Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Síða 19
Vikublað 24.–26. maí 2016 Kynningarblað - Viðhald húsa 7
PVC-þakefni og klæðningar
með 50 ára ábyrgð
PACE-varnarhúð á þök með meira en 1000% teygju
Þ
egar húsveggir, húsþök,
grindveggir og pallar eru
klædd með PVC-efni hverf-
ur öll viðhaldsþörf því efnið
er viðhaldsfrítt. Það þarf
aldrei að skrapa og mála aftur eða
gera við sprungur.PVC þolir veðr-
un afar vel og upplitast ekki. PVC-
klæðningar og -þakefni sem fyrir-
tækið Flott hús selur hér á landi er
með 50 ára ábyrgð. Efnið er afar um-
hverfisvænt því hver einasta plata er
70% úr endurunnu efni.
Á vandaðri heimasíðu fyrirtæk-
isins, flotthus.is, er að finna gagn-
legar upplýsingar og skemmtilegan
fróðleik í máli og myndum um PVC-
klæðningarnar og þakefni, en fyrir-
tækið gerir tilboð í verkefni af þessu
tagi fyrir stóra og smáa aðila.
PVC-efnið sem Flott hús selur
kemur frá einum helsta framleiðanda
byggingarefnis í Norður-Ameríku,
Ply Gem (sjá heimasíðuna plygem.
com) en eins og fyrr segir er þetta efni
með 50 ára ábyrgð. Ply Gem verður
oftar en ekki fyrir valinu sem sam-
starfsaðili í vinsælum raunveruleika-
þáttum í sjónvarpi um húsaviðgerð-
ir og endurbætur, til dæmis Extreme
Home Makeover. Þá hefur Ply Gem
unnið til fjölmargra umhverfis-
verndarverðlauna enda óhætt að
segja að framleiðslan er hágræn með
hinu háa hlutfalli af endurunnu efni í
plötunum. Ply Gem PVC-klæðningar
eru samkeppnisfærar við allar aðrar
utanhússklæðningar í verði.
Eins og myndirnar bera með sér
eru klæðningarnar afar áferðarfal-
legar en ólíkt fallegum húsum með
klæðningar úr öðru efni þá helst
þetta fallega útlit árum og áratugum
saman án nánast nokkurs viðhalds.
Ekki nýtt þak heldur betra þak
Fyrir þá sem vilja halda gamla þak-
inu sínu en fá það eins og nýtt eru
PACE þakefnin afar góður kostur.
Þessa lausn býður Flott hús undir
merkum Pace Iceland (sjá vefsvæð-
ið http://consortium1964.wix.com/
paceiceland eða tengil frá flotthus.is)
Um er að ræða varanlega varnarhúð á
gamalt járn, ál, tjörupappa o.fl.
Hundruð bygginga á Íslandi hafa
fengið þessa varnarhlíf og endingin
er ótrúleg. Það stafar ekki síst af því
að efnið er að minnsta kosti 1000%
teygjanlegt og brotnar því ekki eða
springur í kulda. Þó að sprunga komi
í steypuna teygist PACE-húðin fyrir
ofan og heldur þakinu lokuðu.
Pace fæst í mörgum litum. n
Fyrir Eftir