Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Blaðsíða 23
Helgarblað 8.–11. apríl 2016 Kynningarblað - Veitingahús 3
Einar Ben: Tuttugu ára afmæli
Í
byrjun sumars 1996 var veitinga-
staðurinn Einar Ben opnaður við
Ingólfstorg í reisulegu timbur-
húsi. Þessi viðbót við veitinga-
flóru Reykjavíkur vakti þegar
mikla lukku á meðal borgarbúa. Það
má segja að nútímaleg borgarútgáfa
sveitastemningar svífi yfir vötnum
staðarins; setið er í nokkrum stof-
um auk þess sem sjálfstæð setustofa
og bar er á hæðinni. Rökkur og þykk
tjöld fyrir gluggum skapar svo ögn
dulúðlegt andrúmsloft.
L. Sigurður Ómarsson grein-
ir frá því að í tilefni 20 ára afmælis-
ins verði ýmiss konar tilboð í gangi
í sumar.
„Einar Ben leggur áherslu á ís-
lenska matargerð með frönsku ívafi
og sjávarrétti auk þess sem það er
líka steikhús. Allt hráefni er ferskt og
við erum stolt af því að kaupa vörur
beint frá býli, eins og sagt er, en það
hefur verið lykilatriði eldhúss Einars
Ben alveg frá upphafi. Matseðillinn
hér er í sífelldri þróun sem í raun
endurspeglast á diskunum hjá okkur
sem sýna þá vinnu og hugsun sem
fer í hvern rétt.“
Dýrindismatur og afslappað
andrúmsloft
„Okkur hefur tekist að byggja upp
stöðugan rekstur og eignast stóran
hóp gesta sem koma til okkar aftur
og aftur. Við sjáum oft sama fólkið
koma hingað í vinnutengda hádeg-
isverði og/eða í félagi við fjölskyldu
og vini. Afslappað og huggulegt and-
rúmsloft, góð þjónusta og dýrindis
matur draga að okkar sáttu og glöðu
viðskiptavini, aftur og aftur.“
Einar Ben, Veltusundi 1, 101
Reykjavík. Sími: 511 – 5090. www.
einarben.is n