Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Page 4
Vikublað 24.–26. maí 20164 Fréttir
5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0
Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21
Grunaður um að stinga
sektargreiðslum í vasann
n Reyndum lögreglumanni vikið tímabundið úr starfi n „Allt eins sárasaklaust og hægt er“
L
ögreglumanni við embætti
Lögreglunnar á Norður-
landi vestra á Sauðárkróki
hefur verið vikið tímabund-
ið úr starfi en rannsókn er
hafin á því hvort hann hafi stung-
ið sektargreiðslum fyrir umferð-
arlagabrot í vasann. Rannsóknin
hófst í byrjun maí eftir að erlend-
ur ferðamaður sendi lögreglunni
kvittun fyrir greiðslu hraðasektar,
sem hann hafði borgað með reiðu-
fé, sem fannst ekki skráð hjá emb-
ættinu. Lögreglumaðurinn segist
fullviss um að rannsóknin eigi eftir
að sanna sakleysi hans enda sé um
einföld mistök að ræða.
„Það er ekki hægt að neita því
að lögreglumaður hér er til rann-
sóknar en við erum ekki með neina
niðurstöðu í málinu og þess vegna
er ekki ástæða til að segja að neitt
sé sannað í þessu. Rannsókn er að
hefjast og það er rétt að viðkomandi
starfsmanni hefur, eins og það heit-
ir á lagamáli, verið vikið úr starfi um
stundarsakir,“ segir Páll Björnsson,
lögreglustjóri á Sauðárkróki, í sam-
tali við DV.
Sýndi kvittun
Samkvæmt upplýsingum DV er
umræddur lögreglumaður með
áratugareynslu í starfi. Heimildir
blaðsins herma að málið, sem er nú
á borði embættis héraðssaksóknara,
hafi komið upp eftir að hraða-
myndavélar í Hvalfjarðargöngum
náðu myndum af hraðakstri er-
lends ferðamanns. Maðurinn hafi í
kjölfarið mótmælt sektinni og sagt
lögreglunni að hann hefði einung-
is einu sinni verið stöðvaður fyrir
umferðarlagabrot hér á landi. Þá
hafi hann verið í öðrum landshluta
og greitt sektina á staðnum. Ferða-
maðurinn hafi í kjölfarið sýnt kvitt-
un, undirritaða af umræddum lög-
reglumanni, fyrir greiðslunni innan
umdæmis Lögreglunnar á Norður-
landi vestra. Hafi þá komið í ljós að
engin gögn um umrætt atvik voru til
hjá embættinu.
„Það eru afar litlar fjárhæðir sem
koma þessari rannsókn af stað en
það er verið að kanna og rannsaka
verklag hjá manni hér og það gæti
auðvitað verið um umtalsverðar
upphæðir að ræða. Eina upphæðin
sem við höfum séð, og gaf tilefni til
að fara af stað með þessa skoðun, er
mjög lág upphæð. Ég geri ekki ráð
fyrir að niðurstaða í þessu komi fyrr
en í haust. Það er tafsamt að kanna
þetta,“ segir Páll, sem vildi að öðru
leyti ekki tjá sig um rannsóknina.
Ólafur Þór Hauksson héraðssak-
sóknari vildi ekki veita viðtal þegar
DV náði tali af honum.
„Aulaskapur“
„Það er ekkert að útskýra. Ég fór í frí
og svo til útlanda og átti eftir að skila
þessu af mér og ganga frá þessu.
Í framhaldinu er verið að skoða
hvernig þetta er hjá mér en ég er
búinn að vera lengi í þessu [starfi
lögreglumanns] og þetta er allt eins
sárasaklaust og hægt er. Það tókst
ekki að fá rétta upphæð og þess
vegna náði ég ekki að skila þessu
í samræmi við skýrsluna sem ég
kláraði skilmerkilega. Ég get ekki
ímyndað mér að það verði neitt mál
úr þessu, það væri alveg með ólík-
indum ef svo væri. Ég er búinn með
um 1.500 hraðaskýrslur og þetta er
bara aulaskapur að hafa ekki græj-
að þetta áður en ég fór utan,“ segir
lögreglumaðurinn, sem vikið hefur
verið tímabundið úr starfi, í samtali
við DV.
„Ég fagna því að þetta verði
skoðað og vil að þetta verði skoð-
að einhver ár aftur í tímann. Ég er
algjörlega pollrólegur yfir því og
ég vona að það verði farið ítarlega
í gegnum þetta. Þetta er dapurt að
geta ekki verið við störf og ég er
hundfúll með það. Það hefði verið
hægt að loka þessu máli og treysta
á gamla manninn en þeir ákváðu
þetta. Þetta er í rannsókn og það er
eðlilegt að rannsaka hvort það sé
eitthvað meira.“
Lögreglumaðurinn segist aldrei
taka við reiðufé þegar um hraða-
sektir sé að ræða. Langflestir öku-
menn borgi sektir sínar með
greiðslukortum. Umræddur ferða-
maður hafi aftur á móti ekki haft
annað með sér en peningaseðla og
því hafi hann gert undantekningu.
„Þetta var það eina sem hann
hafði, ég tek við þessum peningum,
og síðan; bíddu hvað á ég að gera
við þetta? Peningarnir voru í brjóst-
vasanum og fóru meira að segja
í þvottavélina. [...] Ég hefði viljað
að mínir samstarfsmenn næðu að
átta sig á mínum sjónarmiðum og
heiðarleika, sem er til staðar, heldur
betur. Ég fór utan í hálfan mánuð og
var í fimm daga fríi áður en ég fór og
þetta voru ákveðin mistök hjá mér
að ná ekki réttri upphæð.“
Dæmdur í fangelsi
Fyrrverandi lögreglumaður á Aust-
urlandi, Stefán Pedro Cabrera, var
í nóvember í fyrra dæmdur í öðru
máli í tíu mánaða fangelsi fyr-
ir fjársvik, fjárdrátt og rangar sak-
argiftir. Brotin áttu sér stað árin
2013 og 2014 en Stefán var meðal
annars ákærður fyrir að sekta er-
lenda ferðamenn fyrir hraðakstur
í tilfellum þar sem engin umferð-
arlög voru brotin. Peningunum
stakk hann svo í eigin vasa. Rann-
sókn málsins var afar tímafrek en
hafa þurfti uppi á erlendum ferða-
mönnum sem stöðvaðir voru af
Stefáni. Grunur um brotin vaknaði
eftir ábendingu frá ferðamanni sem
hafði staðgreitt sekt til lögreglu-
mannsins fyrrverandi. n
„Það eru afar
litlar fjárhæðir sem
koma þessari rannsókn
af stað en það er verið að
kanna og rannsaka verk-
lag hjá manni hér og það
gæti auðvitað verið um
umtalsverðar upphæðir
að ræða.
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Sauðárkrókur Lögreglumenn, sem vikið er tímabundið úr starfi, fá helming fastra launa sinna á meðan brottvikningin varir.
Dæmdur Fyrrverandi lögreglumaður á Austurlandi var í nóvember í fyrra dæmdur fyrir að
hafa meðal annars stungið sektargreiðslum í vasann. MynD Eyþór ÁrnASon