Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Blaðsíða 6
Helgarblað 6.–9. maí 20166 Fréttir
SJÓNMÆLINGAR
LINSUR • GLERAUGU
Skólavörðustígur 2 • 101 Reykjavík
Sími: 511 2500 • www.gleraugad.is
F
organgsröðun í þágu
umferðar öryggis er sögð
hafa ráðið því að Ólöf Nordal
innan ríkisráðherra sló síðasta
áfanga Dettifossvegar út af
samgönguáætlun á dögunum. Sú
skýring kemur fram svari innanríkis
ráðuneytisins við fyrirspurn DV. Þar
er vísað til þess að sextán banaslys
hafi orðið í fyrra, samanborið við þrjú
árið áður, og forgangsröðunin taki
mið af því. Athugun DV leiðir hins
vegar í ljós að í samgönguáætlun eru
engar vegabætur fyrirhugaðar á þeim
vegarköflum þar sem bana slysin
urðu í fyrra. 430 milljónir voru hins
vegar settar í margvíslegar aðgerðar
sem stuðla eigi að umferðaröryggi.
Næstum allir afbókuðu gistingu
Heilsársvegur hefur verið lagður frá
þjóðvegi 1, Mývatnsmegin, að Detti
fossi auk þess sem unnið er að upp
byggingu vegarins frá Ásbyrgi í Öxar
firði að Vesturdal. Haftið sem eftir er,
frá Dettifossi að Vesturdal, var hins
vegar slegið út af samgönguáætlun
í vetur.
Eins og DV greindi frá á dögun
um eru ferðaþjónustubændur í
Öxar firði miður sín vegna þessa, en
vegurinn er lokaður stærstan hluta
ársins. Einn ferðaþjónustuaðili, sem
heldur úti bændagistingu, bar að 28
af 30 bókunum í desember hafi ver
ið afbókaðar á síðustu stundu. Þá
hringdi fólk frá Dettifossi og sagðist
ekki komast leiðar sinnar. Ástandið
er svo slæmt að verslunin í Ásbyrgi
var í fyrsta sinn í 41 ár lokuð í vetur.
„Hingað koma engir peningar,“ sagði
Ævar Ísak Sigurgeirsson í samtali
við DV en Öxfirðingar horfa á ferða
mannastrauminn að mestu úr fjar
lægð, án þess að njóta ávaxtanna.
Brothættar byggðir
DV spurði Ólöfu þann 14. apríl síð
astliðinn hvernig stæði á því að
vegurinn, sem heimamenn hafa
beðið eftir árum saman, hafi ver
ið felldur út af samgönguáætlun.
Blaðið spurði hvernig ákvörðunin
samrýmdist því yfirlýsta markmiði
stjórnvalda að stuðla að dreifingu
ferðamanna um allt land. Þá minnti
DV á að Kópasker og Raufarhöfn,
þau byggðarlög sem mest myndu
hagnast á þessari samgöngubót,
væru á lista yfir brothættar byggðir.
„ Hvernig samrýmist ákvörðunin
þeirri viðleitni stjórnvalda að efla
þessi viðkvæmu byggðarlög?“ spurði
DV meðal annars.
Kostar 1.500 milljónir
Þessum spurningum var ekki svarað
með beinum hætti heldur benti
ráðuneytið á að verið væri að vinna
að uppbyggingu vegarkaflans frá Tó
vegg – sem er nálægt Ásbyrgi – að
Vesturdal. Um 22 kílómetra kafli
væri skilinn eftir en til þess verkefnis
þyrfti 1.500 milljónir króna. „Megin
forsenda fyrir vali á verkefnum inn á
árin 2017 og 2018 í fjögurra ára sam
gönguáætlun sem nú liggur fyrir Al
þingi var öryggissjónarmið. Umferð
fer vaxandi og fjölgaði banaslysum
úr þremur árið 2014 í 16 á síðasta ári.
Við þessa forgangsröðun náði loka
áfangi Dettifossvegar ekki inn á áætl
unina árin 2017 og 2018 en kemur
til skoðunar í næstu áætlun,“ segir í
svari ráðuneytisins.
Ráðuneytið benti á að miklar
samgönguframkvæmdir væru í gangi
„á svæðinu“. Í því samhengi voru
nefndar framkvæmdir við Bakka á
Húsavík og endurnýjun flugvallarins
við Húsavík. Loks voru Vaðlaheiðar
göng nefnd en þau eru í tæplega
tveggja klukkutíma akstursfjarlægð
frá Kópaskeri. Þó að göngin muni
nýtast öllu Norður og Austurlandi
vel er vegalengdin frá Kópaskeri að
Vaðlaheiðargöngum álíka löng og frá
Reykjavík til Stykkishólms. Hún er
heldur styttri en frá Reykjavík að Vík
í Mýrdal.
