Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Side 38
Helgarblað 6.–9. maí 201630 Fólk
„Kynslóðirnar þurfa að
hanga miklu meira saman“
n Eldri borgarar læra á Facebook n Þau hlógu þegar Kristrún sagðist vera of gömul til að snappa
K
ristrún Heiða Hauksdóttir
er sjálfboðaliði hjá Félagi
eldri borgara í Reykjavík.
Hún vill að ömmur og afar
og allt eldra fólk sé óhrætt
við að nota Facebook til þess að
halda góðu sambandi við sitt fólk.
„Ég hafði samband við Félag
eldri borgara í Reykjavík þegar ég
var í fæðingarorlofi og bauð fram
krafta mína ef þau vildu liðsinni við
einhver verkefni. Sjálf vildi ég að til
væri „félag verðandi eldri borgara“,
ég væri sko pottþétt í því! Ég stefni
nefnilega að því að verða mjög
langlíf. Það er líka mikilvægt að við
umgöngumst öll sem fjölbreyttast
fólk, það er betra fyrir umburðar-
lyndið og víðsýnina í samfélaginu.
Mér – eins og mörgum – hættir til
að einangra mig og umgangast helst
bara þá sem tala eins og ég og hugsa
eins og ég. Kynslóðirnar þurfa að
hanga miklu meira saman, og það
er til dæmis auðvelt með hjálp frá
Facebook.“
Hvers konar verkefnum kemur
þú að hjá félaginu?
„Þau hjá FEB hafa tekið mér svo vel!
Þau fundu strax hvar mitt „forte“
liggur og þess vegna fékk ég meðal
annars að hjálpa til við útgáfu á
blaðinu þeirra. Næstu Félagstíðindi
FEB eru einmitt væntanleg núna
í vor. Mjög flott blað, tékkið
endilega á því. Svo stóð félagið fyrir
Facebook-námskeiði þar sem ég
var leiðbeinandi. Það var reglulega
gaman. Margir höfðu samband og
spurðust fyrir um námskeiðið. Og
svo mættu allir sem skráðu sig –
það er ekki alltaf þannig hér á landi.
Þátttakendur voru mjög duglegir
að spyrja út í allt mögulegt, það
er greinilega talsverð þörf á svona
Facebook-fræðslu. Ég vona að
allir hafi lært eitthvað gagnlegt og
skemmt sér vel í leiðinni.“
Orðfærið kom mest á óvart
Í kringum 90% Íslendinga á
aldrinum 18 ára og eldri nota Face-
book reglulega. Hópur eldri not-
enda fer stöðugt stækkandi og með
tilkomu spjaldtölva hafa fleiri eldri
borgarar nýtt sér þetta tækifæri til
þess að vera í meiri samskiptum við
fjölskyldu og vini.
„Ég hvet alla eldri borgara til þess
að vera þar sem þeirra fólk er, og
vera alveg ófeimna við að prófa nýja
hluti. Enginn vill missa af neinu
og svo margt „gerist“ á Facebook
núorðið. Ef fjölskyldur eru almennt
að nota Facebook mikið til þess að
halda sambandi þá eiga ömmur
og afar, frænkur og frændur og
allir aldavinir endilega að vera
með. Þetta getur verið frábært tól
þegar maður kann að nota það og
maður lærir ekki á það nema með
því að prófa sig áfram – gera mistök,
prófa aftur. Svo lengi lærir sem lifir,
sagði einhver snillingurinn,“ segir
Kristrún Heiða og það leynir sér ekki
að þetta málefni er henni hugleikið.
Það kom henni þó á óvart hvað
nemendur hennar á námskeiðinu
voru vel að sér varðandi Facebook
og orðfærið þar.
„Ég var helst að hjálpa þeim
með þetta praktíska. Ólíkar leiðir
til þess að nota Facebook, frið-
helgistillingar, kurteisisvenj-
ur og myndir. Þau voru öll mjög
áhugasöm, sérstaklega um mynda-
málin og vídeóin. Það sem kom
mér þó mest að óvart var orðfærið!
Þátttakendurnir voru sko alveg
með það á hreinu. Ég var líka hvött
til þess að halda Snapchat-nám-
skeið, en ég baðst undan því og
sagðist vera of gömul til að snappa.
Þá hlógu þau að mér.“
„Ég skora bara á mömmu“
Facebook-námskeiðið fékk góð-
ar viðtökur hjá Félagi eldri borgara
í Reykjavík og er stefnan að halda
fleiri núna í sumar.
„Já, við erum að skipuleggja
fleiri námskeið. Á næstu námskeið-
um ætlum við að skipta hópunum
betur upp. Það verður eitt fyrir al-
gjöra byrjendur, þá sem þykjast
ekki þekkja haus né sporð og eru
jafnvel ekki búnir að stofna aðgang.
Og svo annað fyrir þá sem eru bún-
ir að kynna sér þetta örlítið en finna
til óöryggis eða eru strand með eitt-
hvað. Námskeiðin verða auglýst á
heimasíðu FEB, www.feb.is, þegar
dagsetningarnar liggja fyrir.“
Það eru reyndar fleiri sem
Kristrún Heiða vildi sjá á Facebook:
„Ég hvet borgara á öllum aldri
til þess að vera virkir og til í að læra
eitthvað nýtt, svona á milli þess sem
þeir hanga á Facebook, og svo skora
ég á mömmu mína að fara nú að
skrá sig þar: „Mamma, í alvörunni –
þetta er ekkert mál.“ n
„Enginn vill
missa af neinu
og svo margt „gerist“
á Facebook.
Fullt nafn: Kristrún Heiða Hauksdóttir
Aldur: 36 ár
Atvinna: verkefnisstjóri hjá Forlaginu
og lausapenni á nutiminn.is
Áhugamál: bækur, leikhús og langlífi
Kr
in
gl
an
Kr
in
gl
um
ýr
ar
br
au
t
Miklabraut
Miklabraut
Við
erum
hér!
Tilb
oð
17 10 bitar fyrir 4-5
5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa.
Stór af frönskum og 2l. Pepsi.
Út fyrir
kassann
Kristín Tómasdóttir
skrifar