Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Síða 25
Helgarblað 6.–9. maí 2016 Fólk Viðtal 17
Húðin hefur mörg andlit
Verði þinn vilji Borgartúni 3, Rvk.
Heilsa og útlit Hlíðarsmára 17, Kóp.
Túlip Hæðasmára 6, Kóp. Deluxe Glæsibæ
Pandora Þangbakka 8-10, Rvk.
fæðingarvottorð Obama. Bækurnar
sem ég skrifaði á þessu tímabili eru
alla vega á bókasöfnum, svo tilvistin
verður ekki dregin í efa. Fólk er hins
vegar ekki vitlaust og trúir kannski
einhverju sem það hefur lesið. Ég
get til dæmis ekki nefnt alla lands-
liðsmenn í fótbolta núna, og sumum
finnst ég kannski vitlaus fyrir vikið. En
ég trúi þeim sem vita betur og segja
mér hverjir eru í liðinu.
Umræðan um lífsviðurværi rit-
höfunda og íslenskar bókmenntir er
mikilvæg því íslenskan er örtungu-
mál. Styrkir eru forsenda þess að rit-
höfundar skrifi bækur á tungumálinu
okkar. Á þessu 10 ára tímabili sem
rætt er um skrifaði ég þrjár bækur,
tvö leikrit og kvikmyndahandrit. Auk
þess eru tvö önnur verkefni óbirt.
Á sama tímabili talaði ég um bók-
menntir, tungumálið og skapandi
hugsun við 10–20 þúsund börn. Ef
ég tek dæmi af árinu 2007, þáði ég
listamannalaun helming ársins. Það
jafngildir 100 þúsund krónum í föst
mánaðarlaun. Listamannalaun eru
langt undir framfærslumörkum, ólíkt
því sem margir virðast halda. Sama
ár tók ég að mér að vinna skólastefnu
fyrir Krikaskóla í Mosfellsbæ, þannig
aflaði ég tekna til viðbótar. Ég er líka
nokkuð viss um að þessar 100.000
krónur séu ekki mesta tjónið á fjár-
málum ríkisins sem framið var 2007.
Tökum annað dæmi. Ég tel að
barnabækur séu hluti af innvið-
um íslensks samfélags, rétt eins og
vegagerðin og rafmagnsveitan og
heilsugæslan og lambakjötið. Til að
rækta tungumálið verðum við að skrifa
góðar bækur fyrir börnin. Ég spyr fólk
stundum hversu margir íslenskir höf-
undar hafi fengið 12 mánaða styrk
árið 2012 til að skrifa barnabók. Fólk
heldur að 10–15 barnabókahöfundar
séu á árslaunum. En það var bara
einn – ég. Styrkurinn gerði mér mögu-
legt að skrifa Tímakistuna, sem fékk
íslensku bókmenntaverðlaunin og
hefur verið seld til átta landa. Með því
næ ég kannski upp í þúsund krónur á
tímann fyrir vinnuna sem ég lagði í að
skrifa bókina.“
Lati listamaðurinn
„Svona umræða byggist á fornum
hugmyndum um lata listamanninn.
Hún er grimm og sérkennileg. Þetta
eru fordómar sem eru þess virði að
berjast gegn vegna þess að fátt er
mikilvægara en að skrifa góðar bækur
fyrir börn. Þegar einhver er kallaður
afæta fyrir það, er þjóðin á mjög
vondum stað. Við ættum að vera með
að minnsta kosti tíu manns á fullu í
að skrifa fyrir börn og þeir eiga að fá
að gera það alla ævi, eins og Guðrún
Helgadóttir og Ármann Kr. Það mun
aldrei borga sig að skrifa barnabæk-
ur á Íslandi án styrkja, þess vegna eru
þeir nauðsynlegir. Þeir sem eru á móti
því og vilja ekki borga, geta meira að
segja notið verkanna á bókasöfnum.