Malbikað frá Laugarvatni
að Flúðum
Eins og áður segir stendur ekki til að
gera úrbætur á þeim vegarköflum
þar sem banaslys urðu í fyrra. Þrjú
banaslys urðu á Biskupstungna
braut. Þriggja ára fótgangandi stúlka
lést við sveitabæ í Biskupstungum,
65 ára ökumaður lést í bílslysi
norðan við MinniBorg og farþegi,
23 ára, lést á Biskupstungnabraut
við Alviðru. Eina vegaframkvæmdin
sem fyrirhuguð er á þessu svæði
er á Reykjavegi, sem tengir saman
Laugarvatn og Flúðir. Þar á að mal
bika. Þrjú banaslys urðu á Suður
landsvegi en hans er ekki getið í
samgönguáætlun, svo annað dæmi
sé tekið.
Á meðal stórra framkvæmda sem
fyrirhugaðar eru í samgönguáætlun
eru Dýrafjarðargöng, heilsársvegur
um Dynjandisheiði, tvöföldun þjóð
vegarins um Mosfellsbæ auk þess
sem að í Ölfusi og á Kjalarnesi á að
fara í 2+1 framkvæmd. Uxahryggja
vegur verður malbikaður. Fyrir
austan á að malbika hringveginn um
Skriðdal að Breiðdalsheiði, ljúka á
við veginn um Berufjarðarbotn og ný
brú verður byggð yfir Hornafjarðar
fljót, svo eitthvað sé nefnt.
Ekki nýr vegur um Öxi
Auk vegarins um Dettifoss hefur
verið hætt við nýja brú yfir Jökulsá
á Fjöllum og nýjan veg um Öxi auk
þess sem ekki stendur til að klára
tvöföldun Reykjanesbrautar. Þá
stendur ekki til að halda áfram vinnu
við Arnarnesveg í efri byggðum
Kópavogs.
Varasamur vegslóði
DV benti ráðuneytinu á þriðjudag á
þá staðreynd að fyrirhugaðar vega
úrbætur, sem getið er í samgöngu
áætlun, nái ekki til þeirra vega þar
sem banaslys urðu í fyrra. Auk þess
var bent á að í frétt DV frá 19. apríl
síðastliðinn hafi komið fram að
margir lendi í háska á veginum –
sem er lokaður stærstan hluta ársins.
Í umræddri frétt sagði Ísak í Ás
byrgi að nær daglega þyrftu bænd
ur í sveitinni að aðstoða fólk í vanda
á vegunum í kringum Jökulsá. Hann
sagði tímaspursmál hvenær stór
slys hlytist af. Mörg dæmi væru um
að fólk hefði þurft að hafast við í bíl
um sínum yfir nótt í nístandi kulda –
í þeirri trú að vegurinn yrði ruddur
daginn eftir. Á endanum freisti sum
ir þess að ganga til byggða. Slíkt gæti
endað með ósköpum, enda væru
veður mjög válynd uppi til fjalla. Í
svari frá ráðuneytinu var á það bent
að 430 milljónum króna hefði verið
varið til margvíslegra aðgerða á sviði
umferðaröryggis á árinu. Þær millj
ónir fara meðal annars í merkingar
við einbreiðar brýr, undirgöng fyrir
búfé, hvíldarsvæði við vegi, eftirlit
lögreglu og fræðslu í grunnskólum.
Frekari skýringar í ljósi þessara
atriði höfðu ekki borist þegar DV fór
í prentun. n
Öryggissjónarmið sögð
hafa frestað Dettifossvegi
n Fjöldi banaslysa í fyrra stýrði forgangsröðinni n Engar úrbætur á vegum þar sem banaslysin urðu
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Banaslysin 2015
n Sextán einstaklingar létust
í jafn mörgum slysum; fjórar
konur en tólf karlmenn.
n Þrír létust innanbæjar í
Reykjavík en hinir 13 utanbæjar.
n Enginn lést af völdum
ölvunar- eða fíkniefnaaksturs.
n Sex létust á Suðurlandi.
n Af þeim látnu voru sjö
útlendingar, þar af fimm
erlendir ferðamenn.
Dettifoss
Skilja eftir Í dag er fært allt árið frá
þjóðvegi 1 að Dettifossi. Verið er að vinna
að veginum frá Ásbyrgi að Vesturdal.
Haftið á milli er skilið eftir.
Ásbyrgi
Hringvegurinn
Vesturdalur