Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Síða 10
10 Fréttir Helgarblað 8.–11. apríl 2016
» Loftsíur
» Smurolíusíur
» Eldsneytissíur
» Kælivatnssíur
» Glussasíur
Baldwin® hefur sérhæft sig í
smur-, loft- og hráolíusíum.
Við bjóðum upp á Baldwin® síur í
flestar gerðir þungavinnu- og sjóvéla á
hagstæðum verðum.
Verkstæði og viðgerðarþjónusta
Aðalsmerki Bætis er verkstæðið og
viðgerðarþjónustan.
Á verkstæði okkar erum við með öll tæki
til endurbyggingar á allt að 1750 hestafla
vélum.
Túrbínur
Bætir ehf. býður upp
á viðgerðarþjónustu
fyrir flestar gerðir
túrbína. Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík
F
ramkvæmdir standa nú yfir
við byggingu sumarbústaðar
á jörðinni Ölfusvatni í Árnes
sýslu. Um er að ræða tanga
sem kenndur er við Lamb
haga og teygir sig út í Þingvallavatn.
Orkuveita Reykjavíkur á landið en
þar standa fyrir nokkur sumarhús
sem öll eiga það sameiginlegt, líkt
og nýbyggingin, að vera í eigu sömu
fjölskyldunnar; Engeyinganna
svokölluðu, Benedikts, Guðrúnar,
Einars og Ingimundar Sveinsbarna.
Hitaveita Reykjavíkur keypti
Ölfusvatnslandið fyrir rétt rúmum
þrjátíu árum til að afla jarðhita
réttinda og er óhætt að segja að þau
kaup hafi verið afar umdeild á þeim
tíma. Gríðarhátt verð var greitt fyrir
jörðina og héldu fyrri eigendur
áframhaldandi notum af henni fyrir
sumarbústaði sína. Jarðhitanýt
ingin er hins vegar ekki enn hafin.
Nýjasta húsið sem nú er að rísa
er á lóð sem skráð er á Ingimund
Sveinsson.
Keypt vegna jarðhita
Það var árið 1985 sem Hitaveita
Reykjavíkur, sem síðar varð Orkuveita
Reykjavíkur, keypti jörðina Ölfusvatn
af Helgu Ingimundardóttur, ekkju
Sveins Benediktssonar útgerðar
manns, og börnum hennar fjórum,
þeim Guðrúnu, Einari, Ingimundi
og Benedikt. Sá síðastnefndi er sem
kunnugt er faðir Bjarna Benedikts
sonar fjármálaráðherra. Samkvæmt
upplýsingum sem DV fékk frá Orku
veitu Reykjavíkur (OR) var tilgang
ur kaupanna að afla jarðhitaréttinda
norðan til á Hengilssvæðinu. Deilt
hefur verið um hvort það hafi verið
raunveruleg ástæða kaupanna.
Samkvæmt fréttum af kaupunum
frá þessum tíma var kaupverðið 60
milljónir króna, sem í júlí 1985 þótti
umtalsverð upphæð, en að núvirði
gera þetta ríflega 450 milljónir króna.
Leigulaus afnot í hálfa öld
Athygli vakti, og vekur enn, að við
söluna hélt fjölskyldan eftir, til leigu
lausra afnota í 50 ár, lóðum sem tvö
sumarhús stóðu þá á, í svokölluðum
Lambhaga, nyrst á jörðinni. Að auki
héldu Engeyingarnir eftir rétti til að
byggja á þremur lóðum til viðbótar á
Lambhagatanganum. Þar var fyrir eitt
hús að auki í eigu annarra en fjölskyld
an keypti það eftir sölu jarðarinnar til
Hitaveitunnar. Engeyingarnir seldu
því jörðina til Reykjavíkurborgar,
þar sem Sjálfstæðisflokkurinn fór
með meirihluta, en héldu eftir full
um afnotum og byggingarrétti á öll
um lóðunum sex auk veiðiréttinda.
endurgjaldslaust til 50 ára. Þar að auki
kom fram í fjölmiðlum þess tíma að
eftir árið 2036, þegar samningstíminn
rennur út, hafi fjölskyldan forleigurétt.
Gagnrýnt sem spilling
Vinstrimenn í borginni og víðar á
þessum tíma gagnrýndu þessi við
skipti Sjálfstæðisflokksins í borginni
harðlega. Bent var á að fasteigna
mat Ölfusvatnsjarðar, með veiði
réttindum, hafi verið um 400 þúsund
krónur. En kaupverðið nam 60 millj
ónum króna. Ljóst var þá og þegar
að borgin hefði greitt yfirverð fyrir
jörðina og rúmlega það.
Í grein Össurar Skarphéðins
sonar, núverandi þingmanns Sam
fylkingarinnar, í Þjóðviljanum í maí
1986 er þetta enda sagt „óheyrilegt
kaupverð“ í fyrirsögn og er bent á í
greininni að jörðin hafi verið tífalt
dýrari en t.d. Nesjavellir á sínum
tíma.
„Gömlu eigendurnir fá því 60
milljónir á silfurfati úr sameigin
legum sjóðum Reykvíkinga, án þess
að þurfa í rauninni að láta landið af
höndum. Orsökin er ein og aðeins
ein: eigendurnir eru erfingjar gam
algróins áhrifamanns úr Sjálfstæðis
flokknum. Þeir tilheyra Engeyjar
ættinni svokölluðu. Og þess má geta
í viðbót, að hitaveitustjóri vann að
samningagerðinni fyrir hönd Reykja
víkurborgar. En svo vill til að hann er
líka nátengdur gömlu eigendunum.
Hvað er spilling, ef þetta er ekki spill
ing?“ spurði blaðamaðurinn Össur
árið 1986.
Fleiri harðorðar greinar af sama
toga má finna frá þessum tíma á
vefnum timarit.is. Meðal annars
heilsíðuauglýsingu frá Alþýðuflokks
Nýr bústaður rís á
á tanga Engeyinga
n OR á jörðina n Fjölskyldan hélt eftir afnotum leigulaust n Jarðhiti ekki enn nýttur
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Saman í bústað Þessi mynd af Sigmundi og Bjarna birtist þegar stjórnarmyndunarvið-
ræður stóðu yfir í maí 2013. Þarna sitja þeir í bústað Benedikts, föður Bjarna.
Rís í landi Engeyinga Framkvæmdir
standa greinilega yfir vegna bústaðar á lóð
Ingimundar Sveinssonar við Þingvallavatn.
Hingað og ekki lengra
Sumarbústaðaland Engeyinga er í eigu OR
en engu að síður lokað utanaðkomandi.