Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Side 17
Helgarblað 8.–11. apríl 2016 Umræða 17 Mielke: „Mitt hobbí er í rauninni mjög svipað: „Ég safna saman öll­ um sem segja brandara um þig.“ Þannig gamansemi í þjóðsögum og bókmenntum Húmor af þessu tagi, svona litlar gamansamar sögur þar sem vald­ hafar eru dregnir sundur og saman í háði, er reyndar náskyldur þjóð­ sögum og ævintýrum; einhvers­ konar varnarleikur hinna undirok­ uðu. Enda sjáum við í svo mörgum þjóðsögum, til dæmis nýrri snilldar­ útgáfu á Grimmsævintýrum endur­ sögðum, sem kom út á íslensku fyrir síðustu jól, að hetjur þeirra sagna eru gjarnan hinir smæstu; kot­ ungar, undirokaðir yngstu bræð­ ur, að ekki sé talað um sjálfa Ösku­ busku. Hinir „litlu“ í samfélögunum reynast í slíkum sögum gjarnan úr­ ræðabestir og útsjónarsamastir, auk þess að hafa unnið sér inn góðvild dýra og ýmissa vætta með breytni sinni, á meðan hinir eldri eru stirð­ ir og hugsa hægt og hafa áður sýnt öllum og öllu tillitsleysi og yfirgang. Eins og húsdýrin sem á að slá af vegna þess að þau eru orðin gagns­ laus að áliti mannanna, en sem taka sig saman um að halda hóp­ inn og stofna hljómsveit. Þetta er ein af mínum uppáhaldssögum í veröldinni, hét áður „Brimaborgar­ söngvararnir“ en í hinni nýju endur­ sögn Philips Pullman og þýðingu Silju Aðalsteins „Tónsnillingarnir frá Brimaborg“; þeir lenda í háska er þeir hitta hættulegan ræningja­ flokk, en reynast honum miklu hug­ vitssamari. Úr bókmenntum liðinna alda þekkjum við margar slíkar sög­ ur, og eru oftast kenndar við „píkar­ esku.“ Fræg bókmenntaverk hafa verið skrifuð dálítið í sama anda; ein vinsælasta skáldsaga liðinnar aldar er eins og allir vitar „Góði dátinn Svejk“ og þar er það mælska og hug­ vitssemi hinna óbreyttu sem oftast skilur foringja og hershöfðingja eftir sem berstrípaða trúða. Þegar bókin kom fyrst út var Habsborgaraveldið mikla reyndar liðið undir lok, en hefði svo ekki verið hefði hún án efa orðið því gamla keisaradæmi ærið skeinuhætt. „Hvað myndi gerast ef einhver dræpi Walter Ulbricht?“ Walter Ulbricht var á undan Honecker leiðtogi Austur­Þýska­ lands eða DDR, þessa undarlega Stasi­samfélags þar sem líklega var betur fylgst með þegnunum en annars eru dæmi um í sögunni. Þar var svo nákvæmlega njósnað um borgarana að það þótti hrein­ lega vera kostur í tilfellum eins og ef menn þurftu að taka leigubíl; bíl­ stjórinn vissi hver þú varst og hvar þú áttir heima. Walter Ulbricht var að sjálf­ sögðu skreyttur mörgum orðum og heiðursmerkjum, meðal annars einni sem mikið var spaugað með, en hún var fyrir hetjuskap í Spænsku borgarastyrjöldinni. Hetjuskap sem ekki margir aðrir könnuðust við, og síst þeir sem sjálfir höfðu ver­ ið á vígstöðvunum á móti fasista­ herjum Francos. Konan hans, Lotte Ulbricht, var líka höfði í háum sessi, og hún hagaði sér eins og drottning eða móðir allrar þjóðarinnar, þótt hún hefði síst orð á sér fyrir mann­ kosti; mildi, þokka eða skemmti­ legheit. Ein alþýðusagan var svona: Tveir DDR­borgarar hittust á Alex­ anderplatz og tóku tal saman. Og annar segir við hinn: „Hugsaðu þér, í Bandaríkjunum skutu þeir forset­ ann! Hvað heldurðu að myndi ger­ ast hér ef einhver kæmi og dræpi Walter Ulbricht?“ Hinn svaraði: „Ekki veit ég hvað myndi gerast þá. En ég er samt nokkuð viss um að skipakóngurinn Onassis myndi ekki giftast ekkjunni.“ n Að hlæja óvinsæl yfirvöld í hel Erich Honecker Erich Mielke Walter Ulbricht Beittasta vopnið „Sumt póli- tískt grín er semsagt þannig að það semur sig sjálft, og varla neinu við það að bæta.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.