Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Síða 37
Menning 29Helgarblað 8.–11. apríl 2016 515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is Nýjar goðsagnir og ljúfsár nostalgía O, Brazen Age eftir kanadíska leikstjórann Alexander Carson sýnd í Bíó Paradís U m helgina verður kanadíska kvikmyndin O, Brazen Age sýnd í Bíó Para- dís. Myndin hefur hlot- ið góðar viðtökur, meðal annars á alþjóðlegri kvikmyndahá- tíð í Reykjavík, RIFF, í fyrra. Myndin fjallar um gamlan vina- hóp í Toronto, listaspírur í kringum þrítugt. Myndin segir nokkrar sam- tengdar sögur af hópnum og er lág- stemmd vangavelta um trú, minn- ingar, afbrýðisemi, söknuð og það að fullorðnast. Þetta fyrsta mynd leikstjórans Alexanders Carson, en margir af aðalleikurunum eru nánir vinir hans eða fjölskyldumeðlimir, með- al annars íslenski fjöllistamaðurinn Atli Bollason sem leikur einn vin- anna. Glatað sakleysi Alexander Carson, leikstjóri og höfundur O, Brazen Age, segir að hann hafi stefnt að því að skapa melankólíska stemningu og nostal- gískt andrúmsloft í myndinni. „Myndin er algjörlega gegnsýrð af löngun í eitthvað sem ekki í seil- ingarfjarlægð, hvort sem það er í víðum, andlegum skilningi, eða á persónulegri og tilfinningalegri hátt,“ segir Alexander í viðtali við DV. Hann tekur undir að sagan sé einhvers konar þroskasaga kyn- slóðar, sem tekst á við endalok ákveðins tímabils. „Flestir karakterarnir eru á seinni hluta þrítugsáranna og lifa á ýmsum snertipunktum lista- og bókmenntasenunnar í Toronto. Þau eru öll að leita að leiðum til að skapa merkingu í lífinu, eru að kljást við þann mismun sem þau hafa upplifað milli hins fullkomna heims sem þeim var lofað sem börn og hins harða veruleika sem þau rekast á þegar þau fullorðn- ast. Persónurnar eru þannig stöð- ugt að líta til baka, harma sakleysi sem hefur glatast um það bil á sama tíma og ný öld hefur gengur í garð, með hinum hörmulegu atburðum 11. september, og þá uppgötvun að goðsagnir barnæsku þeirra virka ekki fyrir þau á fullorðinsárunum,“ segir Alexander. Þurfum að skilgreina nýjar goðsagnir „Mig langaði að skoða þessa nostalgíu bæði í listrænni stjórn- un myndarinnar og kvikmynda- tökunni, sérstaklega með því að nota stælingu (e. pastiche) á fagur- fræði tíunda áratugarins – þarna eru gamlir bílar, gamaldags föt, og svo framvegis,“ segir Alexander um hvernig hann reyndi að draga fram nostalgíuna. „Þessi nostalgíska þráhyggja myndarinnar er ljúfsár þjáning, sem er allt í senn falleg, ljóðræn og sorgleg. En mér finnst líka eins og O, Brazen Age sé tilraun til að endur- hugsa myndhverfingar og erkitýp- ur vestrænnar menningar á póst- módernískum tímum og skilgreina nýjar goðsagnir. Myndin fjallar því um það að semja um frið við for- tíðina og að reyna að ímynda sér annars konar framtíð,“ segir hann. Skrýtin, hrífandi og frábær Hvernig kom það til að þú fékkst Atla Bollason, fjöllistamann en ólærðan og reynslulítinn leikara, til að fara með hlutverk í myndinni? „Ég hef alltaf unnið bíómyndirnar mínar með hjálp vina og fjölskyldu og ég fæ mikla orku úr því að vinna með nánum vinum og fólki sem fyllir mig andagift,“ segir hann. „Ég hitti Atla þegar við vor- um báðir í framhaldsnámi við Concordia-háskóla í Montreal. Við fíluðum margar sömu bækurnar, myndirnar og tónlist, svo við byrj- uðum að hanga saman. Ég bað hann fljótt um að leika lítið hlut- verk í stuttmynd sem ég gerði: We Refuse to be Cold. Það var mjög skemmtilegt ferli og við höfum unnið nokkrum sinnum saman síð- an þá. Fyrir O, Brazen Age þurfti ég að gera enn meiri kröfur til Atla sem leikara, en ég var viss um að hann gæti það. Frammistaða hans í myndinni er skrýtin, hrífandi og frábær. Ég er mikill aðdáandi þess að vinna með fólki sem er ekki leik- arar. Frekar en að treysta á nokk- uð fyrirsjáanlega nákvæmni at- vinnuleikara, er ég spenntari fyrir sérstæðum og óvæntum eiginleik- um ólærðra leika. O, Brazen Age inniheldur þannig fjörmikla blöndu af margs konar leikstíl – blöndu sem er full af orku, persónuleika og ást,“ segir Alexander. O, Brazen Age er sýnd á föstudag og laugardagskvöld í Bíó Paradís. n Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Íslenskur flippari Atli Bollason í hlutverk flipparans og listaspírunnar Atla í O, Brazen Age. Vinnur með nánum vinum og fjölskyldu Alexander Carson (t.h.) leikstjóri ásamt Joe Perry sem leikur atvinnulausa leikarann Jack í myndinni. „Mér finnst líka eins og myndin sé tilraun til að endur- hugsa myndhverfingar og erkitýpur vestrænn- ar menningar á póst- módernískum tímum og skilgreina nýjar goðsagnir. „Frammistaða Atla í myndinni er skrýtin, hrífandi og frá- bær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.