Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Qupperneq 23
Helgarblað 8.–11. apríl 2016 Kynningarblað - Veitingahús 3 Einar Ben: Tuttugu ára afmæli Í byrjun sumars 1996 var veitinga- staðurinn Einar Ben opnaður við Ingólfstorg í reisulegu timbur- húsi. Þessi viðbót við veitinga- flóru Reykjavíkur vakti þegar mikla lukku á meðal borgarbúa. Það má segja að nútímaleg borgarútgáfa sveitastemningar svífi yfir vötnum staðarins; setið er í nokkrum stof- um auk þess sem sjálfstæð setustofa og bar er á hæðinni. Rökkur og þykk tjöld fyrir gluggum skapar svo ögn dulúðlegt andrúmsloft. L. Sigurður Ómarsson grein- ir frá því að í tilefni 20 ára afmælis- ins verði ýmiss konar tilboð í gangi í sumar. „Einar Ben leggur áherslu á ís- lenska matargerð með frönsku ívafi og sjávarrétti auk þess sem það er líka steikhús. Allt hráefni er ferskt og við erum stolt af því að kaupa vörur beint frá býli, eins og sagt er, en það hefur verið lykilatriði eldhúss Einars Ben alveg frá upphafi. Matseðillinn hér er í sífelldri þróun sem í raun endurspeglast á diskunum hjá okkur sem sýna þá vinnu og hugsun sem fer í hvern rétt.“ Dýrindismatur og afslappað andrúmsloft „Okkur hefur tekist að byggja upp stöðugan rekstur og eignast stóran hóp gesta sem koma til okkar aftur og aftur. Við sjáum oft sama fólkið koma hingað í vinnutengda hádeg- isverði og/eða í félagi við fjölskyldu og vini. Afslappað og huggulegt and- rúmsloft, góð þjónusta og dýrindis matur draga að okkar sáttu og glöðu viðskiptavini, aftur og aftur.“ Einar Ben, Veltusundi 1, 101 Reykjavík. Sími: 511 – 5090. www. einarben.is n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.