Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Side 2
2 Fréttir Helgarblað 8.–11. apríl 2016
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Fyrir pallinn og stéttina
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
ODEN EÐAL OLÍA á palla.
Hágæða Silikonalkyd efni. 3 l.
4.390
Mako penslasett
590
Bio Kleen pallahreinsir
895
5 lítrar kr. 3.295
Landora tréolía
2.690
Meister fúgubursti með krók #4360430
2.690 (með auka vírbursta)
Lavor Galaxy 140
Háþrýstidæla
140 Max Bar
450 lítrar/klst
1900W
9 kg
19.990
Þrír starfsmenn í Sviss
til að meta kosti rafhjóla
n 280 milljóna tap undanfarin þrjú ár n Íslandspóstur hyggur á hagræðingu í dreifingu og fækkar fólki
Í
slandspóstur hefur unnið að
innleiðingu rafhjóla til póst-
dreifingar hérlendis undanfarin
misseri. Þrír starfsmenn fyrir-
tækisins eru staddir í Sviss þar
sem leggja á mat á hjól frá tveimur
söluaðilum. Heildarkostnaður við
ferðina er um 700 þúsund krónur.
Hið opinbera hlutafélag hefur ver-
ið rekið með samtals 280 milljóna
króna tapi undanfarin þrjú ár.
Fækka starfsfólki
Innleiðing rafhjóla hefur verið í
bígerð í nokkurn tíma hjá Íslands-
pósti. Um er að ræða rafknúin þrí-
hjól, eins konar þríhjólavespur,
sem eru allt að 200 kíló að þyngd.
Hjólin verða notuð í hefðbundna
póstdreifingu en einnig verður
hægt að nota tækin til þess að
flytja stærri sendingar ef þess ger-
ist þörf. Horft er til þess að fyrir-
tækið fjárfesti í 15 hjólum til að
byrja með en síðan er ætlunin að
fjárfesta í tugum slíkra hjóla ef
reynslan af þeim verður góð. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Íslands-
pósti er gert ráð fyrir að um tug-
milljóna króna fjárfestingu sé að
ræða sem til lengri tíma á að skila
hagræðingu. „Hagræðingin fel-
ur í sér að hægt verður að fækka
starfsfólki við dreifingu. Þá gera
rafhjólin vinnu starfsfólks við
dreifingu þægilegri en á sama tíma
auka þau yfirferð,“ segir Brynjar
Smári Rúnarsson, forstöðumaður
markaðs deildar Póstsins. Að sögn
Brynjars Smára er markmiðið að
nota rafmagnshjólin allt árið um
kring ef aðstæður leyfa. „Að okkar
mati er raunhæft markmið að nota
þau í 8–9 mánuði á ári.“
280 milljóna króna taprekstur
Rekstur Íslandspósts hefur verið
þungur síðastliðin ár. Eins og DV
greindi frá tapaði fyrirtækið 118
milljónum árið 2015 sem var um-
talsverð aukning frá fyrra ári. Árið
2014 var tapið 43 milljónir króna en
við það tækifæri sagði Ingimundur
Sigurpálsson, forstjóri Íslands-
póst, að rekstrarniðurstaðan væri
óviðunandi. „Töluvert vantar upp
á að rekstur félagsins skili þeim
hagnaði sem arðsemisstefna þess
gerir ráð fyrir. Miðað er við að
rekstur Íslandspósts skili eigend-
um viðunandi arði sem miðar við
að hagnaður sé árlega um 10%
af eigin fé og enn fremur að auka
verðmæti fyrir tækisins með því að
stuðla að arðbærum vexti,“ sagði
Ingimundur. Árið 2013 hafði Ís-
landspóstur tapað 119 milljónum
króna og því hefur fyrirtækið tapað
um 280 milljónum króna á síðustu
þremur árum.
Fyllsta aðhald haft í huga
„Útgjöld fyrir þetta verkefni eru
metin eins og önnur útgjöld, með
fyllsta aðhald í huga,“ segir Brynjar
Smári, aðspurður hvort réttlæt-
anlegt sé að Íslandspóstur kosti
miklu til í slíka ferð. Áætlað er að
kostnaður við ferðina sé 700 þús-
und krónur og varir hún í fimm
daga, frá þriðjudegi til laugar-
dags. „Það var tekin ákvörðun
um að senda þá þrjá starfsmenn
sem hafa unnið að innleiðingu
á nýjum rafhjólum til notkunar í
dreifingu. Meðal þessara þriggja
starfsmanna eru tveir lykilmenn í
dreifingu fyrir tækisins og formað-
ur umhverfisnefndar sem er að
kynna sér þá umhverfislegu þætti
sem að þessu snúa,“ segir Brynjar
Smári.
Góð reynsla af rafhjólum
Íslandspóstur hefur reynslu af raf-
hjólum. Fyrirtækið fjárfesti í sex
rafhjólum frá innlendum aðila, raf-
hjol.is, til reynslu árið 2013. „Þessi
hjól eru enn í notkun. Þau hafa
reynst vel en eru hins vegar afar
takmörkuð við íslenskar aðstæður.
Reynslan hefur því sýnt að þörf er
á öflugri og stærri rafhjólum í þetta
verkefni,“ segir Brynjar Smári. Að
hans sögn hafði fyrirtækið ekki
vitneskju um að innlendir aðilar
væru með slík hjól, sérútbúin til
póstdreifingar, til sölu og því var
ekki leitað til þeirra fyrirtækja sem
selja rafmagnshjól hérlendis. n
ÍslandspósturFyrirtækið hyggst fjárfesta fyrir tugi milljóna í rafhjólum. Markmiðið er að ná fram hagræðingu í dreifingu. Mynd ArnAldur HAlldorsson
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is „Hagræðingin felur í sér að hægt
verður að fækka starfs-
fólki við dreifingu.