Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Síða 24
Helgarblað 6.–9. maí 20168 Besti ísinn í bænum - Kynningarblað Elsta varan er Toppur – sú nýjasta Djæfpinni með pipardufti E lsta og vin­ sælasta varan frá Emmessís er Toppur sem kom á markaðinn árið 1968. Fólk á miðjum aldri og þar yfir þekkir hann vel frá æskudög­ um sínum og fólk á öll­ um aldri nýtur hans í dag en hann selst enn­ þá gríðarlega vel. „Vissu­ lega eru til dæmi um slík­ ar, sívinsælar vörutegundir erlendis en engu að síður er þetta fremur fágætt. Að eiga svona vöru sem selst ár eftir ár er mjög gott. Þetta er klárlega vinsælasta einstaka varan okkar,“ segir Ragnar Birgisson, framkvæmdastjóri Emmessíss. Fjórar tegundir af Toppum eru í boði núna, þar sem hnetu­ toppurinn heldur áfram að standa sína plikt eins og hann hefur gert allar götur síðan 1968, en auk hans eru það Smarttoppur, sem er með Smartískúlum og hjúp, Daimtoppur, með Daimkúlum og súkkulaðihjúp, og Karamellutopp­ ur, sem kom aftur til sögunnar í fyrra eftir nokkurt hlé og sló í gegn á ný. „ Daimvörurnar okkar eru mjög vinsælar, en auk toppsins eru það Daimpinnar og Daimís í boxum,“ segir Ragnar. Hann bendir á að nokk­ ur tilfærsla hafi orðið á lausa­ sölu pinnaíssins. Hér áður fyrr hafi þeir fyrst og fremst verið seldir í sjopp­ um en þeim hefur fækkað mjög mikið. Emmess­pinnaísinn er vissulega vinsæll í sjoppum víða á landsbyggð­ inni sem og á öllum sölu­ stöðum N1 og Olís en að öðru leyti hefur hann mikið færst í heimilispakkningar í stórmörkuðum og selst þar best. Sem dæmi má nefna að Karamellutoppurinn vinsæli fór fyrst í lausasölu en sló mun betur í gegn eftir að hann fór einnig í heimilispakkningar. Meðal annarra vinsælla pinna­ ísa má nefna Galdrastaf og Karni­ val­stöng, hvort tveggja nýjungar sem komu fram í fyrra og mæltust þá mjög vel fyrir; Vanillustöng sem er í EM­búningi í sumar, Trúða­ ísinn sívinsæla, og svo lurkana, en það eru frostpinnar; þeir eru vitanlega án mjólkur og því góður kostur fyrir þá sem eru með mjólkur­ óþol. Spennandi Djæf- nýjungar Emmessís teflir fram spennandi nýj­ ung í heimilispakkning­ um núna í vor en það er til­ boðskassi með sjö Djæfpinnum á verði fimm. Þetta eru pinnar með hrískúlum, súkkulaðibragði og hnetu kurli. Búast má við að þessi pakki eigi eftir að slá hressi­ lega í gegn hjá þeim mörgu sem elska Djæfpinna. Önnur, ekki síður spennandi nýjung, er nýr Djæfpinni með pipar dufti, hinu vinsæla „Turkish Pepper“­dufti. Það er örugglega tilhlökkunarefni fyrir marga að bragða á honum. „Við erum rjómaíssfyrirtæki“ Emmessís rekur ekki ísbúðir lengur en er í samstarfi við margar ísbúð­ ir sem selja ís úr vél, til dæmis N1­ keðjuna og IKEA, sem er mjög vax­ andi aðili í íssölu. Ragnar segir að í grófum dráttum megi segja að Emmessís og Kjörís skipti ísmark­ aðnum á milli sín: „Þá undanskiljum við ísbúðirn­ ar sem margar eru reknar af aðil­ um sem framleiða sinn ís sjálfir, og enn fremur nokkar dýrar og vinsælar innfluttar tegundir. Það sem gefur okkur sérstöðu í þessari samkeppni er að við erum rjóma­ íssfyrirtæki. Við framleiðum ekki ís úr jurtafeiti heldur rjóma – þetta er beint af kúnni. Það er sagt að mjólk sé góð og við segjum hiklaust að rjómi sér góður. Mér finnst mikil­ vægt að undirstrika þetta því það gera sér ekki allir grein fyrir þessari sérstöðu Emmessíss.“ Á heimasíðu Emmessíss, emmessis.is, er að finna ítarlegar upplýsingar um vöruframboðið, fróðleik um sögu fyrirtækisins og margt fleira. n Emmessís:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.