Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Page 27
Helgarblað 8.–11. apríl 2016 Kynningarblað - Veitingahús 7 Ísafold, SKÝ og Jörgensen: Þrír ólíkir veitingastaðir – allir einstakir D avíð Kjartansson stýrir nýjasta hóteli Center Hotels-keðjunnar, að Laugavegi 120, en þar er veitingastaðurinn Jörgen- sen Kitchen & Bar, í gamla Arion banka-húsinu. Gengið er inn á staðinn af götu og fyrir almenning er tengingin við hótelið vart sýnileg. Veitingastaðurinn hefur skemmti- legt og afar persónulegt yfirbragð. „Við erum með íslenska matar- gerð með alþjóðlegu ívafi. Matur- inn er umfram allt bragðgóður en uppleggið er líka að gera hann skemmtilegan og fallegan. Verðlag- ið er mjög sanngjarnt en jafnframt lagt mikið upp úr gæðum,“ seg- ir Davíð, en útlit matarins skiptir miklu máli: „Þetta er umfram allt mjög fal- legt og skemmtilegt. Það er bara þannig að maður borðar fimmtíu prósent með augunum. Það vita flestir og þeir sem vita það ekki, þeir upplifa það hjá okkur. Við leggjum mikið upp úr því að upplifun gesta sé eftirminnileg. Það kemur fram í útliti og alls konar smáatriðum sem erfitt er að lýsa, maður þarf að koma á staðinn til að upplifa þetta.“ Davíð segir jafnframt að hver matardiskur sé í raun listaverk. Andrúmsloftið er frjálslegt: „Hingað koma gjarnan litlir vinahópar og hér má hafa hátt, það má hlæja og hafa gaman. Við erum bara með íslenska tónlist sem er liður í því að hafa stemninguna vinalega.“ Sem fyrr segir er Jörgensen Kitchen & Bar í gömlu bankahúsi og þar af leiðir er vínkjallarinn í gömlu peningageymslu bankans sem hlýt- ur að teljast einstakt. Vínúrvalið er gott en umfram allt er staðurinn ætlaður öllum: „Við reynum að verðleggja réttina þannig að flestir eiga að geta leyft sér eitthvað. Annars vegar leggj- um við áherslu á A la Carte-matseð- il á kvöldin sem er þó þannig úr garði gerður að fólk getur keypt sér tvo rétti í stað eins á sambærilegu veitingahúsi og deilt með sér. Hins vegar er það Street Food þemað okkar, sem hefur heppnast afskaplega vel. Þar erum við með mat frá öllum heimshornum og úrvalið er síbreytilegt. Þetta eru rétt- ir sem fara afskaplega vel með vín- glasi eða bjór. Þessir réttir eru í senn afskaplega góðir, þrælskemmtilegir og hræbillegir. Hér er því tilvalið tæki- færi fyrir hópa að koma og njóta fram- úrskarandi veitinga.“ Jörgensen Kitchen & Bar er opið alla daga frá kl. 11.30 til miðnættis. Sími: 595 8565. n SKÝ Restaurant & Bar Stórkostlegt útsýni – gómsætur léttleiki – sérlagaðir kokteilar S KÝ Restaurant & Bar er staðsettur á 8. hæð á Center Hotels. Á veitingastaðnum er stórkostlegt útsýni yfir Faxaflóa, Esjuna, Hörpu og miðbæ Reykjavíkur. Útsýnið eitt og sér gerir máltíð á SKÝ að einstakri upplifun. SKÝ er hannaður á nýtískulegan en þó hlýlegan máta og er þar að finna stóra verönd með borðum og stólum sem gestirnir geta nýtt sér þegar veður leyfir. SKÝ býður upp á gott úrval af léttum réttum eins og pasta, samlokum, hamborgur- um, kjúklingaréttum og fiski, sem listakokkar staðarins útbúa. Alla daga vikunnar milli 12 og 16 er boð- ið upp á glæsilegan „brunch“. SKÝ býður upp á mikið úrval hanastéla. Fjallastélin eru sérút- búnir kokteilar sem nefndir eru eft- ir fjöllunum sem skarta sínu feg- ursta fyrir augum gestanna. Þannig er staðurinn tengdur við útsýnið, til dæmis getur fólk notið fegurðar Esjunnar á meðan það gæðir sér á Esju-kokteil. SKÝ tekur fagnandi á móti hóp- um, allt að 80 manns, og býður upp á einstaklega góðan hópmatseðil. Er staðurinn til dæmis vinsæll með- al saumaklúbba. Það er tilvalið að koma við á SKÝ áður en farið er á tónleika í Hörpu en tónlistarhúsið er rétt hjá. Góð- ur matur, sérlagaður kokteill og frá- bært útsýni – vart er hægt að hugsa sér betri upphitun fyrir menningar- viðburð í Hörpu. SKÝ Restaurant & Bar er opið alla daga frá kl. 11.30 til miðnættis. Sími: 595 8545. n Jörgensen Kitchen & Bar: Lystisemdir á viðráðanlegu verði Jörgensen Kitchen & Bar Viktoría Hrönn Axelsdóttir vaktstjóri og Jóhann Ingi Reynis- son matreiðslumeistari. Mynd BrynJa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.