Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Page 22
Helgarblað 6.–9. maí 20166 Besti ísinn í bænum - Kynningarblað
Ekkert jafnast á við
hefðbundinn ítalskan ís
Paradís, Njálsgötu 23, 101 Reykjavík
G
elato – ítalskur ís. Margir
vita fátt betra og í þeirra
hópi er Alexandra Rut Sól-
bjartsdóttir. Hún lét sig
dreyma um að opna ísbúð
með ítölskum ís, en þó mjög stutt,
því Alexandra lætur drauma sína
rætast, eða eins og hún segir: „Ef ég
hef ástríðu fyrir einhverju þá fram-
kvæmi ég það.“ Hún gerði sér því
lítið fyrir og lærði ísgerð í Bologna á
Ítalíu. Í kjölfarið opnaði hún ísbúð-
ina Paradís að Njálsgötu 23.
Alexandra, sem er 26 ára, segir
að ísgerðarnámið hafi verið töluvert
umfangsmeira en hún átti von á:
„Þetta var töluvert ferli á undan,
ég fékk sendar margar bækur og
mikið lesefni sem ég þurfti að
kynna mér áður en ég fór út. Ég var
því komin með góðan grunn áður
en ég fór út en eftir það tók við seta
á skólabekk í Bologna, í tvær vikur,
níu klukkustundir á dag.“
Er það svona mikil kúnst að búa
til ís?
„Það er alveg hægt að opna ís-
búð án þess að kunna neitt og vera
bara með uppskriftabók. En ef það
verður bilun í vélunum þá veit fólk-
ið ekkert hvernig á að búa til ís. Ég
vildi hafa þetta þannig að ég þyrfti
enga vél, bara dollu og gæti hamrað
þetta saman.“
Ítalskur ís er rómaður. Hvað er
það sem einkennir hann?
„Þetta er heimagerður ís, þ.e.a.s.
búinn til á staðnum. Þetta eru alls
konar ísgerðir sem koma ekki beint
úr vél. Síðan eru bragðtegundirnar
margar og framandi, til dæmis Or-
eo-ís og ís með ostakökubragði.
Síðan er það sorbet – mjólkurlausi
ísinn. Hann er afskaplega vinsæll
á sumrin, sérstaklega ef heitt er í
veðri, vegna þess að mjólkurleysið
gerir hann svo ferskan.“
Paradís býður upp á 10 gerðir af
mjólkurís og 6 gerðir af sorbet-ís.
Bragðtegundirnar eru síðan nánast
óteljandi.
Hvað mjólkurísinn varðar þá er í
Paradís settur rjómi í alla mjólkur-
ísblönduna enda hefur Alexandra
komist að því að fólk vill hafa
rjómabragðið með.
Paradís var opnuð sumarið 2014
og heldur núna inn í sína aðra heilu
sumarvertíð. Á vorin og sumrin
verður sprenging í viðskiptunum
en reyndar er líka mikið að gera á
veturna:
„Við erum með marga
fastakúnna sem koma allt árið um
kring, sumir jafnvel daglega, og
eru sólgnir í sinn uppáhaldsís. En
á sumrin er þetta svo mikið að við
verðum að bæta verulega við
starfsfólki. Við erum með al-
veg frábært starfsfólk sem
hefur flest verið með okkur frá
því við byrjuðum,“ segir Alex-
andra.
Sem fyrr segir er ísbúð-
in Paradís að Njálsgötu 23 og
er opin frá 12 á hádegi til 23 á
kvöldin. Síminn er 555-4700. n