Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Blaðsíða 14
Helgarblað 8.–11. apríl 201614 Umræða Stjórnmál 5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0 Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21 Stefnir í Sumar hinna hörðu átaka n Misburðugir flokkar búa sig undir kosningabaráttu n Næstu dagar skipta öllu máli fyrir nýja ríkisstjórn n Stjórnarandstaðan er til í hörð átök í flestum málum A ftur á byrjunarreit. Eftir mikið tal um siðbót og ný stjórnmál er traust þjóðar­ innar á íslenskum stjórn­ málum komið á sama stað og eftir hrun. Undanfarna daga hef­ ur þjóðin í forundran horft upp á ævintýralegt leikrit sem skrifað var af stjórnmálamönnum í ör­ væntingu. Þetta leikrit hafði allt, háðulegt fall aðalpersónunnar, skylmingar og stóryrði í allar áttir og jafnvel sprenghlægileg augnablik í beinni sjónvarpsútsendingu. Framvindan hefur fram til þessa verið óútreiknanleg, en nú liggur fyrir að það verður kosið innan skamms. Það er einungis spurn­ ing um tíma og veltur í raun á al­ menningi. Ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar, sem tók formlega við völdum í gær, heldur í sinn leiðang­ ur í miklum mótbyr og mun ekki þola fjölmenn mótmæli til lengdar. Einkum ef litið er til þess að það eru ekki allir þingmenn stjórnarliðsins sem halda í leiðangurinn af fullum hug. Fjari undan mótmælunum á næstu dögum er ekkert því til fyrir­ stöðu að ríkisstjórnin sitji fram á haust. Hvort sem kosið verður á næstu tveimur mánuðum eða í haust, þá þurfa flokkarnir að fara að undir­ búa kosningar með öllu sem því fylgir. Formenn allra flokka segjast reiðubúnir til kosninga, en það þarf enginn að velkjast í vafa um að þær yfirlýsingar eru settar fram af mis­ mikilli einlægni. Hér að neðan verð­ ur farið yfir stöðuna innan flokk­ anna eins og hún blasir við í dag. Fíllinn í herberginu Framsóknarmenn þurfa að spyrja sig stórra spurninga á komandi vik­ um. Forsætisráðherrann, sem flokk­ urinn eins og hann lagði sig varð­ veitti á stalli og sló skjaldborg um, er fallinn. Sú staða að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er enn for­ maður og þingmaður setur flokks­ menn í óþægilega stöðu. Sam­ kvæmt nýjustu mælingu nýtur hann trausts einungis 10 prósent þjóðar­ innar og nær útilokað er að nokk­ ur flokkur á þingi sé tilbúinn að starfa með honum í náinni fram­ tíð eftir það sem á undan er gengið. Kjarninn í kringum Sigmund Davíð Gunnlaugsson telur hins vegar að hann eigi endurkomuleið í íslensk stjórnmál og mun berjast með kjafti og klóm fyrir áframhaldandi yfir­ ráðum hans yfir flokknum. Það gætu orðið átök. Bæjarfulltrúar víða um land risu upp gegn honum fyrr í vikunni og vitað er að innan þing­ flokksins er skýr vilji til að boða strax til kosninga. Það yrði mikið hættuspil fyrir Framsóknarflokkinn að fara inn í kosningar án nokkurs konar upp­ gjörs við formannsembættið, hvort sem þeir kjósa að bola Sigmundi Davíð frá eða veita honum áfram­ haldandi umboð til að leiða flokk­ inn áfram líkt og sumir þingmenn hafa látið liggja að við Eyjuna að sé fyllilega mögulegt. Sigurður Ingi er augljóslega næstur í röðinni, en framsóknarmenn virðast hafa dregið upp óvænt tromp með því að sækja Lilju Alfreðsdóttur í ráð­ herraembætti. Ekki aðeins er hún með Framsóknar­DNA í blóðinu verandi dóttir Alfreðs Þorsteins­ sonar, heldur er hún vel liðin þvert á flokka. Engum ætti að koma á óvart þótt hún yrði formaður Fram­ sóknarflokksins fyrr en síðar. Magnús G. Eyjólfsson Freyr Rögnvaldsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.