Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Blaðsíða 4
Vikublað 24.–26. maí 20164 Fréttir 5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0 Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21 Grunaður um að stinga sektargreiðslum í vasann n Reyndum lögreglumanni vikið tímabundið úr starfi n „Allt eins sárasaklaust og hægt er“ L ögreglumanni við embætti Lögreglunnar á Norður- landi vestra á Sauðárkróki hefur verið vikið tímabund- ið úr starfi en rannsókn er hafin á því hvort hann hafi stung- ið sektargreiðslum fyrir umferð- arlagabrot í vasann. Rannsóknin hófst í byrjun maí eftir að erlend- ur ferðamaður sendi lögreglunni kvittun fyrir greiðslu hraðasektar, sem hann hafði borgað með reiðu- fé, sem fannst ekki skráð hjá emb- ættinu. Lögreglumaðurinn segist fullviss um að rannsóknin eigi eftir að sanna sakleysi hans enda sé um einföld mistök að ræða. „Það er ekki hægt að neita því að lögreglumaður hér er til rann- sóknar en við erum ekki með neina niðurstöðu í málinu og þess vegna er ekki ástæða til að segja að neitt sé sannað í þessu. Rannsókn er að hefjast og það er rétt að viðkomandi starfsmanni hefur, eins og það heit- ir á lagamáli, verið vikið úr starfi um stundarsakir,“ segir Páll Björnsson, lögreglustjóri á Sauðárkróki, í sam- tali við DV. Sýndi kvittun Samkvæmt upplýsingum DV er umræddur lögreglumaður með áratugareynslu í starfi. Heimildir blaðsins herma að málið, sem er nú á borði embættis héraðssaksóknara, hafi komið upp eftir að hraða- myndavélar í Hvalfjarðargöngum náðu myndum af hraðakstri er- lends ferðamanns. Maðurinn hafi í kjölfarið mótmælt sektinni og sagt lögreglunni að hann hefði einung- is einu sinni verið stöðvaður fyrir umferðarlagabrot hér á landi. Þá hafi hann verið í öðrum landshluta og greitt sektina á staðnum. Ferða- maðurinn hafi í kjölfarið sýnt kvitt- un, undirritaða af umræddum lög- reglumanni, fyrir greiðslunni innan umdæmis Lögreglunnar á Norður- landi vestra. Hafi þá komið í ljós að engin gögn um umrætt atvik voru til hjá embættinu. „Það eru afar litlar fjárhæðir sem koma þessari rannsókn af stað en það er verið að kanna og rannsaka verklag hjá manni hér og það gæti auðvitað verið um umtalsverðar upphæðir að ræða. Eina upphæðin sem við höfum séð, og gaf tilefni til að fara af stað með þessa skoðun, er mjög lág upphæð. Ég geri ekki ráð fyrir að niðurstaða í þessu komi fyrr en í haust. Það er tafsamt að kanna þetta,“ segir Páll, sem vildi að öðru leyti ekki tjá sig um rannsóknina. Ólafur Þór Hauksson héraðssak- sóknari vildi ekki veita viðtal þegar DV náði tali af honum. „Aulaskapur“ „Það er ekkert að útskýra. Ég fór í frí og svo til útlanda og átti eftir að skila þessu af mér og ganga frá þessu. Í framhaldinu er verið að skoða hvernig þetta er hjá mér en ég er búinn að vera lengi í þessu [starfi lögreglumanns] og þetta er allt eins sárasaklaust og hægt er. Það tókst ekki að fá rétta upphæð og þess vegna náði ég ekki að skila þessu í samræmi við skýrsluna sem ég kláraði skilmerkilega. Ég get ekki ímyndað mér að það verði neitt mál úr þessu, það væri alveg með ólík- indum ef svo væri. Ég er búinn með um 1.500 hraðaskýrslur og þetta er bara aulaskapur að hafa ekki græj- að þetta áður en ég fór utan,“ segir lögreglumaðurinn, sem vikið hefur verið tímabundið úr starfi, í samtali við DV. „Ég fagna því að þetta verði skoðað og vil að þetta verði skoð- að einhver ár aftur í tímann. Ég er algjörlega pollrólegur yfir því og ég vona að það verði farið ítarlega í gegnum þetta. Þetta er dapurt að geta ekki verið við störf og ég er hundfúll með það. Það hefði verið hægt að loka þessu máli og treysta á gamla manninn en þeir ákváðu þetta. Þetta er í rannsókn og það er eðlilegt að rannsaka hvort það sé eitthvað meira.“ Lögreglumaðurinn segist aldrei taka við reiðufé þegar um hraða- sektir sé að ræða. Langflestir öku- menn borgi sektir sínar með greiðslukortum. Umræddur ferða- maður hafi aftur á móti ekki haft annað með sér en peningaseðla og því hafi hann gert undantekningu. „Þetta var það eina sem hann hafði, ég tek við þessum peningum, og síðan; bíddu hvað á ég að gera við þetta? Peningarnir voru í brjóst- vasanum og fóru meira að segja í þvottavélina. [...] Ég hefði viljað að mínir samstarfsmenn næðu að átta sig á mínum sjónarmiðum og heiðarleika, sem er til staðar, heldur betur. Ég fór utan í hálfan mánuð og var í fimm daga fríi áður en ég fór og þetta voru ákveðin mistök hjá mér að ná ekki réttri upphæð.“ Dæmdur í fangelsi Fyrrverandi lögreglumaður á Aust- urlandi, Stefán Pedro Cabrera, var í nóvember í fyrra dæmdur í öðru máli í tíu mánaða fangelsi fyr- ir fjársvik, fjárdrátt og rangar sak- argiftir. Brotin áttu sér stað árin 2013 og 2014 en Stefán var meðal annars ákærður fyrir að sekta er- lenda ferðamenn fyrir hraðakstur í tilfellum þar sem engin umferð- arlög voru brotin. Peningunum stakk hann svo í eigin vasa. Rann- sókn málsins var afar tímafrek en hafa þurfti uppi á erlendum ferða- mönnum sem stöðvaðir voru af Stefáni. Grunur um brotin vaknaði eftir ábendingu frá ferðamanni sem hafði staðgreitt sekt til lögreglu- mannsins fyrrverandi. n „Það eru afar litlar fjárhæðir sem koma þessari rannsókn af stað en það er verið að kanna og rannsaka verk- lag hjá manni hér og það gæti auðvitað verið um umtalsverðar upphæðir að ræða. Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Sauðárkrókur Lögreglumenn, sem vikið er tímabundið úr starfi, fá helming fastra launa sinna á meðan brottvikningin varir. Dæmdur Fyrrverandi lögreglumaður á Austurlandi var í nóvember í fyrra dæmdur fyrir að hafa meðal annars stungið sektargreiðslum í vasann. MynD Eyþór ÁrnASon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.