Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Blaðsíða 24
Helgarblað 1.–4. apríl 20164 Austurlenskur gæðamatur - Kynningarblað Á vormánuðum 2014 var skráður nýr og spennandi kafli í sögu Austur-Indía- fjelagsins þegar staðurinn var stækkaður og endur- gerður. Með þeim hætti var haldið upp á tuttugu farsæl ár í rekstrinum. Chandrika Gunnarsson, sem rekur Austur-Indíafjelagið, fræðir okkur um það að í tilefni tuttugu ára afmælis veitingastaðarins hafi þau hjónin farið til Indlands til að kaupa allt efni til endurbótanna auk ýmissa fallegra og einstakra hluta til þess að prýða staðinn: „Það gerðum við í samvinnu við enskan arkitekt sem þekkir mjög vel til indversks kúltúrs. Það var okkur mjög mikil- vægt að arkitektinn væri vel tengd- ur Indlandi. Allur viður hér innan- dyra kom frá Indlandi og er úr 150 ára gömlu húsi í Mumbai, og úr honum eru t.d. borðplöturnar og hurðirnar. Þar fengum við líka öll ljósin í loftinu. Við leituðumst við að hafa allt eins ekta og við gátum, sem næst upprunanum. Stækkunin gerði okkur kleift að opna setustofu fyrir 16–18 manns, en hún er afar notaleg með bróderuðum silkipúð- um og dulúðugu rökkri. Gestum okkar þykir huggulegt að fá sér for- drykk þar eða jafnvel njóta eftirrétta og kaffis í mjúkum sætunum. Við vildum, í tilefni afmælis- ins, bjóða gestum okkar upp á betrumbætt umhverfi. Hugmyndin er að þegar fólk stígur inn til okkar þá sé engu líkara en það sé komið til Indlands, upplifunin er slík,“ segir Chandrika brosandi. „Allt er öðru- vísi og framandi; seiðandi ilmur- inn, þjónustan og stemningin yfir- höfuð. Fólk kann líka einstaklega vel að meta næðið sem það hefur hér til þess að njóta máltíðar. Nú getum við líka stúkað af með fallegu hurðunum frá Indlandi og með þeim hætti myndað notalegan 25 manna sal, ef óskað er eftir því.“ Ferskt, sérinnflutt krydd „Það eru mjög fá veitingahús hér á landi sem hafa verið rekin á sömu kennitölu frá upphafi og við erum stolt af því að það er okkar veruleiki. Austur-Indíafjelaginu hefur ávallt gengið vel og þökkum við það fyrst og fremst tryggum gestum í gegn- um tíðina. Já, við kjósum að nota orðið gestir en ekki viðskiptavinir. Það endurspeglar gestrisni ind- versku þjóðarinnar og við leggj- um höfuðáherslu á gestrisni hér á veitingastaðnum okkar. Velgengni okkar felst ekki hvað síst í því að við kunnum að meta hvern einstakan gest. Fagmannlegu indversku þjónarnir sinna gestum okkar, en þeir hafa mjög mikla reynslu í starfi. Við erum enn með sömu kokka og hafa verið með okkur frá fyrsta degi, við vinnum öll saman eins og sam- heldin fjölskylda. Um þessar mundir stendur Holi- hátíðin yfir, sem er bæði uppskeru- hátíð og hylling litanna. Við erum því með sérstakan matseðil í gangi af því tilefni; tígrisrækjur í forrétt, lambakjöt, kjúkling og grænmetis- rétt í aðalrétt, borið fram með hrís- grjónum og naan-brauði og svo lýkur máltíðinni með eftirrétti. Allt krydd sem notað er á Austur-Indía- fjelaginu er innflutt af okkur og blandað á staðnum af kokkunum upp á indverskan máta – á hverjum degi er útbúin fersk blanda. Hreinn og tær ferskleiki er lykillinn að dá- samlega matnum okkar. Í eldhús- inu okkar eru engar sósur öðruvísi en þær sem eru útbúnar sérstaklega fyrir hverja einustu pöntun. Það er aldrei í boði hjá okkur að veita miðlungs þjónustu eða mat. Rekstur okkar stendur og fell- ur með því að gestirnir okkar komi aftur og aftur. Hver og einn einasti þeirra er afar mikilvægur. Þeir hafa verið besta auglýsing Austur-Indía- fjelagsins frá upphafi og kynnt orð- spor okkar víða. Fyrir það erum við mjög þakklát,“ segir Chandrika Gunnarsson og býður gesti innilega velkomna. n Austur-Indíafjelagið Hverfisgötu 56 101 Reykjavík Sími: 552-1630 austurindia@austurindia.is Opnunartími: Sunnudaga til fimmtudaga kl. 18.00–22.00. Föstu- daga og laugardaga kl. 18.00–23.00 Austur-Indíafjelagið – indversk gestrisni í hávegum höfð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.