Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Side 10
Helgarblað 6.–9. maí 201610 Umræða Stjórnmál
» Loftsíur
» Smurolíusíur
» Eldsneytissíur
» Kælivatnssíur
» Glussasíur
Baldwin® hefur sérhæft sig í
smur-, loft- og hráolíusíum.
Við bjóðum upp á Baldwin® síur í
flestar gerðir þungavinnu- og sjóvéla á
hagstæðum verðum.
Verkstæði og viðgerðarþjónusta
Aðalsmerki Bætis er verkstæðið og
viðgerðarþjónustan.
Á verkstæði okkar erum við með öll tæki
til endurbyggingar á allt að 1750 hestafla
vélum.
Túrbínur
Bætir ehf. býður upp
á viðgerðarþjónustu
fyrir flestar gerðir
túrbína. Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík
N
ú liggur nokkurn veginn ljóst
fyrir að það verða Hillary
Clinton og Donald Trump
sem keppa um forsetaemb-
ættið í Bandaríkjunum. Eftir
afgerandi sigur Trumps í Indiana síð-
astliðinn þriðjudag dró helsti keppi-
nautur hans, Ted Cruz, sig úr leik og
svo virðist sem repúblikanar verði að
fylkja sér að baki auðkýfingnum um-
deilda, þótt þeir geri það vissulega
með óbragð í munni. Nokkuð er síðan
ljóst varð að Hillary hafði borið sigur-
orð af Bernie Sanders, þótt sá síðar-
nefndi hafi heitið því að berjast til loka.
Þetta þýðir að frambjóðendurnir
geta farið að einbeita sér að sjálfum
forsetakosningunum í nóvember. Þeir
þurfa til að mynda að haga málflutn-
ingi sínum þannig að hann höfði til
breiðari hóps kjósenda en eingöngu
grasrótarinnar í eigin flokki. Þetta ekki
síst við um Trump sem hefur haft uppi
stór og vafasöm orð til að heilla kjós-
endur repúblikana. Eitt mikilvægasta
verkefni þeirra Clinton og Trumps er
að finna verðugt varaforsetaefni, ein-
hvern sem getur bætt upp fyrir ókosti
þeirra. Í þeirra tilfelli er það sérstak-
lega mikilvægt því bæði eru þau al-
mennt illa þokkuð af kjósendum.
Þannig sýnir nýleg könnun að 56 pró-
sent líta Hillary Clinton neikvæðum
augum, á meðan 65 prósent hafa þá
skoðun á Trump. n
Hillary og Trump horfa fram í nóvember
n Leitin að varaforsetaefnum er hafin n Hillary með frjálsar hendur á meðan Trump þarf að senda skýr skilaboð
Magnús G. Eyjólfsson
mge@eyjan.is
Hillary Clinton
Hillary Clinton hefur töluvert frjálsar hendur
þegar kemur að því að velja varaforsetaefni. Hún
höfðar sterkt til kvenna, svartra og spænskumæl-
andi og þarf því ekki að huga sérstaklega að þeim
þáttum við val sitt. Þá hefur hún, ólíkt mörgum öðr-
um forsetaframbjóðendum, mikla þekkingu á utan-
ríkismálum, hafandi gegnt embætti utanríkisráðherra
fyrstu fjögur ár Obama-stjórnarinnar. Þess vegna
hafa verið leiddar að því líkur að hún
velji einhvern sem getur sameinað
Demókrataflokkinn og höfðað
til frjálslyndari arms hans,
þeirra sem fylktu sér að baki
Bernie Sanders. Ólíklegt er
að Sanders verði fyrir valinu
en fylgismenn hans hafa
horft til stríðskonunnar
Elizabeth Warren, öldunga-
deildarþingmanns fyrir
Massachusetts-ríki. Spek-
ingar vestanhafs telja það
sömuleiðis ólíklegt. Bæði
hefur Warren verið afar
gagnrýnin á hversu höll
Clinton hefur verið undir
peningaöflin, hún lýsti
ekki yfir stuðningi við
hana í baráttunni gegn
Sanders og hún hefur
ítrekað sagst ekki
ætla að sækjast eftir
æðri metorðum.
Þeir frambjóð-
endur sem þykja
líklegastir um
þessar mundir
eru:
Tim Kaine Sá sem þykir líklegastur um þessar mundir
er Tim Kaine, öldungadeildarþingmaður frá Virginíu og þar áður
ríkisstjóri. Hann var einn af þeim fyrstu til að lýsa yfir stuðningi við
framboð Hillary. Kaine þykir hafa gott pólitískt nef og var hann
til að mynda á meðal þeirra fyrstu sem studdu forsetaframboð
Baracks Obama árið 2007. Kaine þykir hófsamur, talar reiprennandi
spænsku, hefur reynslu af utanríkismálum og þykir líklegur til að
höfða til óháðra kjósenda. Virginía er auk þess eitt barátturíkjanna
sem koma til með að vega þungt í kosningabaráttunni. Sú stað-
reynd að hann er miðaldra, hvítur karlmaður vinnur gegn honum,
auk þess sem hann kann að fæla fylgismenn Bernie Sanders frá.
Sherrod Brown Annar líklegur frambjóðandi er Sherrod
Brown sem nú situr í öldungadeildinni fyrir Ohio-ríki, sem er eitt þeirra
lykilríkja sem koma til með að ráða úrslitum. Brown er litríkur og talað er um
hann sem popúlista í fjölmiðlum vestanhafs, en hann hefur það með sér að
sækja í sama kjósendahóp og Elizabeth Warren og Bernie Sanders. Á móti
kemur að hann þyrfti að gefa eftir sæti sitt í öldungadeildinni sem yrði mjög
áhættusamt fyrir demókrata sem róa að því öllum árum að endurheimta
meirihlutann þar. Þá hefur Brown sagst hafa takmarkaðan áhuga á starfinu.
Julian Castro Á pappírunum er Julian Castro óskaframbjóð-
andi Clinton. Hann er einungis 41 árs gamall, þykir búa yfir miklum persónu-
töfrum og er sagður eitt mesta efni Demókrataflokksins. Ekki skemmir fyrir
að hann er af rómönskum uppruna, þótt það vinni gegn honum að vera frá
Texas þar sem íbúar þess ríkis munu aldrei kjósa demókrata. Hann er nú
ráðherra húsnæðis- og skipulagsmála í ríkisstjórn Obama, sá yngsti í stjórn-
inni, en var áður borgarstjóri í San Antonio. Hann hefur takmarkaða reynslu
af utanríkismálum, en reynsla Hillary vegur það upp.
Tom Perez Vinnumálaráðherrann í ríkisstjórn Obama hakar við
í tveimur boxum hjá Clinton. Hann er af rómönskum uppruna og þykir vel
liðinn meðal frjálslyndra. Og hann heitir hvorki Bernie Sanders né Elizabeth
Warren sem hvorugt er á óskalista Clinton. Hann þykir þó hafa nokkra
ókosti. Fyrir það fyrsta vita afskaplega fáir hver Tom Perez er, hann er
hvorki ungur né aðlaðandi og hefur enga reynslu af utanríkismálum.
Amy Klobuchar Eina konan sem sterklega hefur
verið nefnd til sögunnar sem varaforsetaefni Clinton er Amy
Klobuchar, öldungadeildarþingmaður frá Minnesota. Hún nýtur
mikils persónufylgis, hefur gríðarlegan metnað og nafn hennar
kemur upp í hvert skipti sem áhrifastaða, sem demókratar
þurfa að fylla upp í, losnar. Hún var meðal annars orðuð við
dómarasætið sem Antonin Scalia skildi eftir sig þegar hann lést.
Það vinnur gegn henni að vera frá Minnesota sem er blátt ríki.
Annars vegar þurfa demókratar ekki að hafa áhyggjur af því að
tapa þingsætinu hennar, en á móti kemur að demókratar munu
vinna ríkið hvort sem hún er varaforsetaefni eða ekki.