Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Blaðsíða 29
Helgarblað 6.–9. maí 2016 Skrýtið Sakamál 21
Kynningarafsláttur
í verslun Lyfsalans
Segðu halló
FRÍSKANDI
LÍFRÆNT GOS
FULLKOMNAR
DAGINN
www.wholeearthfoods.com
Yfirfullt af náttúrulegum gæðum
Frískandi bragð - No nonsense
Fæst í heilsuvörubúðum og
öllum helstu matvöruverslunum
Á
haustmánuðum 2014 gift-
ist velska konan Fiona
Templeton unnusta sínum,
Sean Mullender. Tíu dög-
um fyrir giftinguna hafði
Daniel, níu vikna gamall sonur
þeirra, dáið á spítala eftir að hafa
verið aftengdur öndunarvél. Lítið
vissi Fiona um hvaða mann Sean
hafði að geyma og hvað hann
hafði á samviskunni. Hún vissi
ekki heldur að hann hafði verið
handtekinn vegna þeirra áverka
sem komu í ljós þegar Daniel var
skoðaður á spítalanum. Áverk-
ana, níu brotin rifbein, heilablæð-
ingu og -skaða, hafði Daniel fengið
þegar Sean hristi hann heiftarlega.
Tveimur dögum síðar var litli
drengurinn allur.
Sleppt gegn tryggingu
Sean hafði síðar verið sleppt gegn
tryggingu og bar kistuna þegar
Daniel var lagður til hinstu hvílu.
Sannleikurinn kom Fionu í opna
skjöldu og sagði hún meðal annars,
í viðtali við Wales Online: „Við gát-
um ekki ímyndað okkur að Sean
gæti gert flugu mein. Hann var
stóra ástin mín og var svo ham-
ingjusamur þegar Daniel fæddist.“
Dómur var kveðinn upp nú um
mánaðamótin og fékk Sean átta
ára dóm. Eðli málsins samkvæmt
óskar Fiona þess að fá skilnað
enda hugnast henni ekki að vera
gift morðingja sonar síns og telur
einnig að hann hafi sloppið helst til
vel með einungis átta ára dóm.
Eldri skilorðsbundinn dómur
Sean Mullender lýsti sig saklausan
af morði að yfirlögðu ráði en játaði
á sig manndráp af gáleysi. Sagðist
hann hafa valdið áverkum Daniels
í „hita augnabliksins“.
Fiona sagðist verða óglatt við þá
tilhugsun að Sean hafi borið Dani-
el til grafar. „Dómurinn hefði aldrei
getað orðið of þungur. Hann mun
losna út fljótlega og líf hans held-
ur áfram, en ég mun daglega hugsa
um það líf sem sonur minn kynni
að hafa átt. Þetta líf svipti hann okk-
ur,“ sagði Fiona. Við réttarhöldin
kom fram að Sean hafði skilorðs-
bundinn dóm frá 2011 á bakinu,
fyrir að hafa beitt unglingsstúlku
kynferðislegu ofbeldi. n
Giftist morð-
ingja sonar síns
n Sean var stóra ástin hennar Fionu n Það átti eftir að breytast
„Dómurinn
hefði aldrei
getað orðið of þungur.
Sean Mullender
Fékk of vægan dóm að
mati Fionu Templeton.
Mynd LögrEgLan í WaLES