Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Side 7
Vikublað 24.–26. maí 2016 Fréttir 7
Gleraugnaverslunin Eyesland
5. hæð Glæsibæ www.eyesland.is S: 577-1015
Létt og þægileg í veiðina
Veiðigleraugu með og án styrktarglugga
Kíktu við og mátaðu!
Bláberjabragð Vanillubragð Jarðarberjabragð
Bragðgo skyr að vestan
„Ég leit nú svo á, ég heyrði ekki annað,
þegar þessi hugmynd var kynnt en
að menn væru að opna á þetta sem
möguleika til þess að ná víðtækri sátt með
stjórnarandstöðunni. En hvað var það
fyrsta sem gerðist eftir að boðið var upp á
þetta? Það fyrsta sem gerðist var að það
er lýst yfir vantrausti. Menn halda sig við
það að reyna að fella ríkisstjórnina. Og því
vantrausti var hrundið og þar með taldi ég
þetta eiginlega bara vera úr sögunni.
Nema svo ólíklega hefði viljað til
að allt í einu hefðu menn
farið að vinna saman
um að klára öll
þessi stóru
mál. Þeim möguleika var haldið opnum
að hafa kosningarnar snemma ef að allt
gerðist og kláraðist hratt. Það hefur ekki
gengið eftir, það eru gríðarlega stór og
mikilvæg mál sem við eigum eftir að klára.
Ég skipulagði kjörtímabilið þannig að fyrst
myndum við byrja á forsendunum, taka á
skuldum heimilanna, ríkisins, haftamálin
til þess að hafa forsendur í framhaldinu
til að laga þetta fjármálakerfi sem er
meingallað. Til að byggja upp innviðina
– heilbrigðiskerfið og landbyggðina. Það
verkefni hljóta menn að vilja klára.“
Björn Ingi Hrafnsson, þáttastjórnandi
Eyjunnar, spurði því næst hvort Sigmundur
væri að segja að það lægi ekki fyrir að
Framsóknarflokkurinn styddi þingkosn-
ingar í haust.
„Ég hef ekki heyrt nokkurn framsóknar-
mann halda öðru fram en að menn eigi
að klára verkefnin fyrst og kjósa svo. Ef
báðir þingflokkar stjórnarflokkanna meta
það sem svo að það sé orðið tímabært að
boða til kosninga þá bara gerum við það.
En það er þingmannanna, þingflokkanna
beggja, að meta það. Á miðstjórnarfundi
framsóknarmanna ákváðum við að
samþykkja tillögu mína um sáttmála við
Sjálfstæðisflokkinn, samning sem ég hafði
gert við Bjarna Benediktsson til fjögurra
ára, en munum eflaust ræða það á mið-
stjórnarfundi hvort þeir telji ekki rétt að
klára þann fjögurra ára samning. En það
eru þingflokkarnir sem hafa það í hendi sér
að boða til kosninga þegar þeir telja rétt
og þar skipta verkefnin öllu máli.“
Þetta sagði Sigmundur Davíð
Aðspurður í Eyjunni hvort hann væri sáttur með ákvörðunina að flýta kosningum:
20. apríl
„Skoða“ kosningar
n Ásmundur Einar Daðason (BB.is)
Ásmundur Einar Daðason, formaður
þingflokks Framsóknarflokksins, sagði
að ríkisstjórnarflokkarnir væru að „skoða
möguleikann“ á kosn-
ingum í haust á fundi
með flokksfélögum á
Ísafirði. Það væri alfarið
undir verkefnalista
ríkisstjórnarinnar og
gangi mála á þingi komið
hvenær kosningar yrðu.
Minnti Ásmundur á
að ríkisstjórnin hefði
umboð til apríl 2017.
22. apríl
„Hugsanlega“
n Sigurður Ingi Jóhannsson (mbl.is)
„Eftir því hvernig mál ganga fram gætu
kosningar orðið hugsanlega seinni hlutann
í október,“ sagði Sigurður Ingi í samtali við
mbl.is. Notkun hans á orðinu hugsanlega
vakti athygli margra og furðu einhverra
þingmanna stjórnarandstöðunnar.
22. apríl
Ákveðnir fyrirvarar
n Bjarni Benediktsson (ruv.is)
Forystumenn ríkisstjórnarinnar, Bjarni
Benediktsson og Sigurður Ingi, segja að til
greina komi að þingkosningar verði seinni
hluta október. En það sé þó háð ákveðnum
fyrirvörum. Bjarni sagði:
„Með öllum fyrirvörum um eðlilegan fram-
gang þingstarfanna, þá vorum við að ræða
um það að síðari hluti október gæti verið
ágætlega ákjósanlegur tími.“
23. apríl
Liggur ekki á að kjósa
n Ásmundur Einar Daðason (Eyjan-blogg)
„Það liggur í raun ekkert á að kjósa en
stjórnarandstaðan hefur hins vegar lagt
ríka áherslu á að kjósa helst strax,“ skrifaði
Ásmundur á bloggsíðu sína sem ítrekaði að
hann væri talsmaður þess að ríkisstjórnin
kláraði mikilvæg verkefni áður en boðað
verður til kosninga. Hann væri til í að klára
kjörtímabilið ef það þýddi að til dæmis
framkvæmdir við Dýrafjarðargöng færu af
stað. Hann væri enginn áhugamaður um að
flýta alþingiskosningum.
28. apríl
Planið
n Bjarni Benediktsson (Alþingi)
Í ræðustóli Alþingis sagði Bjarni að fyrir
þinginu lægi heilbrigður fjöldi mála sem
langt væri kominn. Þingið ætti að nýta
dagana framundan til að ljúka þeim. Ríkis-
stjórnin hefði margítrekað lýst fyrir stjórn-
arandstöðuflokkunum hvernig hún vilji
vinna málin og svo verði gengið til kosninga
í haust. „Þetta er planið,“ sagði Bjarni. Bætti
hann við að hann hlakkaði til að leggja
gríðarlegan árangur ríkisstjórnarinnar undir
kjósendur í kosningum í haust.
28. apríl
Framíkall Þorsteins
n Þorsteinn Sæmundsson (Alþingi)
Þingmaður Framsóknarflokksins hvatti
til þess í framíkalli á þingfundi að næstu
þingkosningar yrðu haldnar í apríl 2017.
Skömmu áður hafði
Bjarni Benediktsson
ítrekað „planið“ með
kosningar í haust.
Ummæli Þorsteins
vöktu hneykslan
og benti Helgi
Hjörvar, þingmaður
Samfylkingarinnar,
á að Þorsteinn væri
fulltrúi Framsóknar í
forsætisnefnd.
22. maí
Enn mótfallinn
n Gunnar Bragi Sveins-
son og Brynjar Níelsson
(Hringbraut)
Gunnar Bragi Sveinsson
sjávarútvegs- og
landbúnaðar-
ráðherra sagði
á Hringbraut
að hann hafi
verið og sé
enn mót-
fallinn því að
kjósa í haust.
Kjósa eigi næsta
vor. Undir það
tók Brynjar
Níelsson,
þingmaður
Sjálfstæðis-
flokksins.
Hann segist
raunar ekki
vera einn þeirrar skoðunar innan flokksins.
23. maí
Planið
n Bjarni Benediktsson (Alþingi)
Í„Hér er stefnt að kosn-
ingum í haust,“ segir
Bjarni Benediktsson
í pontu, spurður um
ummæli Sigmundar
Davíðs frá því deg-
inum áður. Bjarni
segir ekkert hafa
breyst í þeim efnum.