Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Page 11
Fréttir 11 Þingvallavatn félögunum í Reykjavík í Morgun­ blaðinu þar sem Reykvíkingum er boðið, í augljósum uppreisnartón, í skoðunarferð um „landareign sína.“ Fundarstaður Bjarna og Sigmundar Í september 2014 var kynnt nýtt deiliskipulag fyrir frístundabyggð­ ina á vef Grímsness og Grafnings­ hrepps þar sem skipulagðar höfðu verið tvær lóðir til viðbótar þeim fjórum sem þegar hafði verið reist sumarhús á. Samkvæmt skipulaginu eru allar sex lóðirnar jafnstórar. Gert er ráð fyrir 64 þúsund fermetra lóð­ um undir frístundahús, auk þess eru þrjár litlar spildur þar sem reist hafa verið bátaskýli. Sumarhúsin skulu samkvæmt skipulagi ekki vera minni en 50 fermetrar og ekki stærri en 200. Á Ölfusvatni 4, stendur bústaður í eigu Benedikts Sveinssonar, föður Bjarna Benediktssonar fjármálaráð­ herra. Sá bústaður komst í fréttirnar árið 2013 þegar Bjarni og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, funduðu þar leynilega í stjórnarmyndunarvið­ ræðunum eftir síðustu þingkosningar. Ölfusvatn 5 er skráð í eigu Guð­ rúnar Sveinsdóttur og Ölfusvatn 6 er í eigu Einars Sveinssonar. Ingimund­ ur Sveinsson á síðan lóðir númer 7 og 8, en á síðarnefndu lóðinni er nú að rísa nýtt sumarhús sem fyrr seg­ ir. Lóðin að Ölfusvatni 9 hefur verið skipulögð, en ekkert hús hefur enn risið þar. Hún er skráð í eigu Bene­ dikts, Guðrúnar og Einars. Sterkefnaður arkitekt Ingimundur sem nú reisir sumar­ húsið, er arkitekt og hannaði meðal annars Perluna upphaflega. Hann er, líkt og fleiri í Engeyjarættinni, sterk­ efnaður og var til að mynda meðal tíu helstu skattakónga landsins árin 2013 og 2014. Samkvæmt upplýsing­ um frá OR voru gerðir leigusamn­ ingar um hverja lóð árið 2010 þegar deiliskipulag lá fyrir og lóðirnar höfðu verið formlega stofn­ aðar. Fjölskyldan hélt fríðindum sínum. „Þeir [samn­ ingar] eru í sam­ ræmi við upp­ haflega kaupsamninginn frá 1985. Þar er gert ráð fyrir að leigjendur greiði skatta og skyldur af lóðum og húsum. Gildistíminn er sá sami og kaupsamningurinn kvað á um,“ segir í svari OR við fyrirspurn DV. Þrátt fyrir að jörðin sem um ræð­ ir sé enn í eigu OR þá hefur al­ menningur ekki aðgang að sumarbústaðalandi Eng­ eyinga á Ölfusvatni. Veg­ farendur koma að ræki­ lega læstu hliði við veginn sem liggur út tangann. Á skilti er vegfarendum til­ kynnt að við taki einkavegur, óvið­ komandi umferð sé bönnuð og bent á að svæðið sé vaktað af Securitas. Nýting ekki enn hafin Á sínum tíma höfðu menn efasemdir um að jarð­ hiti í Ölfusvatnslandi yrði nýttur og það aðeins yfir­ varp. Hugsanlega var eitt­ hvað til í því. DV fékk stað­ fest að þrátt fyrir að innan jarðarinnar Ölfusvatns sé meðal annars orkukosturinn Þverárdalur, sem er í nýtingarflokki í fyrirliggjandi skýrslu drögum verkefnis­ stjórnar Ramma­ áætlunar, þá er jarðhita­ nýting ekki enn hafin – rúm­ lega 30 árum eftir að jörðin var keypt í því skyni. Hugsanlega gæti þetta þó breyst því OR bendir á að Kolviðarhóll hafi verið keyptur 1955 og hófst jarð­ hitanýting í Hellisheiðarvirkjun 2006. Þá voru Nesjavellir keyptir 1965 en nýtingin hófst ekki fyrr en 1990. Kvaðir stoppuðu áform um sölu Í Planinu, aðgerðaáætlun vegna fjár­ hagsvanda OR, árið 2012 var Ölfus­ vatn meðal þeirra eigna sem fyrir­ hugað var að selja. Það er þann hluta jarðarinnar sem ekki nýttist til jarð­ hitanýtingar, enda óheimilt fyrir fyr­ irtæki í almannaeigu að selja frá sér auðlindir nema til annarra opin­ berra aðila. Ekkert varð þó úr þeim áformum. Sam­ kvæmt svari OR við fyrir­ spurn DV kom í ljós að kvaðir á þeim hluta jarðar­ innar sem gat komið til greina að selja, meðal annars skóg­ ræktarkvaðir og leigusamn­ ingarnir við Engeyingana, þóttu gefa til kynna að „söluverð myndi ekki hafa afgerandi áhrif á það hvort markmiði um bætta sjóðstöðu OR næðust. Í ljósi þessa mats okkar var eignin tekin af lista yfir hugsanlegar eignir til sölu. OR á því jörðina enn.“ n Helgarblað 8.–11. apríl 2016 avis.is 591 4000 Frá 1.650 kr. á dag Vissir þú að meðal heimilisbíll er notaður í eina klukkustund á dag Langtímaleiga er þægilegur, sveigjanlegur og skynsamlegur kostur Á R N A S Y N IR NOTAÐU ÞITT FÉ SKYNSAMLEGA Ingimundur Sveinsson Er skráður fyrir tveimur samliggjandi eignum á tanganum. Framkvæmdir við nýbyggingu eru hafnar á annarri lóðinni. Einar Sveinsson Fjárfestirinn komst í kastljós fjölmiðla á ný þegar ljóst varð að hann væri einn þeirra sem keyptu hlut Landsbankans í Borgun. Guðrún Sveinsdóttir Er skráður eigandi þessa bústaðar. Hér má sjá tanga Engeyinga. Þar standa sumarhúsin á landinu sem selt var Hitaveitunni 1985. Fjölskyldan hélt fullum afnotum. Gagnrýnd harðlega Kaupin á Ölfusvatnsjörðinni árið 1985 á 60 milljónir króna voru harðlega gagnrýnd. Benedikt Sveinsson Bústaðurinn var meðal annars nýttur af Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni sem funduðu hér í leyni í stjórnarmyndunarviðræðunum 2013. Óbyggt Í eigu Benedikts, Guðrúnar og Einars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.