ára þegar ég byrjaði að
reykja og eftir það var það bara
kók og sígó í öll mál,“ segir Rósa
Soffía Haraldsdóttir einkaþjálf-
ari, sem vakið hefur athygli á
samfélagsmiðlinum Snapchat fyrir
skemmtileg æfingamyndbönd og
persónulegt spjall. Blaðamaður hefur
fylgst með Rósu í gegnum Snapchat
um nokkurt skeið og það er nánast
óhugsandi að hún hafi nokkurn tíma
lifað jafn óheilbrigðu líferni og raun
ber vitni. Saga hennar sýnir að hver
sem er getur snúið við blaðinu. Að
mati blaðamanns stígur Rósa varla
feilspor þegar kemur að hinum heil-
brigða lífsstíl í dag, þótt hún fái sér
stöku sinnum pitsu eða nammi. „Ég
er alltaf með nammidag. Annars væri
ég löngu sprungin,“ segir hún hlæj-
andi þegar blaðamaður hefur dáðst
að staðfestunni.
Bætti á sig eftir barnsburð
Sem unglingur og langt fram á full-
orðinsár lifði Rósa bókstaflega á
kóki og sígarettum og hreyfði sig
lítið sem ekkert. Hún var mjög
grönn, enda borðaði hún aldrei
neinn mat að ráði. Hún var í raun
holdgervingur hins óheilbrigða
lífsstíls þrátt fyrir að það sæist ekki
endilega á henni.
Eftir að Rósa eignaðist dóttur
sína árið 2001 bætti hún á sig ein-
hverjum kílóum, en hún hafði
aldrei fyrr lent í slíku. Aldrei þurft
að hugsa um kílóin. „Þá fór ég að
fara einu sinni eða tvisvar í viku í
ræktina en var ekkert að borða að
ráði með. Ég fékk samt aldrei al-
mennilegan áhuga á þeim tíma.“
Það var ekki fyrr en Rósa hóf
nám á Bifröst árið 2005 að líkams-
ræktaráhuginn kviknaði. „Ég fór
að fara nánast daglega í ræktina og
þegar ég var byrjuð á því fór ég að
hugsa hvort það væri kannski snið-
ugt að hætta að reykja og fara að
borða einhvern mat.“
Fannst strax ógeðslegt að
hafa reykt
Hún fór þó hægt af stað. Byrjaði á
því að fá sér eina hrökkbrauðsneið
í morgunmat og svo vatt það upp á
sig í heilbrigðara líferni. „Að borða
morgunmat var eitthvað sem ég
hafði varla gert áður á ævi minni.
Ég fékk mér bara kók og sígó. Svo
ákvað ég að hætta að reykja, en ég
gerði það með margra mánaða fyr-
irvara. Ég ákvað að þegar ég væri
búin í jólaprófunum þá myndi ég
hætta. Þegar fór svo að líða að því
þá var ég eiginlega farin að hlakka
til að hætta að reykja. Ég taldi nið-
ur dagana. Það var ótrúlega skrýt-
ið,“ segir Rósa og hlær. Og þegar
hún hætti loks að reykja þá var hún
alveg hætt. „Ég labbaði út úr síðasta
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Sneri blaðinu við
Rósa komum öllum á
óvart, og sjálfri sér líka,
þegar hún fór að fara
daglega í ræktina og
hætti svo að reykja.
Mynd SigtRygguR ARi
n Rósa Soffía einkaþjálfari breytti um lífsstíl n Vekur athygli á Snapchat
Lifði á kóki og sígó
» Loftsíur
» Smurolíusíur
» Eldsneytissíur
» Kælivatnssíur
» Glussasíur
Baldwin® hefur sérhæft sig í
smur-, loft- og hráolíusíum.
Við bjóðum upp á Baldwin® síur í
flestar gerðir þungavinnu- og sjóvéla á
hagstæðum verðum.
Verkstæði og viðgerðarþjónusta
Aðalsmerki Bætis er verkstæðið og
viðgerðarþjónustan.
Á verkstæði okkar erum við með öll tæki
til endurbyggingar á allt að 1750 hestafla
vélum.
Túrbínur
Bætir ehf. býður upp
á viðgerðarþjónustu
fyrir flestar gerðir
túrbína. Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík