Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2016, Qupperneq 37
Menning 29Helgarblað 8.–11. apríl 2016
515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is
Nýjar goðsagnir og
ljúfsár nostalgía
O, Brazen Age eftir kanadíska leikstjórann Alexander Carson sýnd í Bíó Paradís
U
m helgina verður
kanadíska kvikmyndin O,
Brazen Age sýnd í Bíó Para-
dís. Myndin hefur hlot-
ið góðar viðtökur, meðal
annars á alþjóðlegri kvikmyndahá-
tíð í Reykjavík, RIFF, í fyrra.
Myndin fjallar um gamlan vina-
hóp í Toronto, listaspírur í kringum
þrítugt. Myndin segir nokkrar sam-
tengdar sögur af hópnum og er lág-
stemmd vangavelta um trú, minn-
ingar, afbrýðisemi, söknuð og það
að fullorðnast.
Þetta fyrsta mynd leikstjórans
Alexanders Carson, en margir af
aðalleikurunum eru nánir vinir
hans eða fjölskyldumeðlimir, með-
al annars íslenski fjöllistamaðurinn
Atli Bollason sem leikur einn vin-
anna.
Glatað sakleysi
Alexander Carson, leikstjóri og
höfundur O, Brazen Age, segir að
hann hafi stefnt að því að skapa
melankólíska stemningu og nostal-
gískt andrúmsloft í myndinni.
„Myndin er algjörlega gegnsýrð
af löngun í eitthvað sem ekki í seil-
ingarfjarlægð, hvort sem það er í
víðum, andlegum skilningi, eða
á persónulegri og tilfinningalegri
hátt,“ segir Alexander í viðtali við
DV.
Hann tekur undir að sagan sé
einhvers konar þroskasaga kyn-
slóðar, sem tekst á við endalok
ákveðins tímabils.
„Flestir karakterarnir eru á
seinni hluta þrítugsáranna og lifa
á ýmsum snertipunktum lista- og
bókmenntasenunnar í Toronto.
Þau eru öll að leita að leiðum til
að skapa merkingu í lífinu, eru að
kljást við þann mismun sem þau
hafa upplifað milli hins fullkomna
heims sem þeim var lofað sem
börn og hins harða veruleika sem
þau rekast á þegar þau fullorðn-
ast. Persónurnar eru þannig stöð-
ugt að líta til baka, harma sakleysi
sem hefur glatast um það bil á sama
tíma og ný öld hefur gengur í garð,
með hinum hörmulegu atburðum
11. september, og þá uppgötvun að
goðsagnir barnæsku þeirra virka
ekki fyrir þau á fullorðinsárunum,“
segir Alexander.
Þurfum að skilgreina nýjar
goðsagnir
„Mig langaði að skoða þessa
nostalgíu bæði í listrænni stjórn-
un myndarinnar og kvikmynda-
tökunni, sérstaklega með því að
nota stælingu (e. pastiche) á fagur-
fræði tíunda áratugarins – þarna
eru gamlir bílar, gamaldags föt, og
svo framvegis,“ segir Alexander um
hvernig hann reyndi að draga fram
nostalgíuna.
„Þessi nostalgíska þráhyggja
myndarinnar er ljúfsár þjáning,
sem er allt í senn falleg, ljóðræn og
sorgleg. En mér finnst líka eins og O,
Brazen Age sé tilraun til að endur-
hugsa myndhverfingar og erkitýp-
ur vestrænnar menningar á póst-
módernískum tímum og skilgreina
nýjar goðsagnir. Myndin fjallar því
um það að semja um frið við for-
tíðina og að reyna að ímynda sér
annars konar framtíð,“ segir hann.
Skrýtin, hrífandi og frábær
Hvernig kom það til að þú fékkst
Atla Bollason, fjöllistamann en
ólærðan og reynslulítinn leikara, til
að fara með hlutverk í myndinni?
„Ég hef alltaf unnið bíómyndirnar
mínar með hjálp vina og fjölskyldu
og ég fæ mikla orku úr því að vinna
með nánum vinum og fólki sem
fyllir mig andagift,“ segir hann.
„Ég hitti Atla þegar við vor-
um báðir í framhaldsnámi við
Concordia-háskóla í Montreal. Við
fíluðum margar sömu bækurnar,
myndirnar og tónlist, svo við byrj-
uðum að hanga saman. Ég bað
hann fljótt um að leika lítið hlut-
verk í stuttmynd sem ég gerði: We
Refuse to be Cold. Það var mjög
skemmtilegt ferli og við höfum
unnið nokkrum sinnum saman síð-
an þá. Fyrir O, Brazen Age þurfti
ég að gera enn meiri kröfur til Atla
sem leikara, en ég var viss um að
hann gæti það. Frammistaða hans
í myndinni er skrýtin, hrífandi og
frábær. Ég er mikill aðdáandi þess
að vinna með fólki sem er ekki leik-
arar. Frekar en að treysta á nokk-
uð fyrirsjáanlega nákvæmni at-
vinnuleikara, er ég spenntari fyrir
sérstæðum og óvæntum eiginleik-
um ólærðra leika. O, Brazen Age
inniheldur þannig fjörmikla blöndu
af margs konar leikstíl – blöndu
sem er full af orku, persónuleika og
ást,“ segir Alexander.
O, Brazen Age er sýnd á föstudag
og laugardagskvöld í Bíó Paradís. n
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Íslenskur flippari
Atli Bollason í
hlutverk flipparans
og listaspírunnar Atla
í O, Brazen Age.
Vinnur með
nánum vinum og
fjölskyldu Alexander
Carson (t.h.) leikstjóri
ásamt Joe Perry sem
leikur atvinnulausa
leikarann Jack í
myndinni.
„Mér finnst líka
eins og myndin
sé tilraun til að endur-
hugsa myndhverfingar
og erkitýpur vestrænn-
ar menningar á póst-
módernískum tímum og
skilgreina nýjar goðsagnir.
„Frammistaða
Atla í myndinni er
skrýtin, hrífandi og frá-
bær.