Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Blaðsíða 38
Helgarblað 6.–9. maí 201630 Fólk „Kynslóðirnar þurfa að hanga miklu meira saman“ n Eldri borgarar læra á Facebook n Þau hlógu þegar Kristrún sagðist vera of gömul til að snappa K ristrún Heiða Hauksdóttir er sjálfboðaliði hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík. Hún vill að ömmur og afar og allt eldra fólk sé óhrætt við að nota Facebook til þess að halda góðu sambandi við sitt fólk. „Ég hafði samband við Félag eldri borgara í Reykjavík þegar ég var í fæðingarorlofi og bauð fram krafta mína ef þau vildu liðsinni við einhver verkefni. Sjálf vildi ég að til væri „félag verðandi eldri borgara“, ég væri sko pottþétt í því! Ég stefni nefnilega að því að verða mjög langlíf. Það er líka mikilvægt að við umgöngumst öll sem fjölbreyttast fólk, það er betra fyrir umburðar- lyndið og víðsýnina í samfélaginu. Mér – eins og mörgum – hættir til að einangra mig og umgangast helst bara þá sem tala eins og ég og hugsa eins og ég. Kynslóðirnar þurfa að hanga miklu meira saman, og það er til dæmis auðvelt með hjálp frá Facebook.“ Hvers konar verkefnum kemur þú að hjá félaginu? „Þau hjá FEB hafa tekið mér svo vel! Þau fundu strax hvar mitt „forte“ liggur og þess vegna fékk ég meðal annars að hjálpa til við útgáfu á blaðinu þeirra. Næstu Félagstíðindi FEB eru einmitt væntanleg núna í vor. Mjög flott blað, tékkið endilega á því. Svo stóð félagið fyrir Facebook-námskeiði þar sem ég var leiðbeinandi. Það var reglulega gaman. Margir höfðu samband og spurðust fyrir um námskeiðið. Og svo mættu allir sem skráðu sig – það er ekki alltaf þannig hér á landi. Þátttakendur voru mjög duglegir að spyrja út í allt mögulegt, það er greinilega talsverð þörf á svona Facebook-fræðslu. Ég vona að allir hafi lært eitthvað gagnlegt og skemmt sér vel í leiðinni.“ Orðfærið kom mest á óvart Í kringum 90% Íslendinga á aldrinum 18 ára og eldri nota Face- book reglulega. Hópur eldri not- enda fer stöðugt stækkandi og með tilkomu spjaldtölva hafa fleiri eldri borgarar nýtt sér þetta tækifæri til þess að vera í meiri samskiptum við fjölskyldu og vini. „Ég hvet alla eldri borgara til þess að vera þar sem þeirra fólk er, og vera alveg ófeimna við að prófa nýja hluti. Enginn vill missa af neinu og svo margt „gerist“ á Facebook núorðið. Ef fjölskyldur eru almennt að nota Facebook mikið til þess að halda sambandi þá eiga ömmur og afar, frænkur og frændur og allir aldavinir endilega að vera með. Þetta getur verið frábært tól þegar maður kann að nota það og maður lærir ekki á það nema með því að prófa sig áfram – gera mistök, prófa aftur. Svo lengi lærir sem lifir, sagði einhver snillingurinn,“ segir Kristrún Heiða og það leynir sér ekki að þetta málefni er henni hugleikið. Það kom henni þó á óvart hvað nemendur hennar á námskeiðinu voru vel að sér varðandi Facebook og orðfærið þar. „Ég var helst að hjálpa þeim með þetta praktíska. Ólíkar leiðir til þess að nota Facebook, frið- helgistillingar, kurteisisvenj- ur og myndir. Þau voru öll mjög áhugasöm, sérstaklega um mynda- málin og vídeóin. Það sem kom mér þó mest að óvart var orðfærið! Þátttakendurnir voru sko alveg með það á hreinu. Ég var líka hvött til þess að halda Snapchat-nám- skeið, en ég baðst undan því og sagðist vera of gömul til að snappa. Þá hlógu þau að mér.“ „Ég skora bara á mömmu“ Facebook-námskeiðið fékk góð- ar viðtökur hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík og er stefnan að halda fleiri núna í sumar. „Já, við erum að skipuleggja fleiri námskeið. Á næstu námskeið- um ætlum við að skipta hópunum betur upp. Það verður eitt fyrir al- gjöra byrjendur, þá sem þykjast ekki þekkja haus né sporð og eru jafnvel ekki búnir að stofna aðgang. Og svo annað fyrir þá sem eru bún- ir að kynna sér þetta örlítið en finna til óöryggis eða eru strand með eitt- hvað. Námskeiðin verða auglýst á heimasíðu FEB, www.feb.is, þegar dagsetningarnar liggja fyrir.“ Það eru reyndar fleiri sem Kristrún Heiða vildi sjá á Facebook: „Ég hvet borgara á öllum aldri til þess að vera virkir og til í að læra eitthvað nýtt, svona á milli þess sem þeir hanga á Facebook, og svo skora ég á mömmu mína að fara nú að skrá sig þar: „Mamma, í alvörunni – þetta er ekkert mál.“ n „Enginn vill missa af neinu og svo margt „gerist“ á Facebook. Fullt nafn: Kristrún Heiða Hauksdóttir Aldur: 36 ár Atvinna: verkefnisstjóri hjá Forlaginu og lausapenni á nutiminn.is Áhugamál: bækur, leikhús og langlífi Kr in gl an Kr in gl um ýr ar br au t Miklabraut Miklabraut Við erum hér! Tilb oð 17 10 bitar fyrir 4-5 5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa. Stór af frönskum og 2l. Pepsi. Út fyrir kassann Kristín Tómasdóttir skrifar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.