Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Page 12
Vikublað 24.–26. maí 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
12 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Þ
að þykir venjulega til fyrir-
myndar að gefast ekki upp
þótt á móti blási heldur berj-
ast og reyna að snúa stöðunni
sér í hag. Þetta hefur fyrrverandi
forsætisráðherra, Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugsson, ákveðið að gera.
Hann hyggst sitja áfram sem formað-
ur Framsóknarflokksins. Líklegt er
að til þess njóti hann stuðnings þing-
flokksins og flestra almennra flokks-
manna, þó ekki allra. Sigmundur
Davíð getur búist við einhverri and-
stöðu frá eigin flokksmönnum, þótt
langlíklegast sé að þar hafi hann sig-
ur. Framsóknarmenn hafa löngum
verið áberandi hollir foringjum sín-
um.
Viðhorf hinna almennu kjósenda
gætu verið allt önnur. Það er engan
veginn gefið að þeim þyki Sigmund-
ur Davíð hafa gefið fullnægjandi
skýringu á sínum málum. Fram-
sóknarflokkurinn á því á hættu að
missa fylgi í næstu kosningum leiði
Sigmundur flokkinn og tapið gæti
hugsanlega orðið umtalsvert. Sig-
mundur Davíð verður að spila vel úr
erfiðri stöðu og hvergi misstíga sig.
Hann hefur hins vegar þegar stigið
feilspor.
Það verður að teljast óheppi-
legt að Sigmundur Davíð stígi aftur
á hið pólitíska svið, eftir langt leyfi,
með því að gera lítið úr loforði fé-
laga síns og núverandi forsætisráð-
herra, Sigurðar Inga Jóhannssonar,
og fjármálaráðherrans, Bjarna Bene-
diktssonar, um að kosningar verði
haldnar í haust, þá líklega í október.
Það loforð, ásamt afsögn Sigmund-
ar Davíðs úr forsætisráðherraemb-
ætti, varð til að róa afar reiða þjóð
sem aftur var farin að skunda á Aust-
urvöll þar sem einhverjir dunduðu
sér við þá miður smekklegu iðju að
henda eggjum í Alþingishúsið. Ef rík-
isstjórnin heykist á því að efna loforð
sitt um kosningar í haust er næsta
víst að reiðin mun blossa upp að nýju
og ólga skapast í samfélaginu. Reiði
almennings mun þá bitna á stjórn-
arflokkunum með tilheyrandi niður-
lægingu í kosningum.
Framsóknarflokkurinn er í erf-
iðri stöðu, en þó ekki vonlausri. Sig-
mundur Davíð þarf að vanda sig og
það ætti hann að geta því hann er að
mörgu leyti snjall stjórnmálamað-
ur og getur virkað mjög sannfær-
andi þegar hann talar um mál sem
honum eru hugleikin. Það væri ekki
klókt hjá honum að þrýsta á að lof-
orð um kosningar verði dregið til
baka. Miklu frekar ætti hann að sætta
sig við að þjóðinni var gefið loforð
sem verður að efna og beina kröft-
um sínum að því að kynna mál sem
hann telur varða þjóðarhag. Nýr liðs-
maður í forystusveit Framsóknar-
flokksins, utanríkisráðherrann Lilja
Alfreðsdóttir, er mikill happafeng-
ur fyrir flokkinn og hefur brillerað í
starfi. Hún er efni í framtíðarleiðtoga.
Flokkurinn myndi örugglega græða á
því að hampa henni í kosningabar-
áttu. Sigurður Ingi Jóhannsson hefur
síðan komið á óvart sem forsætisráð-
herra, þvert á það sem margir ætluðu
hefur hann staðið sig vel.
Undanfarið hefur Framsóknar-
flokkurinn ekki mælst hátt í skoðana-
könnunum. Enginn skyldi þó afskrifa
flokkinn. Framsóknarflokkurinn hef-
ur nær alltaf kunnað að haga kosn-
ingabaráttu á þann hátt að fylgið
skilar sér, andstæðingum flokksins til
mikillar hrellingar.
Við vitum ekki hvernig Sigmund-
ur Davíð mun spila úr erfiðri stöðu
en sannarlega verður fróðlegt að sjá
hvort honum muni takast að snúa
henni sér í vil. Takist það er um tölu-
vert afrek að ræða. n
Endurkoma Sigmundar Davíðs
Hugleikur Dagsson líkir forsetaframbjóðendunum við persónur í GoT. – DV
Mér líður stundum eins og við
séum stödd í Game of Thrones
Kvennablaðið kastar
grímunni
Kvennablaðið birti á vef sínum
í gær grein frá ritstjórn þar sem
það er harmað að Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugsson sé snúinn úr fríi,
af því að hann er svo vondur. Um
leið biðlar miðillinn til almenn-
ings um að veita upplýsingar um
ferðir hans á árunum 2005 til
2009 þar sem upplýsingar um fer-
il hans frá þessum tíma hafa ver-
ið á reiki, að mati blaðsins. Það
er vissulega virðingarvert þegar
fjölmiðlar kasta grímunni og segi
það hreint út hvar hjarta þeirra í
pólitík á heima, en að sama skapi
hljóta menn að frábiðja sér ásak-
anir Kvennablaðsins í framtíðinni
um að hinir eða þessir miðlar
gangi pólitískra erinda. Slík köst
verða ávallt úr glerhúsi.
Jón Þórisson á
ViðskiptaMoggann
Jón Þórisson, fyrrverandi for-
stjóri VBS fjárfestingabanka og
aðstoðarforstjóri Íslandsbanka,
hefur verið ráð-
inn í sumarstarf
á Morgunblað-
inu. Þar mun
hann bætast í hóp
blaðamanna á
viðskiptaritstjórn
blaðsins. Morgun-
blaðið missti spón úr aski sínum
þegar Baldur Arnarson, einn öfl-
ugast blaðamaður Moggans um
árabil, lét af störfum fyrr í þessum
mánuði en Baldur hafði undan-
farna mánuði einkum skrifað við-
skiptafréttir í blaðið.
Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni
sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög
þurru umhverfi.
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna
hornhimnunnar gegn þurrki.
Droparnir eru án rotvarnarefna
og má nota með linsum.
Þurrkur í augum?
Thealoz augndropar
Fæst í öllum helstu apótekum.
Ég hef verið að glíma við augnþurrk. Ég nota
Thealoz gervitár af því mér finnst þau smyrja
augun vel, þau eru með langvarandi virkni, unnin
úr náttúrulegum efnum og þau eru laus við öll
aukaefni sem mér þykir kostur.
Heiðdís Björk Helgadóttir
Sigmundur Davíð er fráleitt hættur á Snapchat. – DV
Hélduð þið að
ég væri hættur?
Hjörtur Smárason segir orðspor Íslands hafa beðið hnekki. – Fréttablaðið
Afsögn forsætis-
ráðherra var stórt skref
„Framsóknar-
flokkurinn er í
erfiðri stöðu, en þó ekki
vonlausri.
MynD SiGtryGGur Ari
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Myndin Skipin komin Skemmtiferðaskip hófu komur sínar til Reykjavíkur í vikunni. Hér sést stefnið á Celebrity Eclipse, sem er 317 metra langt, vegur um 122 þúsund lestir og
rúmar 2.852 farþega auk áhafnar. MynD SiGtryGGur Ari