Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Page 2
2 Fréttir Helgarblað 8.–11. apríl 2016 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Fyrir pallinn og stéttina Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ ODEN EÐAL OLÍA á palla. Hágæða Silikonalkyd efni. 3 l. 4.390 Mako penslasett 590 Bio Kleen pallahreinsir 895 5 lítrar kr. 3.295 Landora tréolía 2.690 Meister fúgubursti með krók #4360430 2.690 (með auka vírbursta) Lavor Galaxy 140 Háþrýstidæla 140 Max Bar 450 lítrar/klst 1900W 9 kg 19.990 Þrír starfsmenn í Sviss til að meta kosti rafhjóla n 280 milljóna tap undanfarin þrjú ár n Íslandspóstur hyggur á hagræðingu í dreifingu og fækkar fólki Í slandspóstur hefur unnið að innleiðingu rafhjóla til póst- dreifingar hérlendis undanfarin misseri. Þrír starfsmenn fyrir- tækisins eru staddir í Sviss þar sem leggja á mat á hjól frá tveimur söluaðilum. Heildarkostnaður við ferðina er um 700 þúsund krónur. Hið opinbera hlutafélag hefur ver- ið rekið með samtals 280 milljóna króna tapi undanfarin þrjú ár. Fækka starfsfólki Innleiðing rafhjóla hefur verið í bígerð í nokkurn tíma hjá Íslands- pósti. Um er að ræða rafknúin þrí- hjól, eins konar þríhjólavespur, sem eru allt að 200 kíló að þyngd. Hjólin verða notuð í hefðbundna póstdreifingu en einnig verður hægt að nota tækin til þess að flytja stærri sendingar ef þess ger- ist þörf. Horft er til þess að fyrir- tækið fjárfesti í 15 hjólum til að byrja með en síðan er ætlunin að fjárfesta í tugum slíkra hjóla ef reynslan af þeim verður góð. Sam- kvæmt upplýsingum frá Íslands- pósti er gert ráð fyrir að um tug- milljóna króna fjárfestingu sé að ræða sem til lengri tíma á að skila hagræðingu. „Hagræðingin fel- ur í sér að hægt verður að fækka starfsfólki við dreifingu. Þá gera rafhjólin vinnu starfsfólks við dreifingu þægilegri en á sama tíma auka þau yfirferð,“ segir Brynjar Smári Rúnarsson, forstöðumaður markaðs deildar Póstsins. Að sögn Brynjars Smára er markmiðið að nota rafmagnshjólin allt árið um kring ef aðstæður leyfa. „Að okkar mati er raunhæft markmið að nota þau í 8–9 mánuði á ári.“ 280 milljóna króna taprekstur Rekstur Íslandspósts hefur verið þungur síðastliðin ár. Eins og DV greindi frá tapaði fyrirtækið 118 milljónum árið 2015 sem var um- talsverð aukning frá fyrra ári. Árið 2014 var tapið 43 milljónir króna en við það tækifæri sagði Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslands- póst, að rekstrarniðurstaðan væri óviðunandi. „Töluvert vantar upp á að rekstur félagsins skili þeim hagnaði sem arðsemisstefna þess gerir ráð fyrir. Miðað er við að rekstur Íslandspósts skili eigend- um viðunandi arði sem miðar við að hagnaður sé árlega um 10% af eigin fé og enn fremur að auka verðmæti fyrir tækisins með því að stuðla að arðbærum vexti,“ sagði Ingimundur. Árið 2013 hafði Ís- landspóstur tapað 119 milljónum króna og því hefur fyrirtækið tapað um 280 milljónum króna á síðustu þremur árum. Fyllsta aðhald haft í huga „Útgjöld fyrir þetta verkefni eru metin eins og önnur útgjöld, með fyllsta aðhald í huga,“ segir Brynjar Smári, aðspurður hvort réttlæt- anlegt sé að Íslandspóstur kosti miklu til í slíka ferð. Áætlað er að kostnaður við ferðina sé 700 þús- und krónur og varir hún í fimm daga, frá þriðjudegi til laugar- dags. „Það var tekin ákvörðun um að senda þá þrjá starfsmenn sem hafa unnið að innleiðingu á nýjum rafhjólum til notkunar í dreifingu. Meðal þessara þriggja starfsmanna eru tveir lykilmenn í dreifingu fyrir tækisins og formað- ur umhverfisnefndar sem er að kynna sér þá umhverfislegu þætti sem að þessu snúa,“ segir Brynjar Smári. Góð reynsla af rafhjólum Íslandspóstur hefur reynslu af raf- hjólum. Fyrirtækið fjárfesti í sex rafhjólum frá innlendum aðila, raf- hjol.is, til reynslu árið 2013. „Þessi hjól eru enn í notkun. Þau hafa reynst vel en eru hins vegar afar takmörkuð við íslenskar aðstæður. Reynslan hefur því sýnt að þörf er á öflugri og stærri rafhjólum í þetta verkefni,“ segir Brynjar Smári. Að hans sögn hafði fyrirtækið ekki vitneskju um að innlendir aðilar væru með slík hjól, sérútbúin til póstdreifingar, til sölu og því var ekki leitað til þeirra fyrirtækja sem selja rafmagnshjól hérlendis. n ÍslandspósturFyrirtækið hyggst fjárfesta fyrir tugi milljóna í rafhjólum. Markmiðið er að ná fram hagræðingu í dreifingu. Mynd ArnAldur HAlldorsson Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is „Hagræðingin felur í sér að hægt verður að fækka starfs- fólki við dreifingu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.