Við þurfum líka að átta okkur á
efnahagslegu umsvifunum sem bóka-
útgáfa skapar. Bækur mínar seldust í
40 þúsund eintökum á Íslandi á síð-
ustu tíu árum. Ef við gefum okkur
að hvert eintak hafi kostað 4 þúsund
krónur, hefur salan myndað 160 millj-
óna króna veltu í samfélaginu. Það
má áætla að útgáfan hafi skapað um
40 störf – í prentsmiðjum, forlögum,
bókasöfnum, bókaverslunum og svo
framvegis. Höfundarlaunin eru hins
vegar það lág að þau duga mér ekki
ásamt listamannalaunum, sem ég
hlaut átta sinnum á tímabilinu. Sam-
tals slagar þetta ekki upp í kennara-
laun.
Spurningin er hvort við viljum
halda uppi atvinnumennsku í bók-
menntum á Íslandi eða ekki. Ef við
ætlum að halda uppi örtungumáli í
keppni við 300 milljón enskumælandi
manna í kringum okkur verðum við
að leggja eitthvað til. Peningarnir sem
fóru í að búa til Hollywood-myndina
Dumb and dumber 2 er hærri en
Launasjóður rithöfunda í 20 ár.
Bóksala skilar ríkissjóði 600 millj-
ónum árlega í formi virðisaukaskatts,
á meðan styrkir til frumsköpunar
eru aðeins 200 milljónir á ári. Hér er
talinn glæpur að starfa sem rithöf-
undur í tíu ár, en að vera forseti í 20 ár,
það er önnur saga.
Kannski stríðir það gegn réttlætis-
kennd einhverra að íslenskan og bók-
menntirnar séu ekki á frjálsum mark-
aði. En það er ómögulegt að
skrifa á íslensku án styrkja.
Það er bara þannig. Land-
búnaður og vegakerfið
þiggja til að mynda opin-
bera styrki. Ef við viljum
hafa innlendan landbúnað
er það nauðsynlegt, og það
sama gildir um bókmenntir
og listir.
Að beita hagfræðirökum
á bókmenntir og listir er
ávísun á menningarlegan
dauða. Nýjasta bókin mín
fjallar til dæmis um sjálfs-
víg. Ef hún selst í hundrað
eintökum og hefur áhrif á
fólk er ómögulegt að meta
hagræn áhrif þess. Það
sama gildir um listaverk
sem reyna á þanþol hug-
ans og fá okkur til að sjá
heiminn í öðru samhengi.
Það er ekki hægt að fjalla
um þessi áhrif með efna-
hagslegum formerkjum.“
Stórar hugmyndir
Hvernig sérðu fyrir þér að
gegna embætti forseta Ís
lands, verður þú meira
eins og Ólafur Ragnar
eða Vigdís?
„Mig langar til að hafa áhrif á lang-
tímahugsun og stærri hugmyndir. Ég
tel óæskilegt að trufla störf Alþing-
is, við verðum að treysta Alþingi og
þar starfa þjóðkjörnir fulltrúar okkar.
Ég myndi vilja leiða saman hópa og
vinna að stærri myndinni, ramm-
anum sem við störfum innan. For-
seti Íslands er í raun eini þjóðkjörni
einstaklingur stjórnkerfisins og get-
ur starfað þvert á flokka og mörk –
eins og kjördæmi og hreppamörk. Til
að mynda er mjög mikilvægt að líma
saman sveit og borg. Ég hef kom-
ið nálægt nýsköpunarverkefnum í
sveitum og þekki þar marga sem eru
að gera mjög spennandi hluti.
Eitt af því sem er mér hugleikið er
að Ísland er sjö sinnum stærra haf en
land. Landhelgin okkar er sjö sinnum
stærri en fasta landið, okkur hættir
til að hugsa ekki um það, sjáum bara
skvampandi öldur allt í kringum okk-
ur. Við veiðum 1% af öllum fiski í
heiminum – en langstærstur hluti ís-
lenskra barna elst upp í Grafarvogi og
Breiðholti í litlum tengslum við haf-
ið. Grunnurinn að því að við getum
unnið sem mest verðmæti úr fiskin-
um og staðið okkur í rannsóknum er
að börn og unglingar fái áhuga fyrir
hafinu og lífríki sjávarins. Þess vegna
þurfum við að tengja saman mennta-
kerfi og rótgrónar atvinnugreinar. Við
þurfum að tengja 105 og sveitina,
Breiðholt og sjóinn. Það myndi
styrkja okkur mikið að brjóta niður
þessi landamæri. Systir mín er heila-
skurðlæknir og var ekkert að krukka
í heilann á okkur bræðrum þegar við
vorum lítil. Hún hafði enga reynslu af
því að vesenast í heilum þegar hún
hóf nám í greininni. Við erum oft læst
í hugsun varðandi menntun og at-
vinnugreinar, og það er áhugavert að
hræra upp í henni á jákvæðan hátt.
Skilgreiningar eru of þröngar og hver
stétt of gjörn á að hlaupa í vörn.“
Út fyrir 101
Nú hafa margir sagt að þitt augljósa
fylgi sé í 101 Reykjavík og Vestur
bænum. Hvernig hefur gengið að ná til
fólks utan þess landfræðilega radíuss?
„Ég fæ góðar móttökur úti á landi.
Sjálfsmynd mín á heima á Melrakka-
sléttu og mér er mjög annt um landið
okkar. Ég gagnrýndi Alcoa á sínum
tíma og sumir töldu að ég væri al-
mennt á móti landsbyggðinni af
þeim sökum. Á þeim tíu árum síðan
sú umræða stóð sem hæst hefur
Lagarfljót nánast dáið og Mývatn er í
nauðvörn. Árið 2006 var allt hálendið
undir og engum stað átti að eira. Ég sé
svo sannarlega ekki eftir því að hafa
stigið inn á það svið. Draumurinn um
hálendisþjóðgarð er nær okkur núna
en fyrir áratug.
Held að það sé samt alveg rétt
hjá þér að ég eigi líklegt fylgi í vestari
hlutum borgarinnar. Ég á mjög sterka
hópa og fólk sem ég hef unnið með
og vill treysta mér. Verkefni mitt er
að sýna að ég hafi eitthvað upp á að
bjóða fyrir aðra, eitthvað sem snertir
ekki bara þrönga hagsmuni. Verkið er
að tala við sem flesta og koma mínum
hugmyndum um embættið á fram-
færi. Ég er samt fyrst og fremst Ár-
bæingur, fjórða kynslóð, og núna bý
ég í Karfavogi og hef aldrei búið í 101.
101 er líka í vörn um þessar mundir.
Ef það yrði gerð B-mynd um svæð-
ið mundi hún heita „Puffin Zombie
Apocalypse“.“ Þarna vísar forseta-
frambjóðandinn Andri að sjálfsögðu
til þess að með auknum ferðamanna-
straumi er miðbærinn að fyllast af
túristabúðum, á meðan gamlar rót-
grónar sérverslanir hverfa á brott.
Samt er hann mjög jákvæður í
garð ferðamannastraumsins. „Í raun
er kraftaverk að við séum ekki búin
að missa rútu í Reynisfjöru eða horfa
upp á 1.000 manna hópmatareitr-
un. Það er ævintýri líkast hvernig
mönnum hefur
tekist að flaka allan
þennan afla, hversu
lítið hefur farið í
gúanó í þessu síldar-
ævintýri. Við verð-
um að stýra straumn-
um og nýta hann svo
þetta styrki þá innviði
sem við viljum byggja
upp. Fyrirhugað hús
íslenskra fræða er til
dæmis allt of lítið. Við
eigum að hafa metn-
að til að búa til safn
fyrir handritin. Kon-
ungsbók Eddukvæða
er einn merkilegasti
forngripur í Evrópu,
frumheimild í nor-
rænni goðafræði, og
þennan grip eigum við.
Það eru ekki bara fræði-
menn sem hafa áhuga
á þessu heldur einnig
norskir dauðarokkar-
ar og handritahöfund-
ar í Hollywood. Stór-
virkið Thor 2 hefði
aldrei verið framleitt
án Eddukvæðanna, svo
ég tali nú ekki um verk
Wagners og Tolkiens.
Bara goðafræðin kallar á mjög stórt
safn og þá erum við ekki farin að tala
um konungasögur, Snorra Sturlu-
son, Íslendingasögurnar og Riddara-
sögurnar. Heimar goðafræðinnar eru
svo stórir og við þurfum að gefa þeim
meira pláss en þá 350 fermetra sem
núverandi áætlun gerir ráð fyrir.
Við þurfum að hlífa náttúrunni og
beina fólki á sögustaði sem þola ágang
og hreinlega bíða eftir fólki til að taka
á móti. Það gæti til dæmis breytt miklu
að láta millilandaflug lenda árið um
kring á Egilsstöðum eða Akureyri.
Landsbyggðin mundi græða helling
á því að vera 2 tíma frá Evrópu í stað
tveggja daga. Svona þurfum við að
styrkja innviði samfélagsins.“
Mundi aldrei afneita Björk
Hvað kostar kosningabaráttan þín og
hver borgar?
„Reglurnar segja að hámarks-
framlag frá hverjum einstökum lög-
aðila sé 400 þúsund krónur. Þannig er
enginn sem getur keypt einstakling í
framboði. Þú mátt svo eyða því sem
þú vilt af þínum eigin pening. Við
erum með opinn kosningasjóð og
það eru að koma inn fimm þúsund
og fimmtíu þúsund kallar. Það sem
hefur safnast dugar okkur til að ráða
tvær manneskjur í starf í tvo mánuði
og keyra hringinn til að hitta fólk. Við
erum að safna fjármagni og vera hug-
kvæm í því hvernig við notum það.“
Hefurðu reynt að hreinsa þig af
tengslum við Björk Guðmundsdóttur?
„Nei, alls ekki. Sögur gengu af því
að Björk borgaði kosningabaráttuna
mína. En það eru ósannindi. Þeir
sem eru vinir mínir verða það áfram
og þeir sem vilja vera nálægt mér eru
velkomnir. Ég ætla ekki að þykjast
vera annað en ég er.
Því miður virðist ákveðinn hópur
ekki gera sér grein fyrir því hvað Björk
hefur opnað margar dyr fyrir Ísland
og gert mikið fyrir efnahag okkar.
Verk efnin eru óteljandi og umsvifin
mikil. Ég held að við getum talið
áhrifin í tugum milljarða. Fólk gerir
sér ekki grein fyrir hversu rosalegt afl
Björk hefur verið. Mér mundi aldrei
koma til hugar að afneita tengslum
við hana. Það væri eins og að afneita
mömmu eða ömmu.“
Vigdís var róttæk
Hvernig ætlar þú að koma umhverfis
sjónarmiðunum þínum á framfæri?
Hvaða vald hefur forseti í þeim efnum?
„Umhverfismálin eru á mörgum
sviðum og ég held að forseti geti haft
mikil áhrif. Í fyrsta lagi getum við
skoðað þau út frá hnattræna sjónar-
miðinu. Þau málefni sem varða Ís-
land snúast til að mynda um hafið
og bráðnandi jökla. Á næstu árum
verður Ísland í sviðsljósinu vegna
aukinna gróðurhúsaáhrifa í heim-
inum. Ef við skoðum umhverfismál
burtséð frá hálendismálum, getum
við til að mynda talað um tískusóun
og matar sóun. Þetta eru almenn at-
riði sem kalla á viðhorfsbreytingar en
ekki lagabreytingar. Mikið af því snýst
um gildi sem amma og afi voru með
– að nýta í stað þess að henda. Það
sem kallað er matarsóun núna, kall-
aði amma mín að klára matinn sinn.
Þegar Vigdís plantaði trjám var
það róttæk aðgerð. Leiðtogar áttu
að vera sterkir og harðir, og hún fór
með erlenda gesti og plantaði trjám.
Við sjáum það kannski ekki í dag, en
þetta var gjörningur, sem Yoko Ono
hefði alveg eins getað gert. Pólitískt
og háróttækt.
Ég hef ekki væntingar um hraðar
breytingar sem hægt væri að knýja
fram í einræðisherrastíl. Alþingi er
starfandi og leiðin til að hafa áhrif
er í gegnum það, og auðvitað önnur
stjórnstig kerfisins. Kerfin okkar í dag
eru þung og með endalausum fyrir-
vörum. Ráðuneyti tala ekki saman og
ýmislegt má bæta. Ég geri mér grein
fyrir því að forseti getur haft áhrif
„Það er jákvætt að
takast á um hug-
myndir og það að þegja
yfir einhverju getur verið
yfirlýsing um að sam-
þykkja einhvers konar
óréttlæti.
Sæl í dönsku vori Andri Snær og
Margrét Sjöfn Torp eiginkona hans.