Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Blaðsíða 33
Helgarblað 6.–9. maí 2016 Menning 25
Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni
sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög
þurru umhverfi.
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna
hornhimnunnar gegn þurrki.
Droparnir eru án rotvarnarefna
og má nota með linsum.
Þurrkur í augum?
Thealoz augndropar
Fæst í öllum helstu apótekum.
Ég var mjög slæm af augnþurrki án þess að gera mér grein
fyrir því. Þar sem ég var með nóg af tárum datt mér ekki
í hug að tengja það við aunþurrk. Alltaf með lekandi tár í
kulda, og smá vind. Systir mín ráðlagi mér að prufa Thealoz
því hún hafði mjög góða reynslu af þeim. Eiginlega bara
strax varð ég allt önnur og er hætt að vera með táraflóð og
finna fyrir þessari sandtilfinningu.
Erla Óskarsdóttir
Arkitektúr minningAnnA
n theresa Himmer rannsakar tengsl staða og minninga n Safn minninga um safn í Búlgaríu
ekki í gegnum það hvernig það er
kynnt opinberlega, heldur í gegn-
um hinar földu frásagnir, í gegnum
þá sem nota það. Skilja safnið sem
félagslega byggingu sem er sköpuð
í hversdagslegri notkun,“ segir hún.
Í ritverki sem Theresa vann með
Arnari Frey Guðmundssyni, graf-
ískum hönnuði, birtast endur-
minningar notenda um safnið,
af byggingu hússins og skorti á
viðhaldi, námskeiðum og umdeild-
um listasýningum á kommúnista-
tímanum, jarðarförum sem safnið
var notað undir og svo framvegis.
Hópurinn sem deildi minningum
sínum var fjölbreyttur; listamenn,
gestir, stjórnendur, ræstingafólk
og svo framvegis – en frásagnirnar
eru brotakenndar og ómerktar.
Þannig fær lesandinn smám saman
mósaík mynd af merkingu staðarins
fyrir samfélagið.
Í ljósmyndaverkunum vinnur
hún svo með hin sjónrænu form
safnsins, bæði í arkitektúrnum og
þau sem hafa orðið til vegna skorts
á viðhaldi eða fyrir tilviljun. Þessi
rými, form og strúktúra dregur
listakonan svo ýmist fram eða gerir
óskýrari með sandblásnu gleri utan
um myndirnar.
„Fyrstu myndirnar eru teknar
inni í galleríinu og beina athyglinni
að hinu sérstæða innan þess en svo
færast þær út á við, bæði efnislega
úr safninu og út að landslaginu og
borginni, og á hliðstæðan hátt út frá
því einstaka að formlegri og mynd-
rænni rannsókn á staðnum, frá
þessari tilteknu ferð minni og út að
öllum hinum fjölmörgu lögunum
sem liggja í safninu,“ segir Theresa.
„Ég vona að verkin virki á tveimur
plönum, bæði að þau séu nógu sér-
tæk til að segja fólki eitthvað um
þennan tiltekna stað og aðra menn-
ingu – um hvernig hlutirnir geti ver-
ið öðruvísi. En á sama tíma að þau
séu nógu opin til að fólk geti sett sig
sjálft inn í verkin. Þetta sé ekki endi-
lega of skýr rammi, fólki sé leiðbeint
eða niðurstaðan ákveðin, þannig að
þú getir varpað inn þinni eigin sögu
eða túlkun í verkið.“ n
Mynd: Marino Thorlacius
Borgartún 23, Reykjavík / Sími: 561 1300 / Opið: mán. - fös. 10-18, lau. 11-18 & sun. 12-16
Þú getur líka pantað á netinu www.reykjavikurblom.is
Blóm og gjafavara
við öll tækifæri
Góð og
persónuleg
þjónusta
Skírn - Fermingar - Brúðkaup - Samúð - Útfarir
n Dagskrá Skjaldborgar kynnt
Í vikunni var kynnt dagskrá heim-
ildamyndahátíðarinnar Skjald-
borg sem fer fram í tíunda sinn á
Patreks firði 13. til 16 maí. Tuttugu
og fimm myndir verða sýndar á há-
tíðinni og á dagskránni eru bæði ör-
stuttar myndir og í fullri lengd auk
nokkurra verka í vinnslu. Meðal
nýrra íslenskra heimildamynda sem
verða á dagskránni eru Heiti pottur-
inn eftir Hörpu Fönn Sigurjóns-
dóttur, Rúnturinn 1 eftir Steingrím
Dúa Másson, Garn eftir Unu Lorent-
sen og Keep Frozen eftir Huldu Rós
Guðnadóttur.
n Fangelsi verði að
menningarhúsi
Starfshópur um fram-
tíð Hegningarhússins
við Skólavörðustíg
leggur til að húsið verði
áfram í þjóðareigu og
þar verði fjölþætt menn-
ingarstarfsemi, auk verslunarstarf-
semi og veitingareksturs. Í skýrslu
hópsins er meðal annars stungið
upp á því að fangelsisgarðurinn geti
nýst undir tónleikahald: „Sviðslistir,
uppistand og fleira gæti einnig not-
ið sín í garðinum. Vel færi á því að
djasstónlist yrði þar sýndur sómi,“
segir meðal annars í skýrslunni.
n Menningarlaus bítlabær
Svo gæti farið að menningarhá-
tíðin Ljósanótt verði lögð af og
framlög til tónlistarkennslu í
Reykjanesbæ verði skorin niður,
en greiðslufall blasir við bænum eftir
að mistókst að semja við kröfuhafa
hans. Innanríkisráðuneytið mun að
öllum líkindum skipa fjárhaldsstjórn
yfir sveitarfélaginu sem mun tryggja
að lögboðin grunnþjónusta haldi
áfram, en þau verkefni sem ekki
flokkast sem lögbundin skylduverk-
efni gætu hins vegar lagst af.
úr listheiminum
Sprungur „Húsnæði
safnsins var í svo slæmu
ástandi, því hafði í raun
ekki verið haldið við. Þarna
voru risastórar sprungur
í byggingunni, sem lágu
niður vegginn og í gegnum
allt gólfið. Á einum stað
voru svo tvær litlar skrúfur,
hvor sínum megin, sem
áttu að halda byggingunni
saman. Það snerti svolítið
við mér – einhver vonlaus
tilraun til að halda þessum
hlutum saman. Ég var alveg
heilluð af þessum sprung-
um, þær segja margt um
efnismenningu byggingar-
tímans, um horfna
hugmyndafræði og pólitík
ákveðins tímabils. Þetta
var svo hlaðið merkingu. Ég
klippti ljósmyndirnar með-
fram sprungunum, þannig
að þær urðu að tveimur
myndum sem voru svo
rammaðar inn hvor í sínu
lagi.“ MynD STuarT richarDSon
Waterfall (2006)
„Ég ákvað að láta
þau hanga uppi
óhreyfð og leyfa þeim að
veðrast. Það hvernig það
drabbast niður verður þá
hluti af verkinu.
recollection Sýning í Bókasafni
Seltjarnarness